Lögmannablaðið - 01.03.2013, Side 6
6 lögMannaBlaðið tBl 01/13
Af VettVAnGi félAGsins
nýlega hafnaði innanríkisráðuneytið
ítrekaðri beiðni Lögmannafélagsins
um hækkun tímagjalds vegna
vinnu lögmanna við verjenda og
réttargæslustörf en tímagjaldið hefur
verið óbreytt frá gildistöku reglugerðar
nr. 715/2009, eða kr. 10.000, auk vsk.
reyndar var tímagjaldið lækkað með
gildistöku umræddrar reglugerðar úr
kr. 11.200, auk vsk. og hafði þá staðið
óbreytt frá árinu 2007.
Sú afstaða ráðuneytisins að
hækka ekki tímagjald í þessum
málaflokki veldur verulegum von
brigðum enda endurspeglar það á
engan hátt raunverulegan kostnað
lögmanna og vinnu í þessum málum.
ásættanleg greiðsla fyrir verjenda
og réttargæslustörf er að mati Lög
mannafélagsins grundvallarforsenda
þess að tryggt verði að réttur sakaðra
manna og brotaþola til réttlátrar
málsmeðferðar fyrir dómi sé virkur og
í samræmi við 70. gr. stjórnarskrárinnar
og 6. gr. mannréttindasáttmála evrópu,
sem lögfestur hefur verið hér á landi. Í
þessu samhengi er athyglisvert að skoða
samanburð tímagjalds í verjenda og
réttargæslumálum hér á landi við þóknun
lögmanna fyrir sambærileg störf á hinum
norðurlöndunum. Þannig er tímagjaldið
án vsk. kr. 17.500, í Finnlandi, kr.
22.200, í noregi, kr. 25.200, í Svíþjóð
og kr. 38.700, í Danmörku.
II
fjórfalt fleiri lögmenn á
Íslandi en í finnlandi
Séu tölur um fjölda lögmanna á
norðuröndunum skoðaðar miðað við
fjölda íbúa, þá er hlutfallið langhæst
hér á landi eða 1 lögmaður á hverja 319
íbúa. í noregi er hlutfallið 1 á hverja
630 íbúa, í Danmörku 1 á móti 947, í
Svíþjóð 1 á móti 1.810 og í Finnlandi
er 1 lögmaður á hverja 2.766 íbúa. eins
og glöggt má sjá af þessu tölum, þá
eru rúmlega fjórfalt fleiri lögmenn hér
á landi miðað við Finnland, sé miðað
við íbúafjölda.
skylduendurmenntun
lögmanna
Íslenskir lögmenn eru þeir einu á
norðurlöndunum sem ekki er gert skylt
að sækja sér endurmenntun. Útfærsla
á skylduendurmenntun lögmanna á
hinum norðurlöndunum er nokkuð
mismunandi en fjöldi tíma eða eininga er
þó nánast sá sami. Þannig þurfa finnskir
og sænskir lögmenn að ljúka 18 tíma
endurmenntun ár hvert en í Danmörku
er tímafjöldinn miðaður við þriggja ára
tímabil þar sem lögmenn þurfa að ljúka
54 tíma endurmenntun. Í noregi er fjöldi
tíma 80 en norskir lögmenn hafa 5 ár
til að ná þessum tímafjölda.
starfsreynslu krafist af
lögmannsefnum
við skoðun reglna um skilyrði aðildar að
lögmannafélögum á norðurlöndunum
kemur í ljós að sama krafa er almennt
gerð hvað varðar tímalengd og
samsetningu laganáms, þ.e. þess er
krafist að lögmannsefni hafi lokið bæði
bA og mL gráðum, sem alla jafna tekur 5
ár að afla. Allsstaðar er lögmannsefnum
gert að ljúka sérstakri prófraun til öflunar
málflutningsréttinda, sambærilegri þeirri
sem ljúka þarf hér á landi. Hins vegar
eru nokkuð mismunandi kröfur gerðar
milli landanna varðandi starfsreynslu,
þ.e. tíma sem lögmannsefni þurfa að
starfa á lögmannsstofu, hjá dómstólum
eða á öðrum viðurkenndum stöðum
áður en hlutaðeigandi getur reynt við
prófraunina. Þannig er krafist 4 ára
starfsreynslu í Finnlandi, 3 ára í Svíþjóð
og Danmörku og 2 ára í noregi. Auk
þessa þurfa lögmannsefni í noregi að
ljúka þremur prófmálum og dönsk
lögmannsefni einu máli til að öðlast
málflutningsréttindi. Hér á landi er
aðeins gerð krafa um að lögmannsefni
aðstoði lögmann við undirbúning máls.
ekki er gerð krafa um prófmál í Finnlandi
eða Svíþjóð en hins vegar þurfa sænsk
lögmannsefni að leggja fram formleg
meðmæli frá lögmönnum, dómurum eða
embættismönnum sem þeir hafa starfað
hjá. Telji sænska lögmannafélagið slík
meðmæli ekki fullnægjandi getur félagið
neitað viðkomandi um aðild en heimilt
er að skjóta slíkri höfnun til dómstóla
og eru nokkur slík mál rekin ár hvert.
Árgjöld lögmannafélaga
Umtalsverður munur er á milli
lögmannafélaganna á norðurlöndunum
þegar kemur að fjárhæð árgjalda. eins
og félagsmönnnum í Lögmannafélagi
Íslands er sjálfsagt kunnugt, nemur
árgjald til félagsins nú kr. 42.000. Til
samanburðar greiða norskir og sænskir
lögmenn tæplega kr. 118.000 til sinna
félaga, danskir lögmenn rúmar kr.
140.000 og finnskir lögmenn ríflega
kr. 183.000 eða rúmlega fjórfalt hærri
fjárhæð en félagsmenn LmFÍ greiða til
félagsins.
II
innanríkiráðuneytið neitar að hækka
tímagjald lögmanna
samanburður við norðurlönd