Fréttablaðið - 03.11.2014, Page 54
3. nóvember 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30
Hnotu-
brjóturinn
St. Petersburg Festival
Ballet ásamt Sinfóníu-
hljómsveit Íslands
Hrífandi jólaævintýri við
tónlist eftir Tchaikovsky
Heillandi sýning fyrir alla fjölskylduna
Sýnt í Eldborg
www.harpa.is/hbr
Nánari upplýsingar í s: 528 5050, á midi.is og harpa.is
Helmingsafsláttur fyrir 12 ára og yngri
21. nóvember
kl. 19:30 Frumsýning
22. nóvember
kl. 13:00 2. sýning
kl. 17:00 3. sýning
23. nóvember
kl. 13:00 4. sýning
kl. 17:00 5. sýning
„Já, það kom að því að þetta gerð-
ist á gamalsaldri,“ segir kokkurinn
Jóhann Helgi Jóhannsson.
Hann ákvað að láta draum sinn
rætast og opna veitingastaðinn
Restó á Rauðarárstíg fyrir skömmu.
Jóhann hefur síðustu tólf ár unnið
í Ostabúðinni á Skólavörðustíg og
fyrir þann tíma var hann meira og
minna í tíu ár hjá Rúnari Marvins-
syni á staðnum Við Tjörnina og í
einhvern tíma hjá Leifi Kolbeins-
syni á La Primavera.
„Þeir tveir, Rúnar og Leifur, eru
mestu áhrifavaldarnir. Það sem ég
hef verið að gera er það sem ég hef
samsoðið úr visku þessara tveggja
snillinga,“ segir Jóhann. Um 25 ár
eru síðan hann útskrifaðist sem
kokkur og er Restó fyrsti veit-
ingastaðurinn sem hann rekur. En
af hverju ákvað hann að láta slag
standa núna? „Eigum við ekki að
segja að þetta sé grái fiðringur-
inn,“ segir kokkurinn og hlær. „Ég
hef hugsað um þetta annað slagið en
er í eðli mínu varfærinn og vil ekki
hætta of miklu. Svo kom þetta upp
í hendