Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Síða 2
2 Fréttir 22. október 2012 Mánudagur
M
óðurfélag Landsbanka
Íslands, Samson, var
með stöðu gegn íslensku
krónunni á árunum 2007
og 2008. Í ársreikningum
félagsins fyrir þessi ár kemur fram
að félagið tapaði tæplega 16 millj-
örðum króna árið 2007 vegna þess
að krónan hélst sterkari en stjórn-
endur félagsins töldu og nærri 19,5
milljarða hagnaður á fyrstu sex
mánuðum ársins 2008 þegar krón-
an hrundi í verði. Í báðum tilfellum
var tapið og hagnaðurinn sem um
ræddi afleiðing af gengisvörnum fé-
lagsins sem Samson hafði gert með
afleiðusamningnum.
Orðrétt segir um þetta í árshluta-
uppgjöri Samsonar fyrir fyrstu sex
mánuði ársins 2008: „Félagið færir
afleiðusamninga á markaðsvirði og
því kemur fram tekjufærsla að fjár-
hæð 19.483 m.kr. sem að stórum
hluta er vegna veikingar íslensku
krónunnar á tímabilinu. Sem al-
þjóðlegt fjárfestingafélag beitir fé-
lagið gengisvörnum til að styðja
við eign félagsins í Landsbanka Ís-
lands hf. og draga úr gengisáhrifum
á eignir félagsins í evrum talið.“
Gengisvarnirnar voru hins vegar
svo miklar hjá Samson á þessum
tveimur árum að þær voru meira
en vörn fyrir 100 prósent af eigin fé
Landsbankans – 100 prósent vörn
á eigið fé Landsbankans árið 2007
hefði átt að þýða tap upp á 8 millj-
arða króna en í stað þess var tapið
tvöfalt hærra. Því var ekki um rétt-
nefndar gengisvarnir að ræða held-
ur stöðu með því að krónan lækkaði
mikið í verði.
Önnur staða
Á sama tíma og bankinn var með
þessa stöðu gegn krónunni, sem
byggði á því mati að krónan myndi
lækka í verði, byrjaði hann í auknum
mæli að selja viðskiptavinum sín-
um gengistryggð lán, meðal annars
húsnæðis- og bílalán sem tengd
voru gengi erlendra mynta. Slík lán
byggðu á þeirri hugmynd að lík-
legt væri að íslenska krónan héld-
ist áfram sterk í samanburði við er-
lendar myntir og því væri hagstætt
fyrir viðskiptavininn að gengis-
tryggja lánin.
Landsbankinn byrjaði í auknum
máli að lána viðskiptavinum sín-
um í erlendum gjaldmiðlum árið
2006 og hækkaði hlutfall erlendra
lána til einstaklinga um 400 prósent
á tveimur árum, samkvæmt skýr-
slu rannsóknarnefndar Alþingis.
Þar segir meðal annars í öðru bindi:
„Mynd 27 sýnir að í Landsbank-
anum jókst hlutur erlendra lána
til einstaklinga jafnt og þétt frá því
snemma árs 2006. Fór hlutfallið úr
um 5 % í upphafi þess árs í yfir 20 %
árið 2008. Eins og hjá Kaupþingi er
meirihluti erlendra lána í japönsk-
um jenum og svissneskum frönk-
um. Í öllum bönkunum þremur
jókst hlutur erlendra gjaldmiðla, sér
í lagi lágvaxtamynta, verulega í lán-
um til einstaklinga síðustu 2–3 árin
fyrir fall bankanna.“
Staðan er því þessi: Móðurfélag
Landsbankans var búið að veðja
á það með afleiðusamningum
að krónan myndi lækka umtals-
vert í verði á árunum 2007 og 2008
en bankinn seldi viðskiptavinum
sínum lán á sama tíma sem byggðu
á því að krónan myndi haldast sterk.
Segir hugtakanotkun óljósa
Á fimmtudaginn í síðustu viku féll
dómur í Hæstarétti Íslands sem fyrr-
verandi starfsmaður Björgólfs Thors
Björgólfssonar, aðaleiganda Lands-
bankans, höfðaði gegn þremur
starfsmönnum DV út af umfjöllun
blaðsins um stöðutöku hans gegn
íslensku krónunni á árunum 2006
og 2007 og tillögum hans til fyrir-
tækja Björgólfs um stórfellda stöðu-
töku gegn gjaldmiðli Íslands. Heið-
ar Már Guðjónsson var einn nánasti
ráðgjafi Björgólfs Thors um gjald-
miðlamál á árunum fyrir hrunið
og var framkvæmdastjóri hjá fjár-
festingarfélagi hans Novator.
Hæstiréttur sýknaði starfsmenn
DV af kröfum Heiðars Más og vísaði
meðal annars til þess að hann hefði
sjálfur notað hugtökin „stöðutaka“
og „skortsala“ á víxl um sama hlut-
inn í minnisblaði sem hann vann
fyrir fyrirtæki Björgólfs Thors þar
sem hann ráðlagði honum að taka
stöðu gegn íslensku krónunni í
hagnaðarskyni. Ein helsta röksemd
Heiðars Más í málflutningnum gegn
DV var að blaðið skyldi ekki muninn
á hugtökunum skortsölu og stöðu-
töku.
Þá hefur Heiðar haldið því fram
í viðtali við DV að hann sjálfur hafi
keypt sér tryggingar gegn falli krón-
unnar þar sem hann hafi talið að
krónan myndi lækka: „Þegar þú
býst við slysi, en ert með tryggingu,
viltu ekki að tryggingin renni út.
Það kostar hins vegar að tryggja sig,
og það er það sem við er átt með
„option bleed“. Krónan var að fara
að lækka, og við vildum takmarka
eins og hægt var tjónið af því. Á
árinu 2007 kostaði það mikið að
skulda í krónum, frekar en erlend-
um gjaldeyri. Það er það sem átt er
við með „blæðir“. Á hverjum degi
kostaði það mig mun meira að vera
með innlenda fjármögnun, en er-
lenda.“
Helsti ráðgjafi Björgólfs Thors
í gjaldmiðlamálum var því sjálfur
með stöðu gegn íslensku krónunni
auk þess sem móðurfélag Lands-
bankans var með slíka stöðu, á sama
tíma og Landsbankinn jók hlutfall
gengistryggðra lána til viðskiptavina
sinna um 400 prósent.
Benti á hagnaðartækifæri
Landsbankans
Orðrétt sagði Hæstiréttur um þetta:
„Hann [Heiðar Már, innskot blaða-
manns] hefur í málflutningi sínum
lagt áherslu á að skýra verði hugtök-
in skortsala og stöðutaka rétt og sé
það gert verði ekki ráðið af minn-
isblaðinu að hann hvetji til árása
á íslensku krónuna. Af minnis-
blaðinu verður ekki séð að hugtök
þessi séu notuð í skýrt aðgreindri
merkingu. Þar segir meðal annars:
,,Straumur, Landsbanki og Sam-
son skortselja ISK, hver fyrir sig sem
samsvarar 30–50 milljörðum eft-
ir því á hvaða verðum við fáum það
gert. Búast við 20% hagnaði af 100
milljarða stöðu, eða 20 milljörðum.
Kaupa verðtryggingu fyrir 20–30
milljarða á íslenskum skuldabréfa-
markaði. Kaupa einnig verðtryggð
skuldabréf fyrir svipaða fjárhæð.
Búast við 10% verðhækkun á 40
milljarða stöðu, eða 4 milljörðum. Í
heildina væri í mesta lagi um ríflega
30 milljarða hagnað af skortstöðum
að ræða. Þetta væri hreinn hagnað-
ur, óháður áhættustýringarsjónar-
miðum. Langmest hagnaðartæki-
færi er í íslensku krónunni.“ Síðar í
minnisblaðinu segir: ,,Novator tek-
ur skortstöðu fyrir tæplega 50 millj-
arða króna.“ Af því sem segir síðar í
minnisblaðinu verður ekki annað
séð en þessi „skortstaða“ hafi átt við
um íslensku krónuna enda sérstak-
lega gerð grein fyrir því að aðrar fjár-
festingarheimildir Novator séu háð-
ar takmörkunum. Verður fallist á þá
niðurstöðu héraðsdóms að þessi
gögn séu, í ljósi þess tjáningarfrels-
is sem játa verður gagn áfrýjendum
um málefnið, nægilegur grundvöll-
ur fyrir ummælunum og að gagná-
frýjendum verði ekki gert að færa
fyrir þeim frekari sönnur.“
Viðskiptavinir hafa skoðað
stöðu sína
Jóhannes Árnason, héraðsdóms-
lögmaður hjá Cato í Borgartúni
sem unnið hefur fyrir einstaklinga
sem tóku gengistryggð lán, segir að
Bankinn tók stöðu gegn
viðskiptavinum sínum
n Hæstiréttardómur um stöðutöku Heiðars Más n Gengistryggð lán jukust um 400 prósent„Af minnisblað-
inu verður ekki
séð að hugtök þessi
séu notuð í skýrt að-
greindri merkingu
Ráðgjafi Björgólfs Ráðgjafi
Björgólfs Thors í gjaldmiðlamál-
um, Heiðar Már Guðjónsson, var
sjálfur með stöðu gegn krónunni og
ráðlagði fyrirtækjum Björgólfs að
taka slíka stöðu. Á sama tíma jukust
gengistryggð lán til viðskiptavina
Landsbankans um 400 prósent.
Samson með stöðu Samson, móðurfélag Landsbankans, hagnaðist um nærri 20
milljarða á fyrsta helmingi ársins 2008 vegna falls íslensku krónunnar. Björgólfur Thor
Björgólfsson var stærsti hluthafi Samsonar.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is