Fréttablaðið - 03.11.2014, Blaðsíða 48
3. nóvember 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 24
FÓTBOLTI Manchesterborg á Eng-
landi er svo sannarlega blá þessa
dagana. City-liðið fagnaði öðrum
Englandsmeistaratitlinum á þrem-
ur árum í vor og í gær tryggði
liðið sér fjórða deildarsigurinn í
röð gegn Manchester United, 1-0.
Sergio Agüero skoraði eina mark
leiksins í seinni hálfleik en þá voru
liðsmenn United að spila einum
færri.
Þó Manchester United hafi nú
aðeins innbyrt tvö stig í síðustu
þremur leikjum má samt segja að
liðið líti betur út en áður. Kraftur-
inn í því er mun meiri og það legg-
ur ekki árar í bát þó á móti blási.
Það hafði í fullu tré við City-lið-
ið í fyrri hálfleik þó heimamenn
fengju betri færi. David De Gea
varði allt hvað af tók í markinu og
hélt leiknum á „núllinu“.
En á 39. mínútu gerði Chris
Smalling sig sekan um heimsku-
pör. Miðvörðurinn hafði áður feng-
ið klaufalegt gult spjald fyrir að
hindra útspark Joe Hart og undir
lok fyrri hálfleiks lét hann reka sig
út af eftir að strauja niður James
Milner. Svo sannarlega ákvörðun
hjá Smalling sem tapar fótbolta-
leikjum.
„Í nágrannaleikjum þarftu að
vera varkár. Seinna gula spjaldið
var afar heimskulegt,“ sagði Louis
van Gaal, knattspyrnustjóri Man-
chester United, í leikslok. „Ég sá
ekki fyrra gula spjaldið, en dóm-
arinn gaf það. Þegar þú ert á gulu
spjaldi verðurðu að passa þig og
stundum ræðurðu ekki við tilfinn-
ingar þínar. Þetta var samt ekki
mjög gáfulegt.“
Markið lá í loftinu hjá City í
seinni hálfleik og datt inn eftir
rúman klukkutíma. Sergio Agüero
batt þá endi á fimmtán sendinga
sókn heimamanna með skoti úr
teignum eftir sendingu frá Gaël
Clichy. Virkilega vel útfært mark
hjá bláliðum.
United gafst ekki upp og hefði
getað jafnað metin þegar Rooney
hélt að árið væri 2005 og hljóp af
krafti nánast í gegnum tvo menn
eins og hann gerði forðum daga.
Hann aftur á móti hætti við skotið
og sóknin rann út í sandinn. Hvað
sem gestirnir úr rauða hluta borg-
arinnar reyndu undir lokin komu
þeir boltanum ekki í netið og þar
við sat, 1-0.
Manchester City heldur áfram
baráttu sinni við Chelsea og spútn-
iklið Southampton, en liðið er með
20 stig í þriðja sæti, sex stigum á
eftir Chelsea. Manchester United
er nú í níunda sæti með þrettán
stig og þó spilamennska liðsins líti
betur út gefur það lítið. - tom
Chris Smalling skúrkurinn í Manchester-slagnum
Sergio Agüero hetja Manchester City sem vann tíu leikmenn United 1-0 eft ir að Chris Smalling var rekinn út af í fyrri hálfl eik.
SJÁUMST Michael Oliver vísar Chris Smalling af velli í fyrri hálfleik. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI Dagur Sigurðsson hafði betur gegn Patreki Jó-
hannessyni, sínum gamla herbergisfélaga í íslenska landslið-
inum þegar þeir mættust með lið sín Þýskaland og Austur-
ríki í undankeppni EM 2016 í handbolta í gær. Leikið var í
Austurríki. Lokatölur urðu 28-24 eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 12-11 Þjóðverjum í vil.
Uwe Gensheimer, hornamaður Rhein-Neckar Löwen,
var frábær í liði Þýskalands, en hann skoraði alls tíu
mörk. Patrick Wieneck gerði einnig vel, en hann skoraði
sjö mörk.
Robert Weber skoraði sex fyrir lærisveina Patreks, en
fjórir leikmenn komu næstir; allir með þrjú mörk. Austur-
ríki hefur tapað fyrstu tveimur leikjunum í riðlinum gegn
ógnarsterkum Spánverjum og Þjóðverjum. Þýskaland er
með með fullt hús stiga, en liðið vann Finnland í fyrsta
leiknum. - ail
Dagur hafði betur gegn Patreki
SPORT
ÚRSLIT
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
NEWCASTLE - LIVERPOOL 1-0
1-0 Ayoze Pérez (74.)
ARSENAL - BURNLEY 3-0
Alexis Sánchez (70.), 2-0 Calum Chambers (72.),
3-0 Alexis Sánchez (90.).
CHELSEA - QPR 2-1
1-0 Oscar (32.), 1-1 Charlie Austin (62.), 2-1 Eden
Hazard (76. víti).
EVERTON - SWANSEA 0-0
HULL - SOUTHAMPTON 1-0
0-1 Victor Wanyama (3.).
LEICESTER - WBA 0-1
0-1 Esteban Cambiasso (90. sjálfsmark).
STOKE- WEST HAM 2-2
1-0 Victor Moses (33.), 2-0 Mame Biram
Diouf (56.), 2-1 Enner Valencia (60.), 2-2 Stewart
Downing (73.).
MAN. CITY - MAN. UTD 1-0
1-0 Sergio Agüero (63.).
ASTON VILLA - TOTTENHAM 1-2
1-0 Andreas Weimann (16.), 1-1 Nacer Chadli
(84.), 1-2 Harry Kane (90.).
STAÐAN:
Chelsea 10 8 2 0 26-10 26
Southampton 10 7 1 2 21-5 22
Man.City 10 6 2 2 20-10 20
Arsenal 10 4 5 1 18-11 17
West Ham 10 5 2 3 19-14 17
Swansea 10 4 3 3 13-10 15
Liverpool 10 4 2 4 13-13 14
Tottenham 10 4 2 4 13-14 14
Everton 10 3 4 3 19-17 13
Man.Utd. 10 3 4 3 16-14 13
W.B.A. 10 3 4 3 13-13 13
Newcastle 10 3 4 3 11-15 13
Stoke 10 3 3 4 10-12 12
Hull 10 2 5 3 13-14 11
Aston Villa 10 3 1 6 5-16 10
C.Palace 9 2 3 4 13-16 9
Leicester 10 2 3 5 11-16 9
Sunderland 9 1 5 3 8-17 8
Q.P.R. 10 2 1 7 9-20 7
Burnley 10 0 4 6 5-19 4
UNDANKEPPNI EM 2016
SVARTFJALLAL. - ÍSLAND 25-24 (14-12)
Svartfjallaland - Mörk (skot): Vuko Borozan 10
(15), Nemanja Grbovic 5 (7), Bogdan Petricevic 3
(3), Milos Vujovic 3 (5), Mirko Radovic 1 (1), Bozo
Andjelic 1 (1), Stefan Cavor 1 (3), Fahrudin Melic
1 (3/1).
Varin skot: Rade Mijatovic 11 (33/2, 33%), Vuko
Borilovic 3 (5, 60%).
Ísland - Mörk (skot): Alexander Petersson 8 (9),
Snorri Steinn Guðjónsson 4/1 (7/1), Þórir Ólafsson
3 (4), Guðjón Valur Sigurðsson 3/1 (8/1), Arnór
Atlason 2 (5), Björgvin Hólmgeirsson 2 (5), Ásgeir
Örn Hallgrímsson 1 (1), Kári Kristján Kristjánsson
1 (2).
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 8/1 (27/1, 30%),
Björgvin Páll Gústavsson 3 (9, 33%).
HANDBOLTI Fram þurfti ekki að hafa
mikið fyrir sjöunda sigrinum í röð
í Olís-deild kvenna í handbolta
um helgina, en Fram-liðið vann
öruggan sigur á nýliðum ÍR, 34-24.
Sigurbjörg Jóhannsdóttir var marka-
hæst Framara með ellefu mörk.
Fram-liðið hefur farið frábærlega
af stað, en það lagði Gróttu í
topp slagnum um síðustu helgi og
myndaði með því tveggja stiga bil á
milli sín og Seltirninga.
Fram mætir Val í næstu umferð,
en Valskonur unnu Fylki, 26-21, um
helgina eftir að vera undir í hálfleik,
13-11. Kristín Guðmundsdóttir fór á
kostum fyrir Val og skoraði tíu mörk.
ÍBV og Stjarnan taka áfram fullan
þátt í toppbaráttunni; Eyjakonur með
tólf stig rétt eins og Grótta, tveimur
stigum á eftir Fram og Stjarnan með
tveimur stigum minna.
Eyjakonur komust í hann krappan
gegn KA/Þór á Akureyri þar sem þær
sluppu með eins marks sigur, 26-25.
Norðankonur voru marki yfir í hálf-
leik, 15-13. Martha Hermannsdóttir
skoraði þrettán mörk fyrir heimaliðið
en Telma Amado og Vera Lopes átta
mörk fyrir ÍBV.
Fram er efst í deildinni með
fjórtán stig eftir sjö leiki. - tom
Fram áfram með fullt hús stiga
11 MÖRK Sigurbjörg Jóhannsdóttir var
frábær í liði Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Strákarnir okkar í
karlalandsliðinu í handbolta nýttu
ekki meðbyrinn eftir sautján
marka sigurinn á Ísrael í miðri
viku þegar liðið tapaði fyrir Svart-
fjallalandi, 25-24, í öðrum leik liðs-
ins í undankeppni EM 2016 í Bar
þar ytra í gær. Strákarnir slegn-
ir niður á jörðina með óþarfa tapi
gegn liði sem Ísland á að vinna
á góðum degi. En það er einmitt
málið; í gær var ekki í heildina
góður dagur hjá íslenska liðinu.
Alexander Petersson, sem var
veikur fyrir leikinn, reið á vaðið og
skoraði fyrstu fjögur mörk Íslands
sem komst í 4-1. Útlitið gott og í
heildina skoraði Alexander átta
mörk í níu skotum. Smá veikindi
stöðva ekki mann sem hefur spilað
rúman hálfleik á stórmóti kjálka-
brotinn.
Þessa góðu byrjun náði íslenska
liðið ekki að nýta heldur jöfn-
uðu Svartfellingar fljótlega, 6-6,
og voru yfir í hálfleik, 14-12. Í
seinni hálfleik komst Svartfjalla-
land mest í 18-13 en okkar strákar
svöruðu og minnkuðu muninn í eitt
mark, 24-23, þegar fimm mínútur
voru eftir.
Guðjón Valur Sigurðsson gat
jafnað metin í 24-24 úr hraðaupp-
hlaupi en lét verja frá sér. Guð-
jón var afar ólíkur sjálfum sér í
þessum leik og fór illa með mörg
dauðafæri. Heimamenn komust í
25-24 en Ísland fékk eitt hraðaupp-
hlaup til viðbótar til að jafna metin
þegar tíu sekúndur voru eftir.
Arnór Atlason bar upp boltann en
þegar hann sá engan mann laus-
an ákvað hann að skjóta úr erfiðri
stöðu. Skotið beint í varnarmann
og tap staðreynd.
„Þeir komast of auðveldlega
í fjögurra til fimm marka for-
ystu, en við náum að spyrna við
sem var gríðarlega mikilvægt.
Ef maður þarf að tapa svona leik
er mikilvægt að tapa bara með
einu því þessi innbyrðis viðureign
gæti reynst dýrmæt,“ sagði Aron
Kristjánsson landsliðsþjálfari við
Fréttablaðið í gærkvöldi, en með
tveggja marka sigri á Svartfelling-
um í Laugardalshöll myndu okkar
strákar verða fyrir ofan þá í riðl-
inum endi liðin með jafnmörg stig.
„Það voru tæknifeilarnir og
færa nýtingin sem fór með þetta
hjá okkur í leiknum. Miðað við
hvernig spilið var í leiknum þá
áttum við að skora 30 mörk og það
hefði dugað til að vinna þennan
leik,“ sagði Aron.
Landsliðsþjálfarinn var ánægð-
ur með varnarleikinn til að byrja
með en fannst þó ýmislegt vanta
upp á og þá var hann of kaflaskipt-
ur þegar litið er til alls leiksins.
„Þeir voru ráðalausir í sóknar-
leiknum og við eigum að geta refs-
að betur fyrir það. En það er erfitt
þegar menn þurfa að standa vörn-
ina svona lengi því þeir fengu allt-
af tvöfaldan séns á öllu,“ sagði
landsliðsþjálfarinn.
„Mér fannst við standa vörnina
vel og markvarslan var fín til að
byrja með en svo datt Aron Rafn
niður. Bjöggi kom inn undir lokin
og varði vel þannig að í heildina
er ekkert yfir markvörslunni að
kvarta. Varnarleikurinn var of
mikið næstum því. Við vorum oft
hálfu skrefi á eftir.“ tomas@365.is
Slegnir niður á jörðina í Bar
Karlalandsliðið í handbolta náði ekki að fylgja eft ir stórsigrinum gegn Ísrael í miðri viku þegar liðið mætti
Svartfj allalandi ytra í gær. Heimamenn unnu, 25-24, í leik þar sem tæknifeilarnir fóru með okkar menn.
VEIKUR Alexander Petersson var veikur fyrir leikinn en skoraði samt átta mörk í níu skotum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Svartfellingar voru ekki beint gestirisnir í aðdraganda leiksins, en íslenska
liðið var látið æfa í handónýtum og úr sér gengnum sal þar sem ummerki
um leka mátti sjá á veggjunum og þá voru körfur fyrir framan mörkin sem
ekki var hægt að færa.
„Ég man ekki eftir því að hafa lent í svona. Við ákváðum
samt ekkert að láta þetta trufla okkur og héldum allri
einbeitingunni á leiknum. Höllin sem við spiluðum í var góð
en hitt húsið var ekki boðlegt,“ sagði Aron Kristjánsson við
Fréttablaðið í gær.
„Svartfellingarnir hringdu í okkur þegar við vorum að
leiðinni og sögðu að við gætum ekki æft í höllinni sem
keppt var í því það var körfuboltaleikur í gangi um kvöldið.
Okkur var þá boðið að æfa í þessum skólasal sem okkur
var sagt að væri notaður í deildinni þarna. Ég get ekki
ímyndað mér að þarna séu spilaðir deildarleikir í
nokkru,“ sagði Aron.
Æfingaaðstaða Íslands til skammar