Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Side 23
Fólk 23Mánudagur 22. október 2012 Kann ekkert á vont veður n Regína Ósk heldur persónulega tónleika ásamt fríðu föruneyti S öngkonan Regína Ósk Óskars­ dóttir hefur nú sagt skilið við Frostrósahópinn og heldur með sitt eigið tónleikateymi í jólatónleikaferðalag um landið í nóv­ ember og desember undir yfirskrift­ inni Jólin alls staðar. Hún hélt þó einnig sína eigin jólatónleika í fyrra, ásamt því að syngja með Frostrós­ um. Sú tónleikaröð var mun smærri í sniðum og hálfgert fjölskylduverk­ efni. Nú hefur Regína fengið til liðs við sig meðal annars Guðrúnu Gunnars­ dóttur, Guðrúnu Árnýju Karlsdóttur og Jogvan Hansen. Það vekur athygli að hópurinn mun eingöngu koma fram í kirkjum víðs vegar um landið. „Mér finnst það bara svo jólalegt og maður er svo ná­ lægt fólkinu,“ segir Regína aðspurð af hverju það hafi verið ákveðið. „Ég fíla að syngja og spila fyrir fólk sem er svolítið nálægt, það er svo persónu­ legt. Við tölum við tónleikagesti og segjum frá lögunum.“ Regína segir það hafa verið mikið kappsmál hjá hópnum að vera með tónleika í öllum lands­ hlutum og sú áætlun virðist ætla að ganga upp. „Við erum að fara á staði þar sem ekki eru tónleikar á hverjum degi og það finnst mér svo skemmtilegt.“ Á tónleikastöð­ um fá þau svo barnakóra til liðs við sig og Regína segir það mynda mjög skemmtilega stemningu í bæjunum. Það eina sem hún kvíðir er hugs­ anlega veðrið. „Það var svaka veður sem við lentum í á leiðinni til Seyðis­ fjarðar í fyrra og við förum aftur þang­ að núna svo ég vona innilega að við fáum gott veður. Þetta hefur pínu áhrif á mann sjálfan og það að setja upp og svona, en þegar tónleikarn­ ir byrja þá skiptir þetta engu máli. Þá fer ég bara í eitthvað sem ég kann, ég kann ekkert að vera í svona vondu veðri. Og sem betur fer er ég ekki að keyra. Ég myndi ekki óska neinum þess að ég væri að keyra þarna,“ segir Regína og skellir upp úr. Hún viður­ kennir að það reyni á sig andlega að vera í vondu veðri. Miðasala á tónleikana hófst fyrir viku og segir Regína hana hafa far­ ið vel af stað. Hópurinn hefur einnig lokið upptökum á jólaplötu sem heit­ ir eftir tónleikunum, Jólin alls staðar, og kemur út í nóvember. n B lessunarlega og mér til mik­ illar hamingju þá sagði hún já, segir tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson sem bað kærustu sinnar, Soffíu Óskar Guðmundsdóttur, á dögunum. Parið var statt í Frakklandi þegar Eyþór bar upp stóru spurn­ inguna. „Við vorum í kærkomnu fríi; fórum til Parísar og svo til Strass­ borgar og enduðum á Radio head­ tónleikum. Þetta var yndisleg ferð,“ segir Eyþór Ingi sem er mikill aðdá­ andi hljómsveitarinnar Radiohead. „Þeir eru mínir Bítlar. Við Soffía eig­ um okkar uppáhaldslög og vorum aðeins nokkra metra frá átrúnaðar­ goðinu.“ Hann segist hafa verið afar upp­ tekinn í vinnu upp á síðkastið og því hafi frí verið vel þegið. „Það var búið að vera alveg brjálað að gera; ég er búinn að vera að vinna í hinum og þessum verkefnum. Ég var meira að segja að spila kvöldið sem við fórum út; svaf bara pínu og svo brunuðum við út í Leifsstöð. Og þá hófst fríið.