Lögmannablaðið - 01.03.2013, Síða 9

Lögmannablaðið - 01.03.2013, Síða 9
lögMannaBlaðið tBl 01/13 9 Á léttUM nÓtUM Konur 72% þátttakenda á hdl. námskeiði vorsins Í febrúar s.l. hófst námskeið til öflunar réttinda til að vera héraðsdómslögmaður og eru 39 lögfræðingar skráðir á það. Að auki þreyta 36 þátttakendur af fyrri námskeiðum próf í einstökum greinum. Athygli vekur að af 39 þátttakendum eru 28 konur að þessu sinni eða 71,8% en þetta er í fyrsta skipti síðan námskeiðin hófust að konur eru fleiri en karlar. heildarfjölda félagsmanna eru konur nú 29,2%, samanborið við 22% árið 2004. Af félagsmönnum í Lögmanna­ félaginu eru 709 karlar. Þar af eru 254 hæstaréttarlögmenn. Sjálfstætt starfandi karlar í lögmannastétt eru 364 og 130 félagsmenn starfa sem fulltrúar sjálfstætt starfandi lögmanna. Hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum starfa 175 karlar sem innanhússlögmenn, þar af 53 hjá ríki eða sveitarfélögum og 122 hjá fyrirtækjum eða félagasamtökum. Þá eru 40 karlar hættir störfum. skipting karla í lMfÍ eftir því hvar þeir starfa. frÁ þvÍ Í haust hefur starfsfólk lMfÍ fylgst náið með félagatalinu til að sjá hver yrði félagsmaður númer 1000. Í byrjun þessa árs kom svo að því og það reyndist vera gróa Björg Baldvinsdóttir hdl. hjá landslögum. gróa, sem er fædd árið 1985, lauk mastersgráðu við lagadeild háskólans í reykjavík vorið 2011 og sótti hdl. námskeið síðastliðið haust . hún hefur unnið á lögmanns- stofunni landslögum frá hausti 2011. þúsundasti félagsmaður lMfÍ Jónas þór guðmundsson hrl. formaður lMfÍ færði gróu gjöf í tilefni þess að hún er félagsmaður númer 1000. alls hafa 689 lögfræðingar lokið námskeiði til öflunar réttinda til að vera héraðsdómslögmaður á þeim þrettán árum sem þau hafa verið haldin. þar af eru 387 karlar (56,2%) og 302 konur (43,8%).

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.