Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Qupperneq 20
Komnar langleiðina á EM
n Frábær sigur kvennalandsliðsins gegn Úkraínu
Ó
líkt sumum öðrum landslið
um sem keppa fyrir Íslands
hönd þarf enginn að skamm
ast sín fyrir íslenska kvenna
landsliðið í knattspyrnu. Þær halda
áfram að standa sig stórkostlega. Þær
gerðu sér lítið fyrir og unnu fyrri viður
eign sína gegn Úkraínu um helgina
2–3 á erfiðum útivelli með mörkum
þeirra Katrínar Ómarsdóttur, Hólm
fríðar Magnúsdóttur og Margrétar
Láru Viðarsdóttur. Íslenska liðið hef
ur því æði gott veganesti fyrir seinni
viðureign sína á Laugardalsvellinum á
fimmtudaginn kemur en góð úrslit þar
þýða að liðið tekur þátt í Evrópumótinu
sem fram fer í Svíþjóð næsta sumar.
Sigur gegn sterku landsliði Úkraínu
á útivelli var aldrei fyrirfram gefin
niðurstaða enda það landslið í sterkari
kantinum að mati Sigurðar Ragnars
Eyjólfssonar, þjálfara íslenska liðsins.
Sérstaklega ekki með tilliti til þess
að um langan veg var að fara fyrir
stelpurnar en leikurinn fór fram í
borginni Sevastopol við Svartahafið.
Reyndust íslensku leikmennirnir
örlítið ryðgaðir á æfingu fyrir leikinn
sökum þess. Engu að síður komust
þær íslensku 0–2 yfir í leiknum áður
en heimastúlkur jöfnuðu í 2–2. Það
var svo markahrókurinn Margrét Lára
Viðarsdóttir sem skoraði þriðja mark
Íslands sem reyndist verða sigur
markið í leiknum. Hefur Margrét Lára
fært töluverðar fórnir til að geta spil
að með landsliðinu síðustu leikina en
hún hefur ítrekað frestað nauðsynleg
um aðgerðum til að geta hjálpað því.
Það gerði hún sannarlega um helgina
og var reyndar óheppin að skora ekki
fleiri mörk. n
20 Sport 22. október 2012 Mánudagur
L
iðin helgi var risastór fyrir stór
stjörnu Barcelona, Leo Messi.
Ekki aðeins eignaðist hann son
heldur og bætti hann marka
met sitt á einu ári og þarf aðeins
að skora fjögur mörk til viðbótar til
áramóta til að jafna yfir 50 ára gam
alt markamet brasilíska snillingsins
Pelé.
Messi var sem fyrr lykilmað
ur í liði Barcelona sem vann verð
skuldaðan 4–5 útisigur á Deporti
vo í spænsku deildinni en í leiknum
skoraði Argentínumaðurinn þrennu.
Er það hvorki meira né minna en
þriðja þrenna hans í treyju kata
lónska liðsins frá upphafi og mesti
fjöldi marka sem hann hefur skor
að á ársgrundvelli frá upphafi. Fyrra
met setti hann 2010 en það ár skor
aði hann 58 mörk alls fyrir félagslið
sitt og landslið.
Nú er markafjöldinn frá áramót
um kominn í 59 mörk með Barcelona
og tólf önnur með landsliði Argent
ínu eða samtals 71 mark. Hingað til
hefur snillingurinn Pelé hangið á
þessu ákveðna markameti en hann
skoraði alls 75 mörk með félagsliði
sínu Santos og brasilíska landsliðinu
árið 1959. Er þar miðað við árið sjálft
en ekki keppnistímabilið per se.
Sé litið til þess að kappinn hef
ur ferðast heil ósköp síðustu daga
og vikur og spilaði meðal annars tvo
landsleiki með Argentínu fyrr í vik
unni þykja afrek hans enn merkilegri
því oftar en ekki er ferðaþreytu kennt
um þegar lítið ber á markahrókum í
leikjum. n
Messi að kafsigla Pelé
n Lionel Messi á mikilli siglingu nú um stundir
Snillingur með stóru essi Messi mun að óbreyttu bæta markamet Pelé frá árinu 1959.
Síðasti þröskuldurinn Kvennalandsliðið íslenska þarf einn góðan leik til viðbótar til að
tryggja sér endanlega þátttökurétt á Evrópumóti landsliða næsta sumar.
Guardiola að
snúast hugur?
Ef marka má sóknarmanninn
Luca Toni þá er Pep Guardiola,
fyrrverandi þjálfari og leikmað
ur Barcelona, reiðubúinn að taka
að sér þjálfun á nýjan leik og á
Pep að hafa forvitnast um Bayern
München af öllum liðum. Frá
þessu skýrir Toni í þýska blað
inu Bild en Toni og Guardiola
eru ágætir vinir. Fréttirnar eru
engu að síður á skjön við það
sem Guardiola sjálfur hefur sagt
undanfarna mánuði en hann er í
sjálfskipaðri útlegð frá boltanum
og ætlaði að vera það fram á næsta
sumar hið minnsta.
Miðaverð of
hátt í Englandi
Vaxandi óánægja er meðal
stuðningsmanna knattspyrn
ufélaga í Englandi á
sífellt hærra miða
verði á stærri leiki.
Íþróttadeild BBC
hefur reiknað út
að meðalverð á
ódýrasta miða sem
fæst á leiki hjá stærri
liðum í landinu sé í kringum
5.800 krónur sem er um 800
krónum hærra en það var á síð
ustu leiktíð. Það skýtur einnig
skökku við með tilliti til þess
að félög í úrvalsdeildinni fengu
mun betri sjónvarpssamn
ing fyrir þessa leiktíð en verið
hefur og telja stuðningsmenn
eðlilegt að þeir njóti þess líka í
lægra miðaverði. Ekkert bólar
hins vegar á slíku hjá forráða
mönnum félaganna.
Úrslit
Enska úrvalsdeildin
QPR - Everton 1–1
1–0 Hoilett (2.), 1–1 Cesar sjm. (33.)
Sunderland - Newcastle 1–1
0–1 Cabaye (3.), 1–1 Ba sjm. (86.)
Norwich - Arsenal 1–0
1–0 Holt (19.)
Tottenham - Chelsea 2–4
0–1 Cahill (17.), 1–1 Gallas (47.), 2–1 Defoe (54.), 2–2
Mata (66.), 2–3 Mata (69.), 2–4 Sturridge (90.)
Fulham - Aston Villa 1–0
1–0 Baird (84.)
Liverpool - Reading 1–0
1–0 Sterling (29.)
Man Utd - Stoke 4–2
0–1 Rooney sjm. (11.), 1–1 Rooney (27.), 2–1 Persie
(44.), 3–1 Welbeck (46.), 3–2 Knightly (58.), 4–2
Rooney (65.)
Swansea - Wigan 2–1
1–0 Pablo (65.), 2–0 Michu (67.), 2–1 Boyce (69.)
WBA - Man City 1–2
1–0 Long (67.), 1–1 Dzeko (80.), 1–2 Dzeko (90.)
West Ham - Southampton 4–1
1–0 Noble (46.), 2–0 Nolan (48.), 2–1 Lallana (63.),
3–1 Noble v. (72.), 4–1 Maiga (87.)
Staðan
1 Chelsea 8 7 1 0 19:6 22
2 Man.Utd. 8 6 0 2 21:11 18
3 Man.City 8 5 3 0 17:9 18
4 Everton 8 4 3 1 15:9 15
5 Tottenham 8 4 2 2 15:12 14
6 WBA 8 4 2 2 12:9 14
7 West Ham 8 4 2 2 12:9 14
8 Fulham 8 4 1 3 16:11 13
9 Arsenal 8 3 3 2 13:6 12
10 Swansea 8 3 2 3 14:12 11
11 Newcastle 8 2 4 2 9:12 10
12 Liverpool 8 2 3 3 10:12 9
13 Stoke 8 1 5 2 8:9 8
14 Sunderland 7 1 5 1 6:8 8
15 Norwich 8 1 3 4 6:17 6
16 Wigan 8 1 2 5 8:15 5
17 Aston Villa 8 1 2 5 6:13 5
18 Southampton 8 1 1 6 13:24 4
19 Reading 7 0 3 4 8:14 3
20 QPR 8 0 3 5 7:17 3
E
nginn þarf að vera sérstaklega
getspakur til að spá fyrir um að
Glasgow Celtic muni vart hafa
erindi sem erfiði á Nou Camp
í Barcelona á morgun þegar
liðin mætast í Griðli Meistaradeildar
Evrópu. Skotarnir hafa aldrei nokkurn
tímann unnið á útivelli á Spáni í þeirri
keppni meðan tölfræði heimamanna
sýnir að Barcelona hefur þar unnið
sigur í fjórtán af sautján síðustu viður
eignum sínum í Meistaradeildinni.
