Fréttablaðið - 03.11.2014, Síða 47
MÁNUDAGUR 3. nóvember 2014 | MENNING | 23
Það þekkja flestir landsmenn óláta-
belginn hann Bjössa bollu. Það nýj-
asta sem hann tók sér fyrir hend-
ur var að skrifa bók, en hún heitir
Bjössi bolla, órabelgur og prakkari.
Bjössi var, eins og þeir sem eru eldri
vita, í Stundinni okkar á sínum tíma
og sló í gegn þar.
„Besti vinur minn, hann Magnús
Ólafsson leikari, kom mér í það sko,
hann er umboðsmaðurinn minn.“
Bókin fjallar um uppátæki hans og
þegar hann var í sveitinni í sumar
hjá ömmu sinni og afa, þar sem hann
hjálpaði til við bústörfin. Hann er
hins vegar mikill prakkari og lætur
illa svo hann lendir í ýmsum óhöpp-
um og ævintýrum.
Áður fyrr var hann þekktur fyrir
að vera mikill sælkeri sem heimtaði
sælgæti á hverjum degi og borðaði
bara óhollustu, en í dag hefur hann
snúið við blaðinu „Já, mamma sagði
bara stopp, hingað og ekki lengra
kallinn minn. Ég var búinn að missa
allar tennurnar og var orðinn svo
stór.
Nú borða ég bara hafragraut og
tek lýsi og fæ bara nammidag einu
sinni í viku. Ég er líka miklu hraust-
ari,“ segir Bjössi.
- asi
Prakkarinn Bjössi bolla með bók
Órabelgurinn Bjössi bolla hefur skrifað nýja bók um uppátæki sín í sveitinni.
HEFUR
ENGU
GLEYMT
Bjössi bolla
er alltaf jafn
hress og
finnst gaman
að sprella.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Veldu þér persónuleg viðskipti
hvar sem þú ert.
– Veldu þér Sparisjóð.
Gísli Gunnar Geirsson
Sparisjóðurinn, Vestmannaeyjum
www.spar is jodur inn . is
„Fjármálin ganga betur fyrir sig og
fólk er ánægðara þegar það fær
persónulega þjónustu.“
Suðureyri
Bolungarvík
Hólmavík
Sauðárkrókur
Siglufjörður Kópasker
Raufarhöfn
Þórshöfn
Akureyri
Grenivík
Dalvík Húsavík
Laugar
Mývatnssveit
Neskaupsstaður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Höfn
Selfoss
Vestmannaeyjar
-fyrir þig og þína
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Hnefaleikakappinn Mike Tyson
greindi frá því í útvarpsviðtali á
miðvikudag að hann hefði verið
misnotaður kynferðislega sem
barn. Hann segir að hann hafi
aðeins verið sjö ára þegar hann
var á gangi í hverfinu sínu í Brook-
lyn þegar eldri maður kom akandi
að honum og kippti honum upp í
bílinn. Tyson lýsti því að maður-
inn, sem var að hans sögn mjög
gamall, hefði misnotað hann kyn-
ferðislega en honum hefði tekist
að flýja frá honum. „Þetta gerðist
bara einu sinni. Ég er ekki viss um
hvort þetta breytti mér á einhvern
hátt, ég lét bara eins og ekkert
hefði ískorist.“ Hann sagðist aldrei
hafa nefnt þetta við neinn, hvorki
við fjölskyldu né lögreglu.
Misnotaður
sem barn
VAR RÆNT Mike Tyson var aðeins sjö
ára þegar hann var misnotaður.
Bob Geldof, söngvari Boomtown
Rats, reynir að fá tónlistarfólk til
að endurgera lagið Do They Know
It’s Christmas. Það yrði þá fjórða
útgáfan af laginu en upprunalega
kom það út árið 1984 og á því þrjá-
tíu ára afmæli í ár.
Samkvæmt The Sun er ebólufar-
aldurinn í Afríku helsta ástæð-
an fyrir að Geldof vill endurgera
lagið en samkvæmt miðlinum
byrjaði hann að hafa samband
við ýmsa vegna verkefnisins í
síðasta mánuði. Tónlistarmenn-
irnir Bono, George Michael, David
Bowie, meðlimir Duran Duran
og Boy George eru meðal þeirra
sem sungu í fyrstu útgáfunni en
lagið var endurútgefið árið 1989
og 2004.
Jólalag vegna
ebólufaraldurs
HEYRIR Í LISTAMÖNNUM Bob Geldof
vill endurgera lagið Do They Know It’s
Christmas á þrjátíu ára afmæli þess.
Söngkonan Rihanna er mætt aftur
á Instagram eftir fimm mánaða
bann á miðlinum vegna nektar-
mynda sem hún
birti af sér.
Þessi 26 ára
gamla söng-
kona birti tvær
myndir á laug-
ardagskvöldið
eftir hléið, eina
teikningu af sér
og Instagram-merkinu haldast
í hendur og sjálfsmynd. Svo lét
hún fylgja myndunum setningin
„óþekka stelpan er mætt aftur“.
Ástæðan fyrir banninu er
nektar myndir sem hún birti af sér
í apríl síðastliðnum en nektar-
myndir og kynferðislegt efni er
bannað á Instagram og því var
lokað fyrir aðgang Rihönnu þar til
hún fjarlægði myndirnar.
Mætt aft ur
á Instagram