Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Qupperneq 18
Heldur Hún
framHjá þér?
Nærðu heilann
n Mataræði dregur úr einkennum sjúkdóma
Þ
að er ekki nóg að vera dug-
legur í ræktinni og huga að
líkamlegri heilsu. Það sem
við borðum og gerum hefur
nefnilega líka áhrif á heilann. Ef við
gætum þess að borða rétt getum við
komið í veg fyrir eða dregið úr lík-
um á því að við þróum með okkur
ýmsa sjúkdóma sem hafa áhrif á
heilastarfsemina. Hér eru dæmi
um matvæli sem eru góð fyrir heil-
ann.
Borðaðu að minnsta kosti tvær
fiskmáltíðir á viku. Fiskurinn er
ríkur af omega-3 fitusýrum sem eru
nauðsynlegar fyrir virkni heilans. Ef
þú borðar nóg af fiski dregur þú úr
líkum á elliglöpum og heilablóðfalli
og bætir jafnframt minnið.
Ef þú vilt skerpa athyglina er
gott að borða súkkulaði og hnetur.
Þá hafa rannsóknir sýnt fram á að
ef þú borðar um þrjátíu grömm af
hnetum eða fræjum á dag þá get-
ur þú hægt á vitsmunalegri hrörn-
un. Þá eru bláber ekki bara ljúffeng
heldur eru þau einnig talin draga úr
einkennum Alzheimer og elliglapa.
Hin ýmsu krydd eru einnig talin
geta gert kraftaverk. Það hefur til
dæmis sýnt sig að kanill jafnar
blóðsykurinn, hvítlaukur, óreganó
og rósmarín auka blóðflæði til heil-
ans, karrí virkar bólgueyðandi og
saffran getur virkað sem náttúru-
legt þunglyndislyf.
Margir líta á brauðmeti sem al-
gjöra bannvöru en gróft heilkorna-
brauð getur gert þér ýmislegt gott.
Heilkorn er talið jafna glúkósann í
blóðinu sem gefur þér aukna orku
og einbeitingu. n
18 Lífsstíll 22. október 2012 Mánudagur
Bætt lífsgæði
á efri árum
Flestir vilja lifa löngu og góðu lífi en til
að bæta lífsgæði seinna á ævinni er
mikilvægt að fara vel með sig á yngri
árum. Hér eru nokkur ráð sem vefsíð-
an NaturalNews gefur lesendum og
um þau gildir í raun almenn skynsemi.
Það er þó alltaf gott að láta minna
mann á þessi atriði sem hjálpa til við
að bæta lífsgæðin:
1 Drekktu meira vatn Um það bil 60 prósent af líkama
okkar eru vatn og því er vatn í hverri
einustu frumu. Við getum ekki komist
af án vatns lengur en í nokkra daga.
Þegar við eldumst minnkar þorstatilf-
inning okkar og því þjáist fjöldi eldra
fólks að einhverju leyti af vökvaskorti.
Hann hefur verið tengdur við ofnæmi,
háþrýsting, almenna verki og sárs-
auka og slæma meltingu.
2 Borðaðu hollan mat Hægara sagt en gert fyrir suma
en hollt mataræði er mikilvægt fyrir
vellíðan. Fersk, óunnin, lífræn og helst
hrá matvæli ættu að vera stór hluti af
mataræði okkar.
3 Öldrunaráhrif sykurs Sykur veldur því að líkaminn
framleiðir mikið magn af insúlíni.
Insúlín og streituhormónið kortisól
eru tvö hormón sem geta verulega
flýtt fyrir öldrun. Sykur bælir ónæm-
iskerfið og stuðlar að æðakölkun auk
annarra áhrifa. Með öðrum orðum;
sykur hefur öldrunaráhrif.
4 Hreyfðu þig Hreyfing er eitt aðalvopnið gegn ótíma-
bærri öldrun. Fjölmargar rannsóknir
hafa sýnt fram á að regluleg hreyfing
hjálpar til við að koma í veg fyrir
langvinna sjúkdóma en hefur auk
þess jákvæð áhrif á andlega líðan.
Með hreyfingu eykur þú súrefnisflæði
til heila, hjarta og annarra líffæra sem
veitir vellíðan.
5 Afeitrun Líkaminn losar sig við eiturefni í gegnum húð
og önnur líffæri. Þú getur hjálpað
líkamanum við þessa hreinsun með
því að breyta um lífsstíl. Reyndu að
drekka mikið af hreinu vatni, borðaðu
lífrænan mat, reyndu að komast
hjá mengun í lofti, ekki anda að þér
tóbaksreyk og takmarkaðu neyslu
á áfengi, koffíni, sykri og unnum
matvælum. Þetta eru nokkur atriði
sem þú haft í huga.
6 Fáðu sól á kroppinn Við fáum D-vítamín frá sólinni
en það styrkir ónæmiskerfið. D-
vítamínskortur getur haft alvarlegar
afleiðingar svo sem krabbamein,
sykursýki, aukna hættu á hjartasjúk-
dómum, hjartaáfalli og þunglyndi.
7 Fáðu nægan svefn Góður svefn er nauðsynlegur
og sumir segja hann besta vopnið
gegn öldrunareinkennum. Þegar við
sofum þá hleður líkaminn rafhlöður
sínar. Svefnraskanir hafa slæm
áhrif á heilsu okkar, sér í lagi and-
lega heilsu og aukaverkanir geta
verið minnisleysi, þyngdaraukning
eða -tap og aukin hætta á sykur-
sýki og hjartasjúkdómum. Skortur
á svefni veikir einnig ónæmiskerfi
okkar. Bláber Ekki bara ljúffeng, heldur talin draga úr einkennum Alzheimer og elliglapa.
F
ramhjáhald er sjaldan eitt-
hvað sem gerist „óvart“. Oft-
ast hafa tilfinningarnar farið
á flakk út úr sambandinu yfir
einhvern tíma áður en eitt-
hvað gerist. Blaðamaður netmið-
ilsins askmen.com bjó til lista yfir
þau atriði sem karlmenn ættu að
huga að ef þeir telja maka sinn hafa
óhreint mjöl í pokahorninu. Ekki láta
hana fífla þig. Ef þú sérð fleiri en eitt
af eftir farandi merkjum eru miklar
líkur á að hún eigi í sambandi við
annan mann en þig.
Hún er með hann á heilanum
Einhverra hluta vegna heyrir þú
sama nafnið aftur og aftur þegar þið
ræðið saman. Matti þetta, Matti hitt.
Það gæti verið vinnufélagi, vinur eða
einkaþjálfarinn hennar. Alveg sama
hvað þið talið um virðist Matti alltaf
hafa upplifað það sama.
Þú: „Ástin mín, við ættum að fara
í bíó á nýju hasarmyndina.“
Hún: „Matti sá hana. Hún er víst
frábær.“
Þú: „Ég er búinn að vera svo
þreyttur upp á síðkastið. Kannski
maður ætti að fara að taka vítamín.“
Hún: „Ég var einmitt að segja það
sama við Matta.“
Ekki fara á límingunum þótt þú
heyrir hana minnast á vinnufélaga
eða vin einstöku sinnum en ef þér
finnst þú hafa heyrt of mikið um
þennan Matta eða einhvern annan
þá skaltu hugsa þinn gang. Af hverju
getur hún ekki hætt að hugsa um
hann?
Hún leyfir þér að anda
Þótt sumir makar verði hreint og
beint uppáþrengjandi skaltu ekki
fagna því sem láni ef kærastan þín
heimtar að þú hafir þinn einkatíma
og -rými. Það getur verið of mikið
af hinu góða. Ef kærastan tekur u-
beygju í þessum málum og vill allt í
einu ýta þér út um dyrnar svo þú get-
ir verið með vinunum en talar aldrei
um að þið eyðið ekki nógu miklum
tíma saman gæti það verið merki um
að eitthvað sé ekki í lagi.
Auðvitað er afar heilbrigt fyrir
ástarsamband að báðir aðilar haldi
áfram að eiga sitt eigið líf. Passaðu
bara að hún sé ekki komin með nýtt
áhugamál – ungan heitan fola.
Hún vill rífast
Þú keyptir ekki rétta tegund af kló-
settpappír eða ert fimm mínútum of
seinn að hringja í hana og hún gjör-
samlega brjálast. Ef svo virðist sem
hún noti hvert tækifæri til að ríf-
ast við þig gæti það verið merki um
undirliggjandi vandamál og óánægju
í sambandinu.
Með því að draga þig inn í
hringinn gæti hún verið að leita eftir
viðbrögðum frá þér. Ef þú æsir þig
og rífst til baka sefar þú samvisku-
bitið sem hún er haldin út af fram-
hjáhaldinu. Hún á léttara með að
horfast í augu við sjálfa sig ef þú ert
enginn engill sjálfur. Þannig jafnar
hún leikinn að sínu mati. Það besta
sem þú getur gert er að æsa þig ekki.
Ekki leyfa henni að rugla í þér svo þú
komir út sem sá vondi.
Hún er dularfyllri
Leyndardómur er góður – í litlum
skömmtum. Það er ekki góð tilfinn-
ing þegar makinn heldur lífi sínu frá
þér, svarar þér í einu orði þegar þú
spyrð hvernig dagurinn hafi verið
og lætur þér líða eins og hann nenni
ekki að tala við þig.
Ef hún er vanalega sú ræðna en
hefur allt í einu lokað á þig gæti ver-
ið eitthvað að. Annað merki er ef
hún er hætt að svara símanum sín-
um á ákveðnum tíma. Er hún farin
að hverfa á kvöldin eða í miðri viku
og gefur hún þér óljósar útskýringar
á ferðum sínum á borð við: „ég varð
aðeins að skjótast“ eða „það kom
svolítið upp á“?
Hún sýnir þér minni ástúð
Ef annar maður á huga hennar eru
allar líkur á að hún hafi dregið sig
líkamlega í burtu frá þér. Hún snert-
ir þig kannski minna og þið stundið
sjaldnar kynlíf. Mundu samt að kyn-
lífsleysi gæti stafað af öðrum orsök-
um.
Hefur kynlíf ykkar tekið meiri
háttar breytingum? Skoðaðu málið
en reyndu að halda ró þinni. n
n Lærðu að þekkja merkin sem margar konur skilja eftir sig
Framhjáhald?
Þú skalt hafa nokk-
ur í atriði í huga ef
þig grunar að konan
haldi framhjá þér.