Lögmannablaðið - 01.03.2013, Síða 13

Lögmannablaðið - 01.03.2013, Síða 13
lögMannaBlaðið tBl 01/13 13 UMfJÖllUn þessi ljósritunarvél var nýjasta nýtt árið 1972. þeir sem lærðu lögfræði á sjöunda áratugnum létu sig ekki einu sinni dreyma um tækni sem þessa heldur munduðu pennann af kappi. Er nema von að mönnum fallist stundum hendur í tæknivæðingu samtímans? heimild: frjáls verslun 9.tbl. 1.september 1972, 48. Mat Á hagræði Í okkar réttarfari tíðkast að reka mál með fyrirtöku á dómþingi sem fer fram í töluðu máli. auðvitað má halda í þetta kerfi með aðstoð rafrænna miðla en slíkar lausnir þarfnast hins vegar sérstakrar skoðunar og tæknilegra lausna sem gætu orðið flóknar. Vegalengdir eru ekki til stórfelldra trafala við málarekstur hér á landi. mat á það hagræði sem rafrænt réttarfar hefur upp á að bjóða þarf m.a. að meta með hliðsjón af þessu. Í stuttu máli eru aðstæður okkar með ýmsum hætti frábrugðnar þeim þar sem í dag er verið að gera alvarlega tilraunir með rafrænan rekstur mála, t.d. hjá evrópudómstólnum í Lúxemborg, og full ástæða til nálgast málið með yfirvegun. Skúli magnússon héraðsdómari núorðið aðeins gerðar með tölvupósti og því ástæða til að kanna hvort unnt sé að gera það kerfi þannig úr garði með rafrænum undirskriftum að boðanir með tölvupósti geti að fullu leyst pappírinn af hólmi,“ sagði Skúli. Þorgeir Ingi njálsson héraðsdómari sagðist þeirrar skoðunar að hætta ætti með regluleg dómþing og láta aðila senda inn gögn, og þá mögulega rafrænt. „milliþinghöld þarf hins vegar að halda til að athuga með sættir og framlögð gögn,“ sagði hann. Í lokin Flestir þeirra sem rætt var við voru á því að dómstólarnir þyrftu að setja aukinn kraft í að koma á rafrænu réttarkerfi. Dómarar væru í eðli sínu íhaldssamir og því oftar en ekki seinir að tileinka sér nýjustu tækni. ekki væri hægt að gera ráð fyrir að mikið frumkvæði kæmi þaðan auk þess sem fjármagn skorti til að hefja þessa vegferð af krafti. Kröfur samtímans, og til framtíðar, væru að nýta tæknina til að koma á skilvirkara réttarkerfi þar sem dýrmætur tími væri betur nýttur en nú er. Það er ekki síður Lögmannafélagsins að beita sér fyrir umbótum á þessu sviði og þrýsta á stjórnvöld að setja tæknivæðingu réttarkerfisins á oddinn sem og að stuðla að viðeigandi lagabreytingum. nauðsynleg tæknivæðing dómstólanna er hagsmunamál lögmanna eins og annarra þjóna réttarríkisins. Eyrún Ingadóttir Lagaþýðingar í öruggum höndum Sérhæfðir þýðendur með víðtæka reynslu af öllum sviðum lagatexta. Öll helstu tungumál. Traust og fagleg þjónusta. Sendu okkur fyrirspurn á skjal@skjal.is og við komum þinni þýðingu í öruggar hendur. Skjal þjónusta ehf. - Síðumúla 28 - 108 Reykjavík Sími: 530 7300 - www.skjal.is

x

Lögmannablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.