Lögmannablaðið - 01.12.2009, Síða 4
4 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2008
Á árinu sem nú er senn liðið hafa
margar stórar spurningar vaknað um
lög og rétt hér á landi – allt frá gildi
einstakra löggerninga sem grund
vallarþýðingu hafa í lánaviðskiptum
einstaklinga og fjármálafyrirtækja til
áleitinna spurninga um stjórnar
skrárgildi neyðaraðgerða löggjafans í
tengslum við kerfishrun íslensku
bankanna á síðasta ári. Þá hafa vaknað
efasemdir um getu íslenska réttar
kerfisins til að takast á við afleiðingar
bankahrunsins og þykir flestum einsýnt
að hvorki ákæruvaldið né dómstólar
hafa að óbreyttu burði til að sinna þeim
risavöxnu verkefnum sem framundan
eru. Ofan á allt þetta bætist við mikil
réttaróvissa vegna svokallaðra Icesave
samninga, heim ilda fram kvæmda
valdsins til slíkra skuldbindinga og
jafnvel hvort löggjafanum sé stætt á því
gagnvart stjórnarskrá.
Þegar stórt er spurt er fátt um svör,
segir máltækið, en í þeim málum sem
hér eru nefnd til sögunnar stendur
yfirleitt ekki á svörum í umræðunni.
Vandinn við þau svör er sá að þau skilja
eftir sig fleiri spurningar en þau svara.
Ekki skortir framboð á hvers kyns
hentugleika skýringum og útúrsnún
ingum í tengslum við þessi viðfangsefni.
Því miður virðast þeir fáu sem reiðu
búnir eru til að nálgast þau af sanngirni
og yfirvegun ekki vera nógu spennandi
umfjöllunarefni fyrir fjölmiðlana, ekki
nógu yfirlýsingaglaðir og hugsanlega
ekki í réttu liði fyrir þann fjölmiðil sem
fjallar um málin hverju sinni.
Þeir sem voga sér út á forað umræð
unnar fá það yfirleitt óþvegið, jafnvel
þótt reynt sé að leggja gott eitt til. Árið
sem nú er senn á enda geymir mörg
dæmi um þetta og það er ekki að undra
þótt margir láti hugfallast, haldi sig
fjarri umræðunni og voni bara hið
besta. Þá er hins vegar hollt að minnast
hinna fleygu orða, sem jafnan eru höfð
eftir breska 18. aldar heim spekingnum
Edmund Burke, að til að illskan hafi
yfirhöndina þurfi ekki annað en að
góðir menn aðhafist ekkert.
Þrátt fyrir allt er ekki ástæða til tómrar
svartsýni. Skilningur virðist vera að
aukast á því að íslenska þjóðin muni
ekki komast út úr þeim erfiðleikum sem
nú steðja að með því að hverfa frá
grund vallarreglum réttarríkisins. Lög
menn hafa á síðustu misserum látið
verulega til sín taka í umræðum um
fjárskort réttarkerfisins og vonandi er
að dóm stólum landsins og öðrum
þjónum réttarríkisins verði gert kleift að
leysa úr málum í stað þess að þau séu
ráðin til lykta með steikarpönnum og
gang stéttarhellum á götum landsins.
Árið 2009 var ár spurninganna. Vonandi
ber árið 2010 í skauti sér svörin við að
minnsta kosti einhverjum þeirra.
Frá ritstjóra
Borgar Þór Einarsson hdl.
Ár spurninga
Laganám við HR miðar að því að útskrifa
framúrskarandi lögfræðinga sem láta til
sín taka í íslensku og alþjóðlegu samfélagi.
· 3ja ára grunnnám til BA-gráðu.
· 2ja ára framhaldsnám til meistaragráðu.
Kynntu þér metnaðarfullt og nútímalegt
laganám á www.hr.is
LÁTTU TIL ÞÍN TAKA!
LAGADEILD
HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK