Fréttablaðið - 03.11.2014, Blaðsíða 6
3. nóvember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
– Reykjavík – Akureyri –
E I T T S Í M A N Ú M E R 5 5 8 1 1 0 0
STÓLADAGAR
FULL BÚÐ AF NÝ
JUM OG
FALLEGUM BARS
TÓLUM
DALLAS BARSTÓLL
Svart, hvítt og
brúnt leður.
TILBOÐSVERÐ:
17.990 KR.
Fullt verð 23.990
MATHILDE BARSTÓLL
Svart, rautt
og hvítt leður.
TILBOÐSVERÐ:
19.990 KR.
Fullt verð 27.990
PLUMP BARSTÓLL
Svart, hvítt, fjólublátt
og silfurlitt leður.
TILBOÐSVERÐ:
13.990 KR.
Fullt verð 19.990
AROS BARSTÓLL
4 litir. Stálfætur.
Fullt verð 12.990
BAR
AÐEINS
9.990
KRÓNUR!
VEISTU SVARIÐ?
2011 3462011 165
2012 1752012 184
2013 552013 55
2014 62014 34
Fjöldi nýskráðra metanbíla Fjöldi breyttra ökutækja (metan)
Heimild: Samgöngustofa. Fyrstu tíu mánuðir áranna.
VERSLUN Nýskráningar metanbíla
drógust saman um 82 prósent á
fyrstu tíu mánuðum ársins sam-
anborið við sama tíma árið 2012.
Bifreiðum sem hefur verið breytt
í metanbíla, og voru nýskráðar á
þessu ári, fækkaði sömuleiðis en
úr 175 í sex.
Þetta kemur fram í tölum sem
Samgöngustofa tók saman fyrir
Fréttablaðið. Samkvæmt þeim
hafa alls 34 nýskráðir metanbílar
farið á götuna á árinu en á fyrstu
tíu mánuðum 2012 voru þeir
184. Vinsældir bílanna halda því
áfram að minnka en töluverður
samdráttur var einnig í nýskrán-
ingum í fyrra miðað við árin á
undan.
„Við höfum í fyrsta lagi rakið
samdráttinn til þess að metan-
bílum fjölgaði hér gríðarlega
hratt á sama tíma og eldsneytið
var einungis selt á einum útsölu-
stað. Síðan fór hér í gang ákveðið
gullgrafaraæði þegar bílum sem
voru ekki hannaðir til að brenna
metani var breytt í metanbíla.
Þá komu upp ýmis vandamál og
fúsk sem komu óorði á bílana að
ósekju,“ segir Özur Lárusson,
framkvæmdastjóri Bílgreinasam-
bandsins.
Olíufélögin Skeljungur, Olís
og N1 hafa nú öll opnað metan-
afgreiðslustöðvar á höfuðborgar-
svæðinu og einnig var opnuð stöð
á Akureyri í byrjun september.
„Það er búið að bæta úr þessu
og því bind ég vonir við að sala
á metanbílum aukist aftur og að
við nýtum áfram þetta eldsneyti
sem við eigum hér bundið í ösku-
haugum landsins í stað þess að
sleppa því út í andrúmsloftið,“
segir Özur.
Sigurður Ástgeirsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Vélamiðstöðv-
arinnar, sem hefur breytt bílum
í metanbíla frá árinu 2006, tekur
undir með Özuri um að aðgengi
að metani hafi sett strik í reikn-
inginn.
„Hins vegar er ég ekki sam-
mála því að ýmsum vandamálum
í tengslum við breytingar á bílum
Trúa enn á metanið
þrátt fyrir mikið hrun
Alls hafa 34 nýskráðir metanbílar farið á götuna á árinu sem er samdráttur um 82%
frá 2012. Metanafgreiðslustöðvum hefur fjölgað á tímabilinu. Framkvæmdastjóri
Bílgreinasambandsins bindur vonir við að sala á bílunum eigi eftir að aukast.
LÖGREGLUMÁL Tollgæslan vissi
ekki af innflutningi Landhelgis-
gæslunnar á byssunum frá Noregi
fyrr en málið komst í fjölmiðla.
Byssurnar voru vegna þessa
innsiglaðar af Tollinum í síðustu
viku. Það er því ljóst að Land-
helgis gæslan, sem fer með lög-
gæsluhlutverk, hafði ekki fyrir því
að flytja vopnin inn eftir lögform-
legum leiðum með tilheyrandi toll-
afgreiðslu.
