Fréttablaðið - 03.11.2014, Síða 18
FÓLK|HEIMILI
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
Halldóra Geirsdóttir fatahönnuður, Brynja Emilsdóttir, fata- og
textílhönnuður, og Ingibjörg
Petra Guðmundsdóttir, graf-
ískur hönnuður, endurvinna
plastpoka í fjölnota töskur og
burðarpoka. Þær stefna á að
opna vinnustofu þar sem þær
kenna aðferðir við endurvinnslu
en þær fengu hugmyndina
þegar þær stunduðu allar nám
í listkennsludeild Listaháskóla
Íslands.
„Við sóttum námskeið í sam-
félagslistum hjá Aileen Wilson,
kennara frá Pratt Institute í
Brooklyn, og hún kenndi okkur
nokkrar aðferðir við endur-
vinnslu,“ útskýrir Halldóra.
„Við sjáum fyrir okkur að opna
vinnustofu þar sem
hægt væri að kenna
til dæmis skóla-
krökkum og
atvinnulausu
fólki þetta
verklag
til að
endurvinna. Þá sjáum við einnig
fyrir okkur að fá listamenn til
að veita innsýn inn í sitt fag
á vinnustofunni og að fá eldri
borgara til að kenna handverk,
kannski þekkingu sem annars
myndi glatast. Þessa dagana
erum að vinna í því að finna
hentugt húsnæði.“
Aðferðina við að endur-
vinna plastpokana segir Hall-
dóra einfalda og á allra færi. Á
hverju heimili safnist yfirleitt
upp mikið magn plastpoka sem
kjörið sé að umbreyta í fjölnota
burðarpoka og sporna þannig
við umhverfismengun.
„Þetta getur verið mjög
skemmtileg leið til að vekja
börn til umhugsunar um um-
hverfismál og skemmtilegt fjöl-
skylduverkefni. Það væri vel
hægt að sauma innkaupatösku
handa afa og ömmu í jólagjöf
með þessari aðferð. Það þarf
bara að gefa hugmyndafluginu
lausan tauminn,“ segir Halldóra.
FJÖLNOTA TÖSKUR ÚR PLASTPOKUM
HEIMILI Þrír hönnuðir og mastersnemar í listkennslu við LHÍ ætla að opna vinnustofu þar sem kennd verður endurvinnsla. Fjölnota
burðarpokar úr plastpokum eru fyrsta verkefni þeirra og segja þær aðferðina einfalda.
ENDURVINNSLA
Flottir burðarpokar úr
gömlum plastpokum.
FJÖLSKYLDUGAMAN „Þetta getur verið mjög skemmtileg leið til að vekja börn til umhugsunar um umhverfismál og skemmtilegt
fjölskylduverkefni.“
Opið:
RÝMINGARSALA
í Háholti 23, Mosfellsbæ
Allt að
60% afsláttur!
Opið alla virka daga
í nóvember kl. 13:00-18:00
Mirella ehf – heildverslun
Háholt 23, 270 Mosfellsbær
Sími: 586 8050 / Netfang: mirella@simnet.is
Frábærar vörur í miklu úrvali
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
AÐFERÐ TIL ENDURVINNSLU
● Klippa þarf niður hliðarnar
á plastpokanum og opna
hann. Í sterkan burðar-
poka þarf þrjú lög af plasti
og má nota fleiri.
● Smjörpappír er lagður á
strauborð og ofan á hann
fara plastbútarnir, hver
ofan á annan. Þá fer annað
lag af smjörpappír ofan á
plastið og svo er straujað
varlega yfir yfir. Ekki hafa
járnið of heitt.
● Úr þessu verður mjög
sterkt efni sem er svo
saumað saman, í tösku
eða innkaupapoka.
● Til að fá breidd í botninn
má leggja hliðarnar
niður neðst við hornið og
sauma þvert á.
● Hægt er að búa til höldur
á pokann eða töskuna, til
dæmis úr fjórum lögum af
plasti. Höldurnar eru svo
klipptar til og bræddar á
pokann eða saumaðar á.
● Fólk getur raðað saman
pokum að vild og leikið
sér með liti og munstur
eða texta. Einnig er hægt
að leggja efni eða myndir
á milli laga af glærum
plastpokum, sem sést þá í
gegn.