Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Qupperneq 13
Afdrif GAddAfi-fjölskyldunnAr
Krónprins vogunarsjóðanna hættur
n Greg Coffey hættur 41 árs að aldri n Auðævi hans metin á 85 milljarða
Á
stralinn Greg Coffey er sestur í
helgan stein þrátt fyrir að vera
einungis 41 árs. Ástæðan fyr-
ir þessu er góð og gild enda
er Coffey með þeim ríkustu í heimi.
Auðævi hans eru metin á 430 millj-
ónir punda, eða rúmlega 85 milljarða
króna.
Þessi ungi Ástrali þykir um margt
sérstakur. Hann lagði grunninn að auð
sínum með vogunarsjóðum og þénaði
ótrúlegar upphæðir á tiltölulega stutt-
um ferli sínum í viðskiptum. Hann
naut mikillar virðingar í fjármálaheim-
inum og var stundum nefndur krón-
prins vogunarsjóðanna. Hann hef-
ur lengst af búið í Bretlandi en hann
tilkynnti viðskiptafélögum sínum á
dögunum að hann ætlaði sér að eyða
meiri tíma með fjölskyldu sinni og í
heimalandi sínu.
Coffey, sem gekk undir Töframað-
urinn, tók vinnuna með sér hvert sem
hann fór. Hann lét til að mynda flytja
fyrir sig tölvur, tölvuskjái og fleira er
hann fór í frí með fjölskyldu sinni á
hótel og réð menn í vinnu til að setja
allan nauðsynlegan búnað upp til að
geta fylgst með mörkuðum. Þá gerði
hann þá kröfu að fá alltaf rjúkandi heit-
an kaffisopa á skrifstofu sína á morgn-
ana. Skipti þá engu máli hvort hann
var við eða ekki. Kaffið varð að koma.
Árið 2008 stóð honum til boða að fá
250 milljónir dala, rúma þrjá milljarða,
fyrir að halda áfram störfum sínum
fyrir vogunarsjóðinn GLG Partners.
Hann hafnaði hins vegar tilboðinu og
kom öllum á óvart.
Það ætti hins vegar ekki að væsa
um Coffey næstu árin og áratugina.
Hann á glæsihús úti um allar triss-
ur, meðal annars í London og
Sydney. Þá keypti hann sögufræga
eign á einni ey í Suðureyjaklasan-
um við Skotland fyrir 3,5 milljón-
ir dala, 430 milljónir króna. Coffey
ætti að minnsta kosti ekki að hafa
áhyggjur af peningamálum það
sem eftir er. n
Erlent 13Mánudagur 22. október 2012
n Eitt ár liðið frá dauða Muammars Gaddafi n Litið á hver afdrif nánustu aðstandenda og bandamanna Gaddafis voru
Talsmaðurinn:
Musa Ibrahim
Afar lítið er vitað um afdrif Musa
Ibrahim sem gegndi stöðu tals-
manns líbísku ríkisstjórnarinnar.
Hann var náinn samstarfsmaður
Gaddafis og hafði í nógu að snú-
ast við að slökkva elda þegar upp-
reisnin geisaði í landinu. Hann
hélt daglega blaðamannafundi
þar sem hann reyndi að sann-
færa blaðamenn um að uppreisn-
in væri tímabundið vandamál –
jafnvel eftir að uppreisnarmenn
náðu tökum á Trípólí. Musa
Ibrahim var skyldur Gaddafi en
hann stundaði nám í Bretlandi
um langt skeið og er sagður hafa
búið í Lundúnum í 15 ár. Síðast
sást til hans í Trípólí í þann mund
sem uppreisnarmenn náðu þar
tökum. Misvísandi upplýsingar
hafa borist um afdrif hans, með-
al annars þær að hann hafi ver-
ið handtekinn. Svo er hins vegar
ekki og enn sem komið er virðist
enginn vita hvað varð um Musa
Ibrahim.
Utanríkisráðherrann:
Musa Kusa
Musa Kusa var einn nánasti sam-
starfsmaður Gaddafis og gegndi
embætti utanríkisráðherra og yfir-
manns leyniþjónustunnar. Hann
snéri hins vegar baki við vini sín-
um í mars 2011, átta mánuðum
áður en Gaddafi var veginn, fór
til Túnis og flaug þaðan til Bret-
lands. Stjórnvöld í Bretlandi neit-
uðu að veita honum friðhelgi og fór
svo að hann yfirgaf landið og hélt
til Katar. Kusa er sagður búa þar í
góðu yfirlæti og er hann stuðnings-
maður nýrrar ríkisstjórnar. Kusa
var yfirmaður leyniþjónustu Líbíu
árin 1994 til 2009 en þá tók hann
við embætti utanríkisráðherra.
Rannsókn fréttaskýringarþáttar-
ins Panorama á BBC leiddi í ljós að
hann, í eigin persónu, pyntaði fanga
og tók þátt í fjöldamorðunum í Abu
Salim-fangelsinu árin 1996 þar sem
1.200 manns voru drepin. Hann
hefur þrætt fyrir þessar ásakanir.
Þá hefur hann lýst því yfir að hann
hafi enga vitneskju um hver stóð að
baki sprengingu í farþegaflugvél yfir
Lockerbie í Skotlandi árið 1988.
Eitt ár Muammar Gaddafi var
veginn í Sirte þann 20. október
2011. Síðan þá hefur fjölskylda
hans tvístrast og langflestir eru
farnir frá Líbíu. Mynd REutERs
Löðrungaður
ef hann notar
Facebook
Bandarískur tölvunarfræðingur
hefur fundið athyglisverða leið til
að auka afköst sín í vinnunni. Mað-
urinn, Manees Sethi, auglýsti eftir
einstaklingi á smáauglýsingavefn-
um Craigslist til að fylgjast með sér í
vinnunni. Átti viðkomandi að sjá til
þess að hann myndi ekki nota Face-
book í vinnunni gegn því að fá sem
samsvarar þúsund krónum á tím-
ann. Ef hann myndi nota Facebook
ætti viðkomandi að gefa honum
einn þéttingsfastan löðrung. Það
leið ekki á löngu þar til ung kona,
Kara að nafni, hafði samband og
bauðst til að taka starfið að sér. Hún
sinnir starfi sínu af alúð og lætur
Sethi finna fyrir því ef hann brýtur
regluna um Facebook-notkunina.
Sathi segir að hann hafi í raun
skammast sín þegar hann komst
að því að hann eyddi að meðaltali
19 klukkustundum í hverri viku á
Facebook. Þess vegna hafi hann
ákveðið að fara þessa leið til að
auka afköst sín.
Algjör þvæla
Breskir fjölmiðlar féllu í gildru í síð-
ustu viku þegar þeir greindu frá því
að til stæði að opna nýjan sæðis-
banka í Bretlandi, The Fame Daddy.
Átti sæðisbankinn eingöngu að taka
við sæði frá frægum einstakling-
um; íþróttamönnum, leikurum og
tónlistarmönnum og áttu konur að
geta nálgast það gegn því að greiða
fimmtán þúsund pund, eða tæpar
þrjár milljónir króna. Þetta reyndist
hins vegar allt saman vera uppspuni
frá rótum. Stofnandi fyrirtækisins,
Dan Richards, kom meðal annars
fram í sjónvarpsviðtölum þar sem
hann lýsti stefnu sæðisbankans.
Hann viðurkenndi síðar að þetta
væri allt saman hrekkur og hann
væri í raun að starfa fyrir ónefnt
sjónvarpsfyrirtæki. „Þetta var svo
sannarlega ótrúlega saga,“ sagði
Phillip Schofield hjá ITV-sjónvarps-
töðinni en stöðin var ein þeirra sem
tók viðtal við Richards. Félagi Ric-
hards hjá ITV tók undir þetta: „Það
var eitthvað bogið við þetta, þetta
var svo ótrúlegt.“
Snyrtivörur
hjálpuðu í
veikindunum
Þrettán ára stúlka sem barist hefur
við krabbamein um langt skeið,
hefur verið gerð að heiðursandliti
snyrtivörufyrirtækisins Cover Girl.
Talia Joy Castellano var opinská um
krabbameinsbaráttu sína á Youtu-
be og vakti heimsathygli, en mynd-
bandið hefur verið spilað fjórtán
milljón sinnum. Það var spjall-
þáttadrottningin Ellen Degeneres
sem sagði Taliu þessi tíðindi í sjón-
varpsviðtali á dögunum, en Ellen
hefur sjálf verið andlit auglýsinga-
herferðar Cover Girl. Á sunnu-
dag var auglýsingin svo afhjúpuð,
Taliu til mikillar gleði, en hún fékk
sérstakan áhuga á snyrtivörum
þegar hún missti hárið í krabba-
meinsmeðferðinni og fjalla mörg
myndbönd hennar einmitt um það.
Milljarðamær-
ingur Coffey hefur
ákveðið að hætta
störfum. Hann á
glæsieignir víða.