Lögmannablaðið - 01.03.2013, Side 14

Lögmannablaðið - 01.03.2013, Side 14
14 lögMannaBlaðið tBl 01/13 UMfJÖllUn leiðarljósið í framtíðina ólöf finnsdóttir fraMKvæMdastJóri dómstólaráðs segir framtíðarsýn dómstólanna skýra um að stefnt skuli að enn frekari rafrænni meðferð mála. Það er stefnt að rafrænni stjórnsýslu allra dómstólanna til að stuðla að auknu öryggi og rekjanleika gagna. rafræn vistun málsgagna er mikilvægur liður í þá átt og kemur til með að einfalda alla úrvinnslu dómskjala, auka skilvirkni, gæði og hagkvæmni við rekstur dómsmála og um leið bæta þjónustu við ákæruvald, lögmenn og aðra þá sem leita til dómstólanna. Hvaða ávinningur yrði að því að innleiða rafræna málsmeðferð? málmeðferðartími ætti að geta styst t.d. í sakamálum ef málskjöl yrðu send rafrænt og málum úthlutað jafnóðum til dómara á rafrænan hátt. Tími sparast og öryggi eykst við það að ekki þarf að skrá mál inn við móttöku þess hjá dómstól. Í kjölfarið ætti úrvinnsla mála að verða einfaldari þar sem leit í gögnum á rafrænan hátt getur flýtt fyrir. Sama á við um einkamálin. Það yrði væntanlega mikill ávinningur af því fyrir lögmenn ef málsmeðferðin yrði að stærstum hluta rafræn. Hugsa mætti sér að lögmenn legðu mál fram til þingfestingar í gegnum rafræna gátt sem aftur dómstólinn móttæki. Frekari gagnaöflun í máli gæti sömuleiðis farið fram á rafrænan hátt og lögmenn og dómarar þyrftu ekki nema í undantekningartilvikum að koma í dómsal fyrr en kæmi að aðalmeðferð máls. Slík málsmeðferð hefði í för með sér gríðarlegan tímasparnað og hagræði fyrir alla aðila. við munn­ legan málflutning mætti hugsa sér að lögmenn vörpuðu upp þeim málsskjölum rafrænt sem þeir vilja leggja sérstaka áherslu á hverju sinni í stað þess að þurfa að notast við pappír. Þá yrðu skil málskjala dómstólanna til Þjóðskjalasafns í framtíðinni rafræn til mikillar hagræðingar fyrir alla aðila. Eru dómarar/dómstólar jákvæðir gagnvart nýjustu tækni? Dómstólarnir eru íhaldssamar stofnanir í eðli sínu. Öll þróun tekur því langan tíma og hvert skref er tekið á yfirvegaðan hátt og mikilvægt að vandað sé til verka. Dómarar eru jákvæðir fyrir allri þróun svo fremi að hún stuðli að einföldun og frekara öryggi við úrvinnslu dómsmála. Þeir hafa tekið fullan þátt í allri undirbúningsvinnu við vinnslu formskjala og ferilgreiningu dómsmála og lagt mikið að mörkum í þeirri umfangsmiklu vinnu sem nú er að baki. Hvernig sérð þú fyrir þér að rafrænt réttarkerfi myndi virka? Framtíðarsýnin er því sú að umsýsla dómskjala verði rafræn. Dómarar og lögmenn ættu ekki að þurfa að koma í dómsal nema þegar kæmi að aðalmeðferð máls. Framlagning gagna færi fram rafrænt og áfrýjun máls yrði á sama hátt á rafræn. Lögmenn og ákæruvald ættu sín svæði í málaskrá dómstólanna þar sem þeir gætu sjálfir fylgst með framvindu sinna mála stig af stig og átt samskipti við dómara. EI viðtal við ólöfu finnsdóttur

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.