Fréttablaðið - 03.11.2014, Qupperneq 16
3. nóvember 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir,
mágkona, amma og langamma,
HELGA ERLA ALBERTSDÓTTIR
Njarðarvöllum 2, Njarðvík,
lést á Hrafnistu í Njarðvík í faðmi fjölskyld-
unnar, laugardaginn 25. október. Útförin fer
fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn
6. nóvember kl. 13.00.
Albert B. Hjálmarsson Brynja Kjartansdóttir
Lísbet Hjálmarsdóttir Gunnar I. Kristinsson
Guðmundur Hjálmarsson Sveindís Skúladóttir
Sigrún Albertsdóttir Eðvald Bóasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
SKAFTI BJÖRNSSON
lést mánudaginn 13. október á Hrafnistu í
Reykjavík. Útför hefur farið fram, þökkum
samhug og hlýju.
Innilegar þakkir til starfsfólks á H-1 á
Hrafnistu í Reykjavík fyrir yndislega
umhyggju og umönnun.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Hrafnistu.
Árni Björn Skaftason Bryndís Erlingsdóttir
Helga Árnadóttir Davíð Baldursson
Hildur Árnadóttir Jóhann Hauksson
önnumst við alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Þegar andlát
ber að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Móðir okkar,
INGER J. FRIÐRIKSSON
áður til heimilis að Lönguhlíð 3
og Safamýri 34,
lést þann 11. október sl. á
Hjúkrunarheimilinu Mörk. Bálför hennar
hefur farið fram. Starfsfólki Markar og
Lönguhlíðar er þökkuð góð umönnun.
Hrefna og Hjalti Sölvabörn
og aðrir aðstandendur.
Hestamannafélagið Grani á Húsavík
fagnar merkum tímamótum í dag,
en hálf öld er síðan 20 hestamenn á
Húsavík stofnuðu til félagsskapar
um sameiginlegt áhugamál sitt. Frá
1964 hefur mikið vatn runnið til
sjávar og félagsstarfið er í miklum
blóma.
Bjarni Páll Vilhjálmsson, stjórn-
armaður í Grana, segir að tilefni til
gleðskapar sé ærið, en félagsmenn
ætli að láta sér duga að drekka
saman kaffi í Miðhvammi laugar-
daginn 15. nóvember. Með randalínu
í munni fái félagsmenn að heyra eitt
og annað um sögu Grana í máli og
myndum. Ekki verður boðað til sér-
staks afmælismóts eða slíks, enda
svo margt á dagskrá félagsins að erf-
itt væri að koma slíku við.
„Við höldum úti öflugu starfi allt
árið um kring. Mótahald er bæði að
vetri og sumri – á vorin er mótahald
og sameiginlegir reiðtúrar skipu-
lagðir,“ segir Bjarni og bætir við
að á Mærudögum hafa gæðingasýn-
ingar verið vinsælar og á þjóðhá-
tíðardaginn 17. júní er teymt undir
krökkunum á Húsavík, svo eitthvað
sé talið af þeim fjölmörgu viðburð-
um sem fylla viðburðadagatal Grana
á hverju ári.
Bjarni segir að mikil gróska hafi
einkennt starf félagsins að undan-
förnu. Ekki er langt síðan að ný og
glæsileg reiðhöll var tekin í notk-
un og nýr keppnisvöllur var vígður
í vor leið, og ný hesthús hafa verið
byggð. Öflugt félagsstarf kristall-
ast kannski ekki síst í fjölgun félags-
manna, en þeir eru um 130 talsins í
dag sem er helmings fjölgun á síð-
ustu fimm til sex árum.
„Það sem hefur verið grundvöll-
urinn að öllu okkar starfi er öflugt
æskulýðsstarf, sem hefur verið í
öndvegi hjá félaginu alla tíð. Síðustu
30 árin hefur verið reiðskóli á hverju
sumri, og reyndar síðustu tíu, fimm-
tán árin allt árið um kring. Það hefur
skilað sér margfalt því kannski má
segja að börnin sem sækja reiðskól-
ann eigi heiðurinn af nýliðun félags-
ins,“ segir Bjarni.
Aðalhesthúsahverfi félagsins eru
í Traðargerði, sem stendur norðan
Húsavíkurbæjar, og í Saltvík sunn-
an við bæinn. Þar er framtíðarupp-
bygging Grana ráðgerð. Að sögn
Bjarna geta nýrri hesthúsin í Salt-
vík tekið við um 100 hrossum, en í
Traðargerði er rými fyrir lítið eitt
færri dýr.
„Það eru líka tímamót í okkar
starfi núna að það er að færast til
Saltvíkur. Þar höfum við fengið
úthlutað landi þar sem við munum
byggja upp næstu 50 árin. Á teikni-
borðinu eru fleiri hesthús, svo er
verið að laga mikið af nýjum reið-
leiðum hér í kring um Húsavík. Það
má með sanni segja að það sé mjög
mikil uppbygging hérna,“ segir
Bjarni.
svavar@frettabladid.is
Grani öfl ugur eft ir 50 ár
en er bara rétt að byrja
Hestamenn á Húsavík fagna því að 50 ár eru frá stofnun Hestamannafélagsins Grana.
Ný reiðhöll og keppnisvöllur eru í hendi, en frekari uppbygging er samt á teikniborðinu.
GRANI Á FERÐINNI Ár frá ári hefur starfi félagsins vaxið fiskur um hrygg og næstu 50 árin eru félagsmönnum tilhlökkunarefni. MYND/GRANI
Það sem hefur verið
grundvöllurinn að öllu okkar
starfi er öflugt æskulýðsstarf,
sem hefur verið í öndvegi hjá
félaginu alla tíð.
Bjarni Páll Vilhjálmsson.
MERKISATBURÐIR
1493 Kristófer Kólumbus kemur auga á
eyjuna Dóminíku í Karíbahafinu.
1660 Kötlugos hefst og fylgja því mikl-
ir jarðskjálftar og jökulhlaup.
1928 Tyrkir taka upp latneskt stafróf í
stað þess arabíska.
1951 Íslenska kvikmyndin Nið-
ursetningurinn eftir Loft Guð-
mundsson er frumsýnd.
1968 Alþýðubandalagið
er stofnað sem formlegur
stjórnmálaflokkur en hafði
starfað sem kosningabanda-
lag síðan 4. apríl 1956.
1978 Megas heldur fræga
tónleika í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð undir
heitinu Drög að sjálfs-
morði.
2007 Pervez
Mush arraf lýsir
yfir neyðar-
ástandi í Pakist-
an, fellir stjórnar-
skrá landsins tíma-
bundið úr gildi og rekur
forseta hæstaréttar.
Godzilla birtist í fyrsta sinn á
hvíta tjaldinu. Það var í mynd
eftir hinn japanska Ishir Honda.
Godzilla hefur allt frá þeim
tíma verið á meðal þekktustu
kvikmyndapersóna. Á alfræði-
vefnum Wikipedia kemur
fram að Godzilla hafi birst í
tugum kvikmynda á þeim sextíu
árum sem liðin eru frá því að
karakterinn leit fyrst dagsins
ljós. Þá hefur Godzilla einnig
birst í tölvuleikjum, skáldsögum,
teiknimyndasögum og sjónvarps-
þáttaröðum.
Þegar Godzilla leit fyrst
dagsins ljós á hvíta tjaldinu voru
einungis níu ár liðin frá því að
kjarnorkusprengjum hafði verið
varpað á Hiroshima og Nagazaki.
Í fyrstu var því Godzilla talin vera
myndlíking fyrir kjarnorkuvopn.
Með tímanum hefur ásýndin
þó breyst og á sumum stöðum
birtist Godzilla sem hetja en á
öðrum stöðum sem skrímsli. - jhh
ÞETTA GERÐIST: 3. NÓVEMBER 1954
Godzilla verður til