Leikur Barcelona og Celtic í Griðli
er meðal skemmtilegri leikja sem fram
fara í þriðju umferð Meistaradeildar
innar þetta árið en deila má um hversu
spennandi sú viðureign er líkleg til að
verða. Sigri lið Barcelona verður liðið
með fullt hús stiga í riðlinum að þrem
ur umferðum loknum og strax komið
með fimm stiga forskot á næsta lið á
eftir.
Erfiður útileikur Chelsea
Öllu flóknari leikur að spá um verður
viðureign Shaktar Donetsk og Chelsea
en þessi tvö lið eru efst og jöfn í Eriðli
Meistaradeildarinnar með fjögur stig
hvort. Ríkjandi meistarar Chelsea
hafa aldeilis verið að finna fjölina í
ensku úrvalsdeildinni og gerist leikur
liðsins betri dag frá degi. Má telja lík
legt að leikmenn þess verði hæfilega
hátt upp í Úkraínu eftir 2–4 sannfær
andi útisigur á Tottenham um helgina
en Chelsea hefur aldrei mætt liði frá
Úkraínu áður í Meistaradeildinni.
Shakhtar hins vegar hefur áður kom
ið enskum liðum á óvart í Meistara
deildinni og síðast liði Arsenal árið
2010. Á meðan þessi tvö eigast við
mætir ítalska stórliðið Juventus til
leiks á Sjálandi gegn Nordsjælland
og þó Danirnir hafi sýnt ágæta takta í
keppninni verður ólíklegt að teljast að
þeir hirði mörg stig af Ítölunum.
Hreinn göngutúr fyrir United?
Á Old Trafford í Manchester mæta
heimamenn portúgalska liðinu Braga
og fer litlum sögum af öðru en hugs
anlegum stórsigri þeirra ensku í þeim
leik. Spár á vef UEFA sýna að 92 pró
sent þátttakenda telja auðveldan sigur
framundan hjá United en leikmenn
Alex Ferguson eru þegar efstir í Hriðli
með fullt hús stiga eftir tvær umferð
ir og eitthvað mikið og merkilegt má
ganga á endi liðið ekki efst í þeim riðli.
Ekkert er þó gefið í fótboltanum og
þó United hafi aldrei tapað á heima
velli gegn portúgölskum mótherjum í
keppninni þá hafa Portúgalarnir kom
ið nokkuð á óvart hingað til. Ekki síst
með 0–2 sigri gegn Galatasaray í Tyrk
landi í síðasta leik sínum.
Hinn undarlegi F-riðill
BATE Borisov frá HvítaRússlandi
situr á toppi Friðils fyrir leiki
morgundagsins með fullt hús stiga
og kemur eflaust einhverjum á
óvart enda önnur lið riðilsins Ba
yern München, Valencia og Lille
frá Frakklandi. Frakkarnir taka á
móti Bæjurum en þeir frönsku eru
stigalausir eftir fyrstu tvo leiki sína
og þurfa stig ætli þeir sér eitthvað
á þessu móti. Á meðan tekur BATE
á móti Spánverjunum sem eiga að
teljast sterkari á pappírunum og
telja veðbankar flestir að tölfræði
BATE versni til muna eftir viður
eignina annað kvöld. n
n Þriðja umferð Meistaradeildar Evrópu á morgun n Erfitt hjá Chelsea en talið auðvelt hjá United
HEFÐBUNDIN TEIKN Á LOFTI
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is Meistaradeildin
á morgun
Spartak Moskva - Benfica
Nordsjælland - Juventus
Lille - Bayern
Barcelona - Celtic
Shakhtar Donetsk - Chelsea
BATE - Valencía
Galatasaray - Cluj
Man Utd - Braga
Algeng sjón Barcelona
er í efsta sætinu heima
fyrir á Spáni og getur
tekið afgerandi forystu
í sínum riðli í Meistara-
deildinni á morgun.