Fréttablaðið - 03.11.2014, Síða 2
3. nóvember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Tóftirnar eru sokkn-
ar og ógreinilegar og fólk
gengur yfir þær.
Uggi Ævarsson, minjavörður
Suðurlands.
SPURNING DAGSINS
MENNING „Þetta er eiginlega ekki
hægt eins og þetta er,“ segir Uggi
Ævarsson, minjavörður Suður-
lands, um ástand fornminja á
Þingvöllum.
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu 25. október síðastlið-
inn uppgötvuðust steinhleðslur
úr svokölluðum Kóngsvegi við
lagfæringar á veginum að Pen-
ingagjá á Þingvöllum.
Kóngsvegur var lagður á árun-
um 1906 og 1907 og liggur meðal
annars framhjá Laugarvatni og
að Geysi. Uggi Ævarsson segir
minjar um hann sjást á stöku stað.
„En þetta er óðum að hverfa og
það er gaman að hafa sýnishorn
af honum á Þingvöllum, einmitt á
þessum stað,“ segir Uggi og minn-
ir á að til sé ljósmynd sem sýnir
Friðrik VIII Danakonung ríðandi
í beygjunni við brúna.
Uggi var ásamt landslagsarki-
tekt og fleirum við Peningagjá á
fimmtudag og þar hafi menn kom-
ist á rekspöl með að finna út úr
því hvernig hægt sé að ganga frá
veginum þannig að kantsteinarnir
séu sýnilegir.
„Hugmyndin er að hafa járnrist
eða plötu sem svífur yfir stígnum
þannig að hægt verði að sjá kant-
steinana til beggja handa. Þá er
eins og maður sé að ganga eftir
stígnum án þess að raska honum,“
lýsir Uggi mögulegri útfærslu.
„Þetta er vandmeðfarið en það
er alveg á hreinu að þessu verð-
ur ekki mokað í burtu enda líta
þjóðgarðsmenn á þennan fund
jákvæðum augum,“ segir Uggi.
Í tengslum við fréttir af hleðsl-
unum sé komin fram dagbókar-
færsla manns sem vann við
Kóngsveg á þessum stað haustið
1906. Það varpi skemmtilegu ljósi
á söguna.
Uggi undirstrikar að ágangur
ferðamanna sé vandamál víða á
Þingvöllum og áhyggjuefni.
„Það er mikill ágangur á Spöng-
inni sjálfri og spurning um að
loka þar í einhvern afmarkað-
an tíma. Það er þjóðgarðsins að
ákveða það en við vildum gjarnan
mælast til þess vegna tófta sem
eru þar. Tóftirnar eru sokknar
og ógreinilegar og fólk gengur
yfir þær,“ segir Uggi sem kveð-
ur minjavernd á Þingvöllum hafa
verið frekar pass ífa.
„Menn hafa ekki viljað setja
upp miklar girðingar og kaðla
en hafa frekar reynt að láta stíga
stýra umferðinni,“ segir Uggi.
Það hafi ekki haft tilætluð áhrif
nema að vissu marki.
„En núna má segja að það sé
vakning og við ætlum að taka
höndum saman meira; við á
Minjastofnun og þjóðgarðurinn,“
segir Uggi. Það sé ekki síst vegna
umsóknar um að Þingvellir fari á
heimsminjaskrá Sameinuðu þjóð-
anna vegna menningarminja frá
víkingaöld. „Þannig að við ætlum
að gera gangskör í þessum málum
á Þingvöllum.“
gar@frettabladid.is
Gestir troða minjar
niður á Þingvöllum
Stálbrú yfir stíg að Peningagjá er möguleg lausn á varðveislu minja um Kóngsveg
frá 1907 sem fundust þar á dögunum. Minjavörður Suðurlands vill loka Spönginni
tímabundið vegna fornra tófta sem ógnað er af miklum átroðningi ferðamanna.
MONTENEGRO Hundruð manna vorum á götum Podgorica í Svartfjalla-
landi í gær þegar Hinsegin ganga fór fram. Mikil öryggisgæsla var
vegna göngunnar. Þetta er í annað sinn sem slík ganga fer fram í höf-
uðborg Svartfjallalands. AFP-fréttastofan segir að gangan í gær hafi
farið friðsamlega fram. - jhh
Hundruð manna flykktust út á götur borgarinnar Podgorica:
Hinsegin ganga í Svartfjallalandi
GÆTIR ÖRYGGIS Þessi lögreglumaður var á vakt í göngunni. NORDICPHOTOS/AFP
Ragnar, hitti Náttblinda
í mark á fótboltavellinum?
Já, ólíkt mér. Enda töpuðum við 13-1
Ragnar Jónasson rithöfundur spilaði í liði
enskra glæpasagnahöfunda gegn skoskum.
Leikurinn tapaðist, en á vellinum kynntist
Ragnar breskum útgefanda og gefur nú út
sína fyrstu bók á ensku.
STJÓRNMÁL Skuldaleiðrétting rík-
isstjórnarinnar verður kunn-
gjörð á mánudaginn í næstu viku.
