Lögmannablaðið - 01.03.2013, Side 18
18 lögMannaBlaðið tBl 01/13
Á léttUM nÓtUM
dramatískt jólasnapsmót
KnATTSpyrnUmóT LmFÍ vAr haldið í
Framheimilinu við Safamýri föstudaginn
21. desember 2012. LOGOS FC, OpUS,
KF Þruman og Kvennaliðið sendu
raunveruleg lið í mótið en auk þess
var Lögfræðistofa reykjavíkur skráð
til þátttöku. Þar sem lið Lr mætti ekki
tapaði það öllum leikjum sínum 03,
endaði því neðst með núll stig og
markatöluna 012. vonandi gengur betur
hjá þeim næst.
Þrátt fyrir að blásið væri í flautuna
eftir hádegi hófst keppnin fyrir alvöru um
morguninn þegar töluverðar hreyfingar
urðu á leikmannamarkaði LmFÍ. Illa
mönnuð lið virðast hafa farið á taugum
og keypt grimmt leikmenn – jafnvel
grimma leikmenn. Hefur heyrst að UeFA
hafi áhyggjur af þróuninni og ætli að
beita sér fyrir því að „FinancialFairplay“
reglur verði settar innan LmFÍ. Sagan
segir að eitt liðið hjá ónefndri stofu hafi
hótað fulltrúa sínum uppsögn ef hann
keppti fyrir annað lið á mótinu en ég
mun ekki segja meira enda vinir mínir
þar á ferð.
OpUS hafði sigur í mótinu.
Fótboltalega séð var það sanngjarnt.
Þeir voru einfaldlega í annarri deild en
hin lið mótsins og unnu alla leiki sína.
Fanney fyrirliði sýndi fádæma yfirburði
og var sannur leiðtogi síns liðs, enda
var starf hennar í húsi. Þá var gaman að
sjá takta erlendar sem hann lærði sem
ungur drengur hjá Leikni á Fáskrúðsfirði.
Hann hefur engu gleymt og eldist vel.
minnir á rauðvín. Danni stóð sig líka
sæmilega, verst hvað hann er slappur að
nýta færin sín. Aðrir liðsmenn stóðu sig
líka vel eða svona flestir. verðskuldaður
sigur frábærs liðs.
Í öðru sæti var KF Þruman. Þeir tóku
reyndar silfrið með svindli en þannig
er þetta nú stundum. magnað að sjá
virðulega lögmenn beita trixum til að
sigra. en þetta telst væntanlega vera
reynsla. besti leikmaður Þrumunnar og
líklega leikmaður mótsins var eyvindur
Sólnes. Leikgleðin var óumdeild og
heillandi, skipulagið flott og mikið
svakalega getur strákurinn skotið. en
það dugði þó skammt á móti OpUS.
Í þriðja sæti var LOGOS FC. Til
viðbótar við bronsið fá þeir verðlaun