Fréttablaðið - 03.11.2014, Síða 50
3. nóvember 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 26
FRJÁLSAR Það er ekki bara Hand-
knattleikssamband Íslands sem er
óánægt með Laugardalshöllina.
Eins og kom fram í Fréttablaðinu á
föstudaginn er Höllin barn síns tíma
og stenst ekki lengur gæðastaðla
alþjóðlegra kappleikja.
Frjálsíþróttafólk er einnig mjög
óánægt með hina nýju og glæsilegu
frjálsíþróttahöll. Þó ekki aðstöðuna
sjálfa, langt því frá. Frjálsíþrótta-
höllin er í heims klassa að sögn Þrá-
ins Hafsteinssonar, yfirþjálfara
frjálsíþróttadeildar ÍR, en gallinn er
afar takmarkaður aðgangur reyk-
vísku íþróttafélaganna að höllinni.
Meiri tími kostar pening
„Hún er ekki opin nema fjóra tíma
á dag frá klukkan 16-20 á virkum
dögum og 09-14 um helgar. Tvo
morgna er svo opið tvær klukku-
stundir í senn, en höllin þyrfti að
vera opin allan daginn,“ segir Þrá-
inn í samtali við Fréttablaðið.
Aðgangur að höllinni yfir sum-
artímann er einnig miklu minni
en þörf er á, að sögn Þráins. Opið
er þrjá daga í viku tvo tíma senn í
júní og lokað er í júlí og ágúst. Þá
þurfa frjálsíþróttamenn að víkja
fyrir öllum viðburðum sem hægt
er að leigja húsið undir allan ársins
hring nema seinni part janúar og í
febrúar.
„Vandamálið er, að þetta var
byggt sem einkaframkvæmd
og svo gerir borgin leigusamn-
ing við rekstraraðila Hallar-
innar. Fyrir einhverjum tíu
árum var gerður samningur
til 25 ára og innifalið í
honum var þetta magn
af tímum. Í hvert skipti
sem við þurfum að fá
rýmri opnun kostar
það borgina meiri
pening. Við erum
að sækja á frek-
ari opnun núna og
höfum fengið
ágætis viðbrögð
frá þeim sem
ráða í borginni,“
segir Þráinn sem
finnst verst að horfa upp
á aðstöðuna ónotaða svo
klukkutímum skiptir á hverjum
degi.
„Staðan er þannig að það er
lítil leiga á þessu húsi fyrir utan
árshátíðir og þannig lagað
þannig að við horfum upp á
aðstöðuna lokaða stærst-
an hluta dagsins en samt
eru vaktmenn í húsinu
að sinna öðrum störfum.
Engu að síður er lokað,“
segir Þráinn.
Viljum nota Höllina
í friði
Yfir sex vikna inn-
anhússkeppnistímabil
er Höllin ekki leigð út fyrir
árshátíðir og sýningar og
fleira, en á öllum öðrum
tímum þarf frjálsíþrótta-
fólkið að víkja. Þá var hún
t.a.m. lokuð fyrir frjálsar í
þrjár vikur á dögunum þegar Evr-
ópumótið í hópfimleikum fór fram.
„Á meðan á lokun stóð voru 23
æfingaflokkar bara hjá ÍR send-
ir út á gaddinn eða í aðstöðu sem
engan veginn er boðleg. Æft var
undir stúkunni á Laugardalsvelli, í
fundarsalnum í Þróttarheimilinu, í
danssalnum í ÍR-heimlinu eða þá að
fólk fór á skauta eða í sund,“ segir
Þráinn, en eðli málsins samkvæmt
þurfa afreksmenn í frjálsum að æfa
miklu meira við bestu aðstæður en
í boði er.
„Þeir þurfa að æfa tvisvar á dag,
en við fáum bara tvo morgna sem
er engan veginn nógu mikið. Þessir
íþróttamenn þurfa bara að bjarga
sér annars staðar úti í bæ og lyfta í
World Class eða öðrum líkamsrækt-
arstöðvum. Allt þetta á meðan við
horfum upp á heims klassaaðstöðu
ónýtta. Við erum rosalega ánægð
með aðstöðuna eins og ég segi, en
við viljum fá að nota hana miklu
meira og það í friði frá árshátíðum
og sýningarhaldi og slíku,“ segir
Þráinn.
Vont í mikilli samkeppni
Á meðan liðin í Reykjavík þurfa að
glíma við framangreind vandamál
er félag eins og FH í frábærri stöðu
með sitt eigið frjálsíþróttahús sem
það hefur eðlilega mun meiri og
betri aðgang að.
„Það er komin mikil samkeppni í
Hafnarfirði þar sem FH fær rýmri
opnun fyrir sig. Við í ÍR deilum
Höllinni ásamt Ármanni, Fjölni
og KR. FH-ingar hafa mun betra
aðgengi að sinni aðstöðu og þar ligg-
ur munurinn. Við höfum haft þetta
forskot á þau en nú getum við dreg-
ist aftur úr í baráttunni,“ segir Þrá-
inn Hafsteinsson. tomas@365.is
Frjálsíþróttafólk lokað úti
Frjálsíþróttafólk í Reykjavík fær takmarkaðan aðgang að Laugardalshöllinni. Heimsklassaaðstaða ónotuð
svo klukkutímum skiptir á hverjum degi. Borgin þarf að borga fyrir fl eiri æfi ngastundir liðanna.
LOKAÐ Þráinn Hafsteinsson, yfirþjálfari frjálsíþróttadeildar ÍR, segir það agalegt fyrir afreksfólk að geta ekki notað þá heims-
klassaaðstöðu, sem frjálsíþróttahöllin býður upp á, tvisvar á dag. Hún er allt of mikið lokuð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÓTBOLTI Kristinn Steindórsson,
leikmaður Halmstad í sænsku
úrvalsdeildinni, gæti hafa spilað
sinn síðasta leik fyrir liðið þegar
það tapaði 5-1 í lokaumferðinni
gegn IFK Gautaborg á útivelli um
helgina. Kristinn spilaði fanta-
vel með Halmstad í sumar sem
bætti árangur sinn mikið frá síð-
asta tímabili, en hjá Halmstad eru
menn þokkalega sáttir við upp-
skeruna í ár.
„Við áttum í miklum vandræð-
um í fyrra og fórum í umspilið.
Markmiðið í ár var að halda sér
uppi og fá fleiri stig sem tókst,“
segir Kristinn í samtali við Frétta-
blaðið, en sjálfur skoraði hann átta
mörk og lagði upp tvö til viðbótar í
sænsku úrvalsdeildinni í ár.
„Í heildina er ég ánægður með
mína frammistöðu þó maður vilji
alltaf gera betur; skora meira og
leggja upp fleiri mörk. En eftir
þetta leiðindatímabil í fyrra var
þetta mun skemmtilegra þannig
að ég er sáttur,“ segir Kristinn.
Óvíst er hvort Blikinn öflugi
verður áfram hjá Halmstad, en
hann er nú samningslaus. „Í raun-
inni veit ég ekki hvað gerist. Það
er samt 100 prósent að ég held að
ég komi ekki heim. Ekki núna.
Ég kem bara til með að skoða þá
möguleika sem verða í boði,“ segir
Kristinn.
Hann hefur ekki rætt við
Halmstad ennþá, en mun spjalla
við forráðamenn liðsins um fram-
tíð sína í vikunni. Annars hefur
hann heyrt af áhuga annarra liða.
„Halmstad-menn vildu bíða með
viðræður þar til eftir síðasta leik.
Það er klárlega áhugi frá öðrum
liðum en ekkert sem er komið
langt á leið. Ég er til í að skoða allt
í rauninni,“ segir Kristinn sem
hefur mikinn áhuga á að komast
til betra liðs.
„Ég hef fulla trú á því að ég geti
spilað með betri liðum og maður
spilar eflaust bara betur hjá betra
liði með betri menn í kringum sig.
Ég vil bara helst fá hlutina á hreint
sem fyrst,“ segir hann.
Næst á dagskránni er smá frí
áður en haldið verður heim til
Íslands í desember, segir Kristinn.
„Maður fer í smá ferðalag og
sér svo hvað gerist. Kannski þarf
maður að fara aftur til Halmstad
og pakka ef eitthvað gerist.“ - tom
Gæti þurft að pakka
Kristinn Steindórsson heyrt af áhuga annarra liða.
GOTT ÁR Kristinn skoraði átta mörk á
tímabilinu í Svíþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Guðbjörg Gunnarsdótt-
ir, landsliðsmarkvörður í knatt-
spyrnu, varð um helgina norskur
meistari með liði sínu Lilleström.
Stöllur hennar lögðu Stabæk,
3-0, í hreinum úrslitaleik um Nor-
egsmeistaratitilinn, en Stabæk
var tveimur stigum á eftir Lille-
ström fyrir leikinn.
Guðbjörg, sem gekk í raðir
norska liðsins frá Bayern Münch-
en, sat á bekknum allan úrslita-
leikinn en fagnaði með liði sínu
vel og innilega þegar sigurinn
var í húsi. - tom
Guðbjörg með
titil í Noregi
MEISTARI Guðbjörg kom til Lilleström
frá Bayern München. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
GOLF Ólafía Þórunn Kristinsdótt-
ir, kylfingur úr GR og Íslands-
meistari í höggleik, tryggði sér
keppnisrétt á lokaúrtökumótinu
fyrir LET-Evrópumótaröð
kvenna í gær.
Ólafía spilaði á öðru úrtökumóti
fyrir LET-mótaröðina í Marokkó
og lék lokahringinn á 75 höggum.
Það var hennar næstbesti hringur
en best spilaði hún á fyrsta degi, á
74 höggum. Í heildina var hún 19
höggum yfir pari.
Ólafía þurfti að vera á meðal 29
efstu kylfinganna og það tókst.
- tom
Ólafía Þórunn
komst áfram
VEL GERT Ólafa Þórunn spilar á
lokaúrtökumótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL