Lögmannablaðið - 01.06.2015, Síða 5
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/15 5
AF VETTVANGI FÉLAGSINS
ÞYRÍ STEINGRÍMSDÓTTIR HRL.
AÐALFUNDIR LÖGMANNAFÉLAGS
ÍSLANDS og félagsdeildar LMFÍ 2015
voru haldnir þriðjudaginn 26. maí
s.l. á Hilton Reykjavík Nordica. Auk
venjubundinna aðalfundarstarfa voru
samþykktar tillögur um breytingu á
siðareglum lögmanna og hækkun
árgjalds. Þá voru staðfestar reglur
um eftirlit með innheimtustarfsemi
lögmanna og þrír mætir lögmenn gerðir
að heiðursfélögum.
Skýrsla stjórnar
Jónas Þór Guðmundsson hrl., fráfarandi
formaður, kynnti skýrslu stjórnar og gerði
stuttlega grein fyrir þeim málum sem
verið hafa í brennidepli innan félagsins
á liðnu starfsári. Að því loknu gerði
Ingimar Ingason framkvæmdastjóri grein
fyrir ársreikningi félagsins vegna ársins
2014. Niðurstaða af rekstri félagsins í
heild var neikvæð um 3.6 milljónir
króna en tap aðaldeildar var tæplega
4.9 milljónir á móti hagnaði félagsdeildar
um 1.3 milljónir. Framkvæmdastjórinn
fjallaði jafnframt um einstaka rekstrarliði
sem tóku eftirtektarverðum breytingum
á milli ára.
Skerpt á samskiptum
lögmanna við vitni
Samþykkt var tillaga laganefndar um
breytingu á 21. gr. siðareglna lögmanna
sem skerpir á samskiptum lögmanna
við vitni. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri
málsgrein 3. mgr. um heimild
lögmanns til að hafa samband við
vitni í máli til að kanna hvað það getur
borið um atvik og gera því kleift að
búa sig undir vitnaleiðslu. Sé um að
ræða vitni sem eru í sérstökum tengslum
við gagnaðila er lögmanni gert skylt
að tilkynna lögmanni gagnaðila áður
en haft er samband við vitnið, ef þess
er nokkur kostur, en ella jafn skjótt og
kostur er. Hafi lögmaðurinn samband
við vitni ber honum að gæta viðeigandi
tillitssemi og forðast að hafa áhrif á
framburð vitnisins.
Reglur um eftirlit með inn
heimtu starfsemi lögmanna
Þá var tillaga um staðfestingu reglna um
eftirlit með innheimtustarfsemi lögmanna
lögð fyrir fundinn og samþykkt en stjórn
félagsins hafði áður samþykkt reglurnar
sem byggja á 4., sbr. 3. mgr. 15. gr.
innheimtulaga nr. 95/2008.
Hækkun árgjalds
Að endingu var samþykkt tillaga um
hækkun árgjalds til skyldubundna
hlutans úr 49 þúsund krónum í 51
þúsund fyrir árið 2016.
Nýr formaður
Reimar Pétursson hrl. gaf einn kost
á sér til formennsku og var hann
kjörinn formaður félagsins til eins árs.
Í aðalstjórn til næstu tveggja ára voru
kosin þau Berglind Svavarsdóttir hrl. og
Árni Þór Þorbjörnsson hdl. en auk þeirra
sitja áfram í stjórn þeir Óttar Pálsson
hrl. og Jóhannes Rúnar Jóhannsson
hrl. Í þriggja manna varastjórn voru
kjörin þau Þórdís Bjarnadóttir hrl.,
Heiðrún Jónsdóttir hdl. og Arnar Þór
Stefánsson hrl. Gústaf Þór Tryggvason
hrl. og Othar Örn Petersen hrl. voru
endurkjörnir skoðunarmenn og Þorbjörg
I. Jónsdóttir hrl. til vara. Í laganefnd
voru kjörin Grímur Sigurðarson hrl.,
Eiríkur S. Svavarsson hrl., Marta Margrét
Ö. Rúnarsdóttir hdl., Stefán Andrew
Svensson hrl., Erla Pétursdóttir hdl.,
Einar Farestveit hdl. og Hildur Ýr
Viðarsdóttir hdl. Í stjórn námssjóðs voru
kjörin Erla S. Árnadóttir hrl., Áslaug
Árnadóttir hdl., Þórólfur Jónsson hrl.
og Finnur Magnússon hdl.
Kosning þriggja
heiðursfélaga
Á aðalfundinum voru kjörnir þrír
heiðursfélagar Lögmannafélagsins,
þeir Helgi V. Jónsson hrl., Jakob R.
Möller hrl. og Jóhann H. Níelsson hrl.
Allir hafa þeir unnið við góðan orðstír
að lögmennsku í fjölda ára og sinnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir félagið.
Helgi V. Jónsson hefur starfað við
lögmennsku í 54 ár en hann fékk
héraðsdómslögmannsréttindi árið
1961 og hæstaréttarlögmannsréttindi
árið 1976. Hann sat í stjórn LMFÍ 1979
1982, var varaformaður 19801981
og formaður 19811982. Þá var hann
varamaður í stjórn 19771979.
Jakob R. Möller fékk héraðsdóms
lögmannsréttindi árið 1991 og hæsta
réttar lögmannsréttindi árið 1995. Hann
sat í stjórn félagsins 19962000, var
varaformaður 19981999 og formaður
19992000. Þá sat hann í laganefnd
20002002.
Jóhann H. Níelsson fékk héraðs
dómslögmannsréttindi árið 1965 og
hæstaréttarlögmannsréttindi árið 1973.
Hann sat í stjórn LMFÍ 19811983, var
varaformaður 19811982 og formaður
19821983. Þá sat hann í stjórn námssjóðs
19902004.
Anna Lilja Hallgrímsdóttir
Aðalfundur Lögmannafélags Íslands