Lögmannablaðið - 01.03.2013, Side 16

Lögmannablaðið - 01.03.2013, Side 16
16 lögMannaBlaðið tBl 01/13 UMfJÖllUn stöndum vaktina fyrir lögmenn mér bauðst að taka að mér mætingar þegar bergur bjarnason hrl. var að hætta en þetta var lítil vinna fyrst í stað. Þá sinnti ég mætingum ásamt Hafþóri Inga jónssyni hdl. en síðan tók ásgeir björnsson hdl. við af honum. Hvernig ganga mætingarnar fyrir sig? Lögmenn hafa samband og koma til okkar gögnum sem við leggjum fyrir dóminn á reglulegum dómþingum á þriðjudögum og fimmtudögum. Svo fylgjum við málum eftir frá þingfestingu og þangað til þau fara út af reglulega þinginu og í úthlutun. við erum á staðnum til að spara lögmönnum viðveruna en mál eru tekin eftir þeirri röð sem þau berast. við erum síðan í talsverðu sambandi við lögmenn utan þinganna. Það er gagnkvæm upplýsingaöflun milli okkar og þeirra lögmanna sem við mætum fyrir enda má segja að við stöndum vaktina fyrir þá. Þetta er töluverð binding, það er til dæmis ekki hægt með góðu móti að verða veikur og oft eru miklir hagsmunir í húfi. Er mikið að gera? Það var miklu meira að gera á vissu árabili, í kringum 1990­1991. Þá voru um 26 þúsund einkamál þingfest á ári. Þingið þurfti stundum að vera fram á nótt og svo var jafnvel haldið áfram næsta dag. Síðustu daga fyrir sumarhlé var svo verið að demba inn málum að íslenskum sið. nú eru breyttar aðstæður í þjóðfélaginu og málin í kringum fimm þúsund á ári. Hækkun á þingfestingargjöldum hefur haft áhrif á smámálin og menn kanna betur greiðslugetu skuldara áður en þeir leggja af stað með mál. Hverjir nota þjónustuna? Það eru svona á milli 50 til 60 aðilar í hverjum mánuði ­ stærri lögmannsstofur jafnt sem einyrkjar. Þingfestingar í hvert sinn eru allt frá tíu málum og yfir eitt hundrað. Það kemur stundum fyrir að ólöglærðir mæta sjálfir fyrir dóminn og þá þurfa dómarar og aðstoðarmenn þeirra að sinna leiðbeiningaskyldu sinni. menn þekkja kannski ekki ferlið og það getur verið viðkvæmt. Sérð þú fyrir þér hvernig rafrænt réttarfar muni virka? Ég sé það nú ekki alveg fyrir mér enda verð ég sjálfsagt hættur þegar að því kemur. Lögmenn verða að geta treyst því að það verði ekki útivist í málum. Stundum þarf að gera kröfur um málskostnaðartryggingar og svo geta komið upp mál í þinginu sem þarf að bregðast strax við. Það er þessi viðvera sem við erum að tryggja og skiptir lögmenn miklu. þEgar rafrænt réttarfar verður að veruleika munu fyrirtökur og mætingar fyrir dómi væntanlega heyra sögunni til í þeirri mynd sem þær eru í dag. Einn þeirra lögmanna sem sinnt hefur þessu starfi um árabil er tryggvi viggósson hdl. en hann hóf mætingar árið 1988. viðtal við tryggva viggósson

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.