Við tollafgreiðslu skiptir máli
hvort vopnin voru gjöf eða hvort
þau voru keypt. Ef Gæslan hefði
lagt fram fylgiskjöl frá norska
hernum sem staðfestu að um vin-
argjöf væri að ræða frá norska
ríkinu til þess íslenska hefðu öll
aðflutningsgjöld á vopnin fallið
niður en samkvæmt c-lið 8. grein-
ar tollalaga eru undanþegnar slík-
um gjöldum „gjafir sem ríki, sveit-
arfélögum eða stofnunum á vegum
hins opinbera eru gefnar erlendis
frá í vináttuskyni eða á grundvelli
menningartengsla við erlend ríki“.
- hmp
Landhelgisgæslan lét ekki tollafgreiða byssurnar eftir hefðbundnum leiðum:
Vissu ekki um innfluttar byssur
1. Hversu mikið greiða slitabú gömlu
bankanna í opinber gjöld?
2. Hvenær var Barnahús stofnað?
3. Hvenær er gert ráð fyrir að boðað
verkfall hefjist hjá starfsmönnum
Kópavogsbæjar?
SVÖR
1. 35 milljarða króna. 2. Fyrsta nóvember
1998. 3. Tíunda nóvmber.
INNSIGLAÐAR Byssurnar voru innsigl-
aðar í síðustu viku.
LÖGREGLUMÁL Skemmdarverk
voru unnin í kirkjugarði Akur-
eyjakirkju í Vestur-Landeyjum
aðfaranótt sunnudags.
Kirkjan er rúmlega hundr-
að ára gömul sveitakirkja sem
stendur nálægt félagsheimilinu
Njálsbúð en þar var haldið sveita-
ball á föstudagskvöld.
Ballið var á vegum einkaaðila
og grunur leikur á að það hafi
verið einhverjir gestir af ballinu
sem frömdu skemmdarverkin.
Í samtali við visir.is segist
kirkjuvörðurinn vera miður sín
yfir og varla eiga orð til að lýsa
hneykslun sinni.
Legsteinum voru sparkað um
koll, krossar skekktir, lýsing við
kirkjuna skemmd og ljóskastari
brotinn.
Lögreglan á Hvolsvelli hefur
beðið alla þá sem kunna að hafa
vitneskju um hver eða hverjir
voru að verki í kirkjugarðinum
að koma upplýsingum til sín í
síma 488-4110. - vh
Legsteinum sparkað um koll og krossar skekktir. Lögregla leitar sökudólganna:
Skemmdarverk í kirkjugarði
NÝOPNUÐ Norðurorka á Akureyri og Olís opnuðu í september metanafgreiðslustöð
sem getur séð 600 fólksbílum á ári fyrir eldsneyti. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
sé hér um að kenna. Það komu
upp hin og þessi breytingarverk-
stæði en þau voru öll undir eft-
irliti Umferðarstofu og það var
mikil vinna lögð í úttektir á þess-
um bílum,“ segir Sigurður.
„Menn gengu einfaldlega á vegg
því metanið var mjög ódýrt eftir
hrun, í samanburði við bensín, og
þess vegna fjölgaði metanbílum
mjög hratt á sama tíma og dælun-
um fjölgaði ekki. Við byrjuðum
því kannski öll á vitlausum enda
en nú er nýtt upphaf og ég held
að það sé nú komið að bílaumboð-
unum að svara kalli þeirra fyrir-
tækja sem hafa fjárfest í þessu.“
haraldur@frettabladid.is
SKEMMDARVERKIN Eins og sjá
má á myndunum var aðkoman eftir
skemmdar vargana skelfileg.
VIÐSKIPTI Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, mun veita
markaðsverðlaun ÍMARK 2014
á Hótel Hilton á fimmtudaginn
næstkomandi.
Bæði markaðsmaður og
markaðsfyrirtæki verða verð-
launuð. Fimm fyrirtæki eru til-
nefnd sem Markaðsfyrirtæki
ársins.
Verðlaunin Markaðsmaður
ársins verða svo afhent ein-
staklingi fyrir framúrskarandi
árangur í markaðsstarfi. - jhh
Verðlaun afhent á Hilton:
ÍMARK veitir
árleg verðlaun