“ Stóra stundin rann upp á fallegu kvöldi í París. „Við fórum út að borða í Eiffelturninum. Þar skellti ég mér á skeljarnar, tilbúinn með hringana. Það var allt klárt,“ segir hann en bæt­ ir við að hann hafi verið svo stress­ aður um að ráðabruggið rynni út í sandinn þegar þau fóru um Leifs­ stöð að hann hafi beðið vin sinn um að fara með hringana í gegnum toll­ inn. „Ég vildi ekki taka sénsinn að það yrði pípað á mig út af hringun­ um. Hún mátti ekki vita af þeim. Svo lenti ég náttúrulega í því að þurfa að fara í gegnum svipað hlið við Eiffel­ turninn. Og þar pípaði á mig. Vörð­ urinn bað mig að leggja frá mér regnhlíf sem ég var með á mér. Ég horfði stíft í augun á honum og bað hann í huganum að láta mig ekki sýna sér hringinn. Hann áttaði sig á þessu og hleypti mér í gegn. Auðvit­ að þarf ekkert að vera að hliðið hafi pípað út af hringunum en ég var al­ veg kominn þangað í huganum; að þetta væri allt að klúðrast.“ Hann segir að kvöldið hafi allt ver­ ið hið rómantískasta. „Þetta var bara æðislegt. Við fengum frábæra máltíð í turninum og svo festum við lása við girðinguna og fleygðum lyklunum út í lækinn og læstum þannig ástinni,“ segir hann hlæjandi. Parið á saman dótturina Elvu Marín sem verður eins árs í næsta mánuði. Hann viðurkennir að það hafi verið gott að komast heim til hennar eftir yndislega daga í París. „Það tók á að fara frá henni og síð­ ustu stundirnar á leiðinni heim var okkur farið að dreyma hana. Hún er svo yfirveguð og dugleg og var ekk­ ert að kippa sér upp við það þótt við hefðum farið og hafði það bara kósí á meðan hjá ömmu og afa á Dalvík. Okkur fannst þetta hins vegar kom­ ið gott og vorum voðalega fegin að komast til hennar.“ n indiana@dv.is. n Tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi bað Soffíu Ósk að trúlofast sér S kemmtileg uppákoma varð á sýn­ ingu á farsan­ um Tveggja þjónn í Þjóðleikhúsinu á fimmtudaginn síð­ astliðinn þegar leik­ arinn Rúnar Freyr Gíslason kom fé­ laga sínum Jóhann­ es Hauki Jóhannes­ syni til bjargar. Jóhannes, sem fer með aðalhlutverkið í sýningunni þurfti aðstoð tveggja gesta úr salnum við ákveðið verkefni á sviðinu, en áhorf­ endur voru tregir til þegar hann reyndi að fá tvo sjálfboða­ liða. Hann hafði náð að draga einn með sér þegar Rúnar Freyr, sem var áhorfandi í salnum, stóð upp og bauð fram krafta sína. Jóhannes var að von­ um kátur með þá óvæntu aðstoð og teymdi félaga sinn upp á svið, benti út í salinn og sagði: „Þú kannast við þig hér er það ekki?“ Vakti uppákoman kátínu meðal leikhúsgesta og var skemmtilegt innlegg í hressilega sýningu. n solrun@dv.is n Óvænt aðstoð barst úr sal á sýn- ingunni Tveggja þjónn Var hæfust E dda Sif Pálsdóttir, íþrótta­ fréttamaður á RÚV og dóttir Páls Magnússonar útvarps­ stjóra, fullyrðir í viðtali í Vik­ unni að hún hafi verið hæfasti um­ sækjandinn í starfið sem hún sótti um á sínum tíma. Þegar hún var ráðin í sumarafleysingar á íþrótta­ deildinni í fyrra sköpuðust um það umræður að hún hefði einungis fengið starfið því hún væri dótt­ ir Páls. Um 400 manns sóttu um sumarafleysingastörf hjá RÚV á sama tíma og Edda en í viðtalinu bendir hún á að flestir hafi sótt um í almennum fréttum. Þá hafi vant­ að konu á íþróttadeildina. Hún segist hafa tekið neikvæðri um­ ræðu af mikilli ró enda hafi hún sjálf vitað að hún hefði verið ráðin á grundvelli eigin verðleika. n solrun@dv.is Rómantískt bónoRð í PaRís Ástfangin Eyþór Ingi og Soffía eiga saman eina dóttur. „Ég vildi ekki taka sénsinn á að það yrði pípað á mig út af hringunum. Jólin alls staðar Regína segir það hafa verið mikið kappsmál hjá hópnum að vera með tónleika í öllum landshlutum. Rúnar Freyr til bjargar n Tók neikvæðri umræðu af mikilli ró

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.