Umsækjendur um skuldaleiðrétt-
inguna geta kynnt séð niðurstöð-
ur hennar daginn eftir. „Vinna
við leiðréttinguna er á lokastigi
og gengur vel. Það er verið að
hnýta síðustu lausu endana. Gert
er ráð fyrir að leiðréttingin verði
kynnt opinberlega mánudaginn
10. nóvember og síðan birtist hún
umsækjendum daginn eftir, þriðju-
daginn 11. nóvember. Fólk á þá að
geta séð allar upplýsingar um það
hver niðurstaðan er við þeirra
umsókn,“ segir Sigurður Már Jóns-
son, upplýsingafulltrúi ríkistjórn-
arinnar. Frestur til þess að sækja
um skuldaniðurfellingu rann út 1.
september síðastliðinn. Alls bárust
69 þúsund umsóknir um skulda-
niðurfellingu og að baki þeim eru
um 105 þúsund manns. Gert er ráð
fyrir að leiðréttingin muni kosta 80
milljarða sem dreifist á fjögurra
ára tímabil. Upphaflega var gert
ráð fyrir að niðurstöður skulda-
leiðréttingarinnar lægju fyrir um
miðjan október en það frestaðist.
Með skuldaleiðréttingunni verða
verðtryggð húsnæðislán færð
niður um fjárhæð sem samsvarar
verðbótum umfram 4,8% sem féllu
til á tímabilinu desember 2007 til
ágúst 2010. Þetta samsvarar um
13% leiðréttingu á vísitölu neyslu-
verðs til verðtryggingar. Hámarks-
fjárhæð niðurfærslu á heimili
verður 4 milljónir króna, segir á
heimasíðu forsætisráðuneytisins.
- vh
Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar segir vinnu leiðréttinguna er á lokastigi:
Leiðréttingin kynnt eftir viku
SIGMUNDUR DAVÍÐ Ríkisstjórn Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar ætlar
að kynna leiðréttinguna í næstu viku.
KÓNGSVEGUR Kantsteinar úr hinum forna Kóngsvegi komu upp úr kafinu við lag-
færingar á stígnum að Peningagjá á Þingvöllum. MYND/UGGI ÆVARSSON
BJÖRGUN Björgunarsveitin Ok
í Borgarfirði var á laugardag
kölluð út til aðstoðar breskum
feðginum. Þau sátu föst í bíl
sínum á Kaldadal ofan Húsa-
fells. Samkvæmt tilkynningu
frá Slysavarnafélaginu Lands-
björgu höfðu þau farið inn á
fjallveg sem var merktur ófær
hjá Vegagerðinni.
Í viðtali við RÚV segir Þór
Þorsteinsson hjá björgunar-
sveitinni að ekkert hafi amað að
feðginunum.
Þau hafi verið búin að spóla
sig niður en getað haldið bílnum
í gangi.
Sagði hann að talsverður
snjór hefði verið á þessum slóð-
um en allt hefði gengið vel og
björgunar sveitamenn komnir
heim fyrir tíu. - vh
Festust á ófærum fjallvegi:
Bresk feðgin
föst í Kaldadal
FRAKKLAND Starfsmaður Sam-
einuðu þjóðanna, sem sýktist af
ebóluveirunni, hefur verið lagð-
ur inn á sjúkrahús í Frakklandi.
Sjúklingurinn sýktist í Síerra
Leóne.
Samkvæmt tilkynningu frá
franska heilbrigðiseftirlitinu
var starfsmaðurinn fluttur frá
Síerra Leóne til Frakklands í
sérútbúinni flugvél og er nú í
einangrun á hersjúkrahúsinu í
Saint-Mandé í París. Þetta er í
annað sinn sem sjúkrahúsið fær
ebólusjúkling til meðferðar.
Um 5.000 manns hafa látist af
völdum ebólunnar á undanförn-
um mánuðum. Samkvæmt tölum
frá Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
uninni voru flestir hinna látnu
frá Líberíu, Síerra Leóne og
Gíneu. - vh
Smitaðist í Síerra Leóne:
Ebólusjúkur
í Frakklandi
HEILBRIGÐISMÁL Verkfall lækna
heldur áfram í vikunni en á mið-
nætti lögðu læknar á aðgerða-
sviði og flæðissviði Landspít-
alans niður störf en verkfallið
stendur í tvo sólarhringa.
Aðgerðasvið spítalans held-
ur utan um alla starfsemi sem
tengist skurðstofum, speglunar-
þjónustu og gjörgæslu en undir
flæðissvið heyra meðal annars
bráðamóttakan í Fossvogi og
öldrunardeildin.
Aðfaranótt miðvikudags leggja
læknar á geðsviði og skurðlækn-
ingasviði Landspítalans niður
störf og stendur verkfallið einn-
ig í tvo sólahringa. Geðsvið spít-
alans sinnir meginstarfsemi sér-
hæfðrar geðheilbrigðisþjónustu
á Íslandi en skurðlækningasvið
er eitt umfangsmesta svið Land-
spítalans. Sviðinu tilheyra níu
sérgreinar skurðlækninga auk
svæfinga-og gjörgæslulækninga
og Blóðbankinn.
„Við teljum að þetta muni hafa
mjög mikil áhrif. Við höfum
gríðarlegur áhyggjur af þessari
viku sem er framundan. Áhrif-
in verða á bráðamóttökur, öldr-
unarþjónustu og skurðaðgerðir,“
segir Ólafur Baldursson, fram-
kvæmdastjóri lækninga á Land-
spítalanum.
Ólafur segir að reiknað sé með
miklu álagi á bráðamóttökunni í
Fossvogi. Þannig gætu þeir sem
eru með minni háttar áverka
þurft að bíða lengi og hugsan-
lega þurfi að vísa slíkum tilfell-
um annað. Hann óttast að sjúk-
lingar muni finna meira fyrir
áhrifum verkfallsins núna í vik-
unni en áður.
- gag
Stjórnendur Landspítala reikna með miklu álagi á bráðamóttöku í Fossvogi:
Áhrif verkfalls aukast í vikunni
HEFUR ÁHYGGJUR Ólafur Baldursson
segir að reiknað sé með miklu álagi á
bráðamóttöku í Fossvogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR