Fréttablaðið - 03.11.2014, Síða 44
3. nóvember 2014 MÁNUDAGUR| MENNING | 20
LEIKLIST ★★★★ ★
Beint í æð
Borgarleikhúsið
Höfundur: Ray Cooney
Leikstjóri: Halldóra Geirharðsdóttir
Íslensk staðfærsla: Gísli Rúnar Jónsson
Leikmynd og búningar: Helga I. Stefáns-
dóttir
Tónlist: Ólafur Björn Ólafsson
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen
Leikarar: Hilmir Snær Guðnason,
Guðjón Davíð Karlsson, Halldór Gylfason,
Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Sigrún Edda,
Björnsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Þór-
unn Arna Kristjánsdóttir, Hjörtur Jóhann
Jónsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir,
Sigurður Þór Óskarsson og Örn Árnason
Farsar eru einstaklega erfitt list-
form. Það er ekkert grín að svið-
setja grín. Fara verður eftir öllum
reglum, tímasetningar verða að
ganga upp og leikararnir verða að
vinna af einlægni annars er voð-
inn vís. Beint í æð eftir Ray Coon-
ey, frumsýnt síðastliðinn föstudag
í Borgarleikhúsinu, uppfyllir ekki
einungis ofanverðar kröfur heldur
neglir þær.
Hilmir Snær Guðnason leikur
hinn taugaveiklaða Jón Borgar,
yfirlækni á Landakoti sem er í þann
mund að halda mikilvægustu ræðu
starfsferils síns. Hann verður fyrir
stöðugum truflunum frá starfs-
fólki sem er á kafi að undirbúa litlu
jólin, eiginkonunni sem er komin
til að styðja hann og drykkfellda
yfirmanninum sem krefst þess að
ræðan verði óaðfinnanleg. En allt
fer á annan endann þegar Díana
Thors, leikin af Maríönnu Clöru
Lúthersdóttur, mætir á svæðið og
tilkynnir Jóni Borgari að ástarævin-
týri þeirra fyrir sautján árum hafi
leitt til fæðingar sonar sem hann
vissi aldrei af.
Hilmir Snær ber sýninguna á
herðum sér og er á sviði nær allan
tímann. Þetta er kannski ekki hlut-
verk sem áhorfendur eru vanir að
sjá hann í en þetta er vonandi ekki
hans síðasta á grínsviðinu. Hann
er algjörlega frábær og gefur sig
allan í hlutverkið frá fyrsta augna-
bliki. Svitinn hreinlega bogar af
honum á meðan hann reynir að fela
sannleikann um soninn og ekki er
hægt annað en að vorkenna hinum
seinheppna Jóni. Það er stórgaman
að sjá leikara skína í hlutverkum
sínum og er Guðjón Davíð Karls-
son alveg á heimavelli í hlutverki
sínu sem Grettir Sig, taugaskurð-
læknirinn sem býr ennþá heima hjá
mömmu sinni. Hann er bráðfyndinn
og finnur frábært jafnvægi á milli
grínsins og einlægninnar. Slíkt er
bara á færi fárra.
Verkið er þýtt og staðfært af
Gísla Rúnari Jónssyni sem sýnir
ávallt nær óaðfinnanleg vinnubrögð.
Staðfærslan er fyndin án þess að
vera yfirþyrmandi og orðagrínið er
oft á tíðum algjörlega frábært.
Örn Árnason gerir sér lítið fyrir
og hreinlega stelur senunni sem
Mannfreð, elliæri sjúklingurinn
sem dreymir um einkaherbergi á
sjúkrahúsinu, helst með míníbar.
Barátta hans við pottablóm og end-
urteknar tilraunir til að stela áfeng-
inu fyrir litlu jólin eru óborganlegar.
Leikgervin, sem Árdís Bjarnþórs-
dóttir hannar, eru virkilega vel gerð.
Sigrún Edda Björnsdóttir er nánast
óþekkjanleg sem Gróa, móðir Grett-
is, og á stórskemmtilega innkomu í
seinniparti verksins. Hönnun sýn-
ingarinnar, sem er í höndum Helgu
I. Stefánsdóttur, er að sama skapi
virkilega vel gerð.
Allur leikhópurinn stendur sig
með prýði og er hópurinn firna-
sterkur þrátt fyrir að það halli
aðeins á leikkonurnar í sýningunni
en Þórunn Arna Kristjánsdóttir á
virkilega góða spretti sem stress-
aði yfirdeildarhjúkrunarfræðing-
urinn Jórunn.
Sýningin dalar aðeins strax eftir
hlé og tók nokkra stund fyrir leik-
arana að ná upp sama tempóinu.
Annars stjórnar Halldóra Geir-
harðsdóttir sýningunni af mikilli
nákvæmni og keyrir hana á ofsa-
hraða með tilheyrandi hurðaskell-
um og hlaupum. Hvert augnablik er
nýtt til að kitla hláturtaugar áhorf-
enda og stundum heyrðust varla
orðaskil í leikurunum fyrir hlát-
ursrokunum úti í sal. Þessi sýning
á bara eftir að verða betri.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Sprenghlægilegur farsi
sem á eftir að slá í gegn.
Samgöngustofa - Ármúla 2 - 108 Reykjavík - Sími 480 6000 - samgongustofa.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
4
-2
2
7
2
Standast hjólbarðarnir
þínir breyttar reglur?
Frá og með 1. nóvember þurfa vetrarhjólbarðar bifeiða að
hafa minnst 3 mm mynstursdýpt yfir vetrartímann. Þannig
aukum við öryggi í umferðinni og greiðum okkur öllum leið
við erfiðar aðstæður.
Aukin mynstursdýpt
– okkar allra vegna
1. nóv. til 14. apríl - mynsturdýpt a.m.k. 3 mm
15. apríl til 31. okt. - mynsturdýpt a.m.k. 1,6 mm
BÆKUR ★★★ ★★
Englaryk
Guðrún Eva Mínervudóttir
JPV-ÚTGÁFA
Hvað verður um ofurvenjulega
íslenska fjölskyldu í smábæ þegar
þrettán ára unglingsdóttir ekki ein-
ungis frelsast til trúar á Jesú Krist
heldur segir blákalt frá því að hún
hafi séð hann í eigin persónu og
gengið með honum um erlenda
borg dagspart á meðan fjölskyldan
taldi hana týnda og leitaði hennar
í ofboði? Þetta er spurningin sem
blasir við í upphafi Englaryks, nýrr-
ar skáldsögu Guðrúnar Evu Mín-
ervudóttur. Þeirri spurningu verð-
ur ekki svarað á einfaldan hátt eða
í einni svipan og málið vandast enn
þegar barnið fer að útdeila gæsku
sinni í þorpinu, meðal annars til
fyllibyttu bæjarins og álappalegs
unglingspilts sem henni virðist kyn-
sveltur og útundan.
Englaryk er fjölskyldusaga þar
sem lesandinn fær að deila sjón-
arhorni með öllum aðalpersónum
sögunnar, Ölmu, foreldrum henn-
ar, Jórunni og Pétri og eldri bróður.
Þau sækja ráðgjöf, hvert í sínu lagi,
hjá fjölskylduráðgjafanum Snæfríði
sem reynist tengjast fjölskyldunni
meira en þau grunar. Hún er gamall
nemandi föður Péturs, fransks geð-
læknis sem aðhylltist sálgreiningu
og stranga vísindahyggju, afneit-
aði allri yfirnáttúru en leitaði jafn-
an skýringa á sálarmeinum fólks í
bældri kynhvöt. Í fortíð fjölskyld-
unnar og í samtímanum liggja marg-
vísleg vandamál sem koma smám
saman upp á yfirborðið, bæði í sam-
tölum við ráðgjafann og í samskipt-
um milli persónanna.
Óvenjuleg unglingsuppreisn Ölmu
verður til þess að draga fram ýmis-
legt sem oftast liggur í þagnargildi,
prestur þorpsins þarf að slökkva á
fjarstýringunni í fermingarfræðslu
og takast á við eigin efasemdir og
hvorki hjónaband foreldranna né
þroski unglingsbróðurins fara var-
hluta af áhrifum Ölmu. Aðalpersón-
an sjálf tekur líka út einhvers konar
þroska og lýsing hennar er merki-
leg og ótrúlega sannfærandi mynd
af unglingi. Hún er óútreiknanleg,
stundum óskiljanleg og skilur jafn-
vel ekki sjálfa sig og hún fullorðn-
ast ekki að ráði í sögunni. Þetta er
hvorki hefðbundin þroskasaga þar
sem unglingurinn uppgötvar sjálfan
sig og er tilbúinn til að takast á við
lífið né hefðbundið fjölskyldudrama
þar sem allir endar eru hnýttir og
vandamál leyst.
Sagan öll ber þannig keim af aðal-
persónunni. Hún veitir fá svör, er
lesanda að einhverju leyti ráðgáta að
lestri loknum og það er engin leið að
vita hvað hún mun gera næst eða á
hvaða leið hún er. Hún vekur spurn-
ingar, um trú og trúarbrögð í sam-
tímanum, um fjölskyldur, ábyrgð
á náunganum og tengsl fortíðar og
nútíðar, svörin við spurningunum –
og hvort yfirhöfuð er hægt að leita
þeirra – velta á lesandanum sjálfum.
Jón Yngvi Jóhannsson
NIÐURSTAÐA: Óvenjuleg fjölskyldu-
saga skrifuð af miklu innsæi sem er
– líkt og unglingurinn sem hún segir
frá– óútreiknanleg og óviss um hvert
hún stefnir.
Opinberun
unglingsstúlku
GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR
„Svörin við spurningunum– og hvort
yfirhöfuð er hægt að leita þeirra– velta
á lesandanum sjálfum,“ segir Jón Yngvi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Dúkkuheimili eftir Henrik Ibsen
verður leiklesið í forsal Borg-
arleikhússins mánudaginn 3.
nóvember klukkan 10. Dúkku-
heimili er jólasýning Borgarleik-
hússins og fer Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir með aðalhlutverkið.
Opnir samlestrar eru liður í að
opna leikhúsið fyrir almenningi
og bjóða leikhúsáhugafólki að
fylgjast með frá byrjun æfinga.
Fyrsta skrefið í æfingum leik-
rita er svokallaður samlestur. Þá
kemur starfsfólk saman, ásamt
listrænum stjórnendum og leik-
urum og lesa leikritið upphátt.
Auk þess kynna leikstjóri, leik-
mynda- og búningahöfundar hug-
myndir sínar og fyrir vikið er
fyrsti samlestur oft eins konar
hátíðarsamkoma.
Allir velkomnir og kaffi á
könnunni.
Dúkkuheimili
leiklesið
SKÍNA Í HLUTVERKUM SÍNUM Hilmir Snær og Guðjón Davíð fá góða dóma fyrir
leik sinn.
LEIKUR NÓRU Unnur Ösp Stefáns dóttir
leikur Nóru í Dúkkuheimili Ibsens í
jólasýningu Borgarleikhússins.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kostulegur klassískur farsi
MENNING