Fréttablaðið - 03.11.2014, Qupperneq 12
3. nóvember 2014 MÁNUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is
MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
Sigurjón Magnús
Egilsson
sme@frettabladid.is
Undanfarinn mánuð hafa tvö ungmenni
frá Úganda hitt tilvonandi fermingarbörn
á Íslandi og sagt þeim frá sjálfum sér og
aðstæðum heima fyrir. Irene er 19 ára og
Ronald er 25 ára. Þau búa á verkefnasvæð-
um Hjálparstarfs kirkjunnar í Lyantonde
og Sembabule. Irene hefur lokið framhalds-
skóla og kennt í grunnskóla. Ronald hefur
lokið tveggja ára háskólanámi í félags-
ráðgjöf og starfað sem sjálfboðaliði að
verkefnum okkar í þágu alnæmissjúkra og
aðstandenda þeirra.
Irene og Ronald hafa mætt á skrifstofuna
hjá okkur á morgnana til að undirbúa sig
fyrir samtal við íslensk fermingarbörn og
þá hefur okkur gefist tækifæri til að kynn-
ast þeim aðeins. Þau fara í tölvuna og eru á
Facebook alveg eins og krakkarnir okkar
og þau eru flinkari á öppin en miðaldra
skrifstofufólk í henni Reykjavík. Þau eru
eldklár og alveg eins og íslenskir krakkar
með sína drauma og þrár um góða framtíð.
Heima í Úganda eru aðstæður hins vegar
töluvert öðruvísi en hér. Þrír yngri bræður
bíða eftir að Irene komi heim en hún er
höfuð fjölskyldunnar. Pabbi hennar lést
af völdum alnæmis árið 2001 og mamma
hennar dó eftir langvarandi veikindi árið
2011. Irene sér um að elda, fara eftir vatni
og eldiviði ásamt því að þvo þvotta og þrífa
heimili sitt og bræðra sinna. Ronald fer
aftur heim til mömmu sinnar sem missti
mann sinn úr alnæmi þegar Ronald var lít-
ill strákur. Hann á þrjár systur og bróð-
ur. Mamma Ronalds er HIV-smituð og við
slæma heilsu. Það hefur því komið í hlut
Ronalds og systkina hans að sjá um heim-
ilið á uppvaxtarárunum.
Irene og Ronald hafa lýst því hvern-
ig vatnsskortur tafði fyrir skólagöngu
þeirra. Þau eru hins vegar heppin þar sem
þau búa á starfssvæðum Hjálparstarfsins.
Irene lauk grunnskólanámi í skóla sam-
starfsaðila okkar og fjölskylda Ronalds
fór úr moldar hreysi í múrsteinshús með
vatnssöfnunartanki með fjárstuðningi frá
íslenskum almenningi.
Tilvonandi fermingarbörn ganga í hús
næstu daga og afla fjár til vatnsverk-
efna okkar í Afríku. Með þínum stuðningi
getum við tryggt fleirum aðgang að hreinu
vatni.
Irene og Ronald
ht.is
Næsta bylgja
sjónvarpa er
komin
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • SELFOSS • REYKJANESBÆR • REYKJAVÍK
Philips Ambilight
sjónvarp með
Android stýrirkerfinu
HJÁLPARSTARF
Kristín
Ólafsdóttir
upplýsingafulltrúi
Hjálparstarfs
kirkjunnar
S
umt fólk skilur ekki Jón Gnarr. Sumt fólk taldi og
kannski telur hann enn óhæfan í há embætti. Sumt
fólk amast við honum og finnur það honum meðal
annars til foráttu að hann er ekki sérlega klár í
gerð ársreikninga. Og jafnvel þá staðreynd að hann
viðurkenni þegar hann veit ekki. Það er fátítt í íslenskum
stjórnmálum.
Þau okkar sem hlusta á Jón Gnarr og lesa það sem hann
segir sjá stjórnmálamanninn Jón Gnarr. Í helgarblaði Frétta-
blaðsins var viðtal við Jón, af
því tilefni að langflestir sem
tóku afstöðu til þess hvaða
manneskju þeir vilja sjá næst í
embætti forseta Íslands nefndu
Jón langtum oftar en alla aðra
hugsanlega kandídata. Jón
Gnarr er pólitískur maður og
enginn eftirbátur núverandi
forseta eða annars áberandi fólks í samfélaginu. Í viðtalinu
sagði Jón þetta meðal annars:
„Það vantar sannarlega fleiri til að tala máli friðar og mann-
réttinda á heimsvísu. Í átökum er alltaf um tvennt að velja; að
slást eða tala saman. Að tala saman tekur oft lengri tíma og það
þarf að kunna það, að slást er oft fljótvirkara og virðist árang-
ursríkara en það er svo mikil skammtímalausn og mun dýrara
til lengri tíma litið. Við erum enn að reyna að leysa eitthvað
sem átti að leysa með vopnavaldi fyrir hundrað árum og víða
er það orðið óleysanlegt. Þannig að jú, vissulega væri fulltrúi
Íslands verðugur í því að tala fyrir friði og friðsamlegum
lausnum. Við erum friðsamt land og eigum mikla friðarsögu.“
Í þessum orðum er mikill boðskapur og pólitík. Þeir kjósend-
ur sem eru sömu skoðunar og Jón Gnarr hljóta að leggja fast að
honum að hann gefi kost á sér. Vert er að hafa í huga að þetta er
fyrsta könnunin sem gerð er um frambjóðendur í forsetakosn-
ingunum sem verða vorið 2016. Skekkjumörk eru mikil en staða
Jóns er mjög eftirtektarverð.
Andstæðingar Jóns sem borgarstjóra fundu honum helst
til foráttu að sinna ekki embættinu á sama hátt og þeir sem á
undan fóru. Munurinn á honum og mörgum forverum hans er
sá að hann steig upp úr stólnum sem sigurvegari.
Hinu má ekki gleyma að Jón er ólíkindatól. Hér er sýnishorn
úr viðtalinu við Fréttablaðið: „Ég hef ekki hugsað um þetta af
neinni alvöru eða rætt málin við fjölskylduna eða mína nán-
ustu. Þegar ég er spurður hvort ég útiloki ekki framboð vefst
mér tunga um tönn. Fólk gæti alveg eins spurt hvort ég útiloki
að verða kafari. Ég hef aldrei kafað og aldrei spáð sérstaklega
í því en ég útiloka það alls ekki að verða kafari,“ segir Jón og
hlær. „Ég veit nefnilega í rauninni ekki hvað starfið felur í sér
eða hvað það gengur út á fyrir utan að mæta á frumsýningar og
hlusta á skólakóra úti á landi.“
Næstu mánuði munu koma fram margar skoðanir á forseta-
embættinu og tilvonandi frambjóðendum. Hvaða áferð á að
vera á embættinu? Má breyta frá stífaðri hvítri skyrtu yfir í
fyrrverandi pönkara með sixpensara?
Jón Gnarr ræður miklu um aðra frambjóðendur:
Má forsetinn vera
með sixpensara?
Stjórnlagaráðið að meika það
Eiríkur Bergmann Einarsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskólann í
Bifröst, sagði í þættinum Sprengisandi
á Bylgjunni í gær að víða væri horft
til Íslands vegna stjórnlagaþingsins
sem við héldum og sagði það vera
fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir. Eiríkur
sagði að stjórn lagaráð hefði gert mis-
tök með því að hafa ekki sam ráð við
Alþingi þegar það skrifaði drög að nýrri
stjórnar skrá. Hann lagði til í þætt in-
um að slembivalið borg araþing,
með styrkri aðstoð sér fræðinga,
byggði á þeirri vinnu sem hefði
verið unn in, í sam starfi við
þing menn, og kæm ist að
niður stöðu í stjórn ar skrár-
mál inu svo kallaða og þannig
mætti finna farsæla
lausn.
Góðra vina fundur
Svavar Gestsson og Vilhjálmur Egilsson
hittust í Sprengisandi í gær. Af því tilefni
skrifaði Vilhjálmur á Facebook: „Sit hér
í augnablikinu á Sólvallagötunni í fram-
lengdum morgunverði. Við Pála komum
snemma til Reykjavíkur í morgun, ég til
að mæta á Sprengisand hjá Sigurjóni
Egils og Pála til að mæta í messu í
Landakoti. Það er alltaf gaman að vera
hjá Sigurjóni og ekki síst þegar
gamall og góður félagi
úr þinginu, Svavar
Gestsson, er
með í hópnum.
Ýmis mál dekkuð.
Ýmist sammála
eða ósammála. En
alltaf allt í góðu.“
Aukin vandræði
Ekki sér fyrir endann hjá löggunni vegna
svo kallaðrar Stasi-skýrslu Geirs Jóns
Þórissonar fyrrverandi yfirlögregluþjóns
og varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins.
Til að freista þess að klóra yfir klúðrið
hyggst löggan kalla alla nafngreinda
í skýrslunni á sinn fund. Eða á annað
hundrað manns. Geir Jón vann sam-
an tekt á starfi lög reglu við mót mæli
áranna 2008 til 2011. Eins og þekkt
er var vegna mistaka hægt að lesa
í gegn um yf ir strik un og fjar lægja
yf ir strik un yfir texta úr staf rænu
formi skýrsl unn ar, því sem var af hent
fjöl miðlum. Per sónu vernd er á því að
per sónu grein an leg ar upp lýs ing ar
um ein stak linga hafi kom ist
í hend ur óviðkom andi
aðila.
sme@frettabladid.is
➜ Heima í Úganda eru aðstæður hins
vegar töluvert öðru vísi en hér. Þrír
yngri bræður bíða eftir að Irene komi
heim en hún er höfuð fjölskyldunnar.
Pabbi hennar lést af völdum alnæmis
árið 2001 og mamma hennar dó eftir
langvarandi veikindi árið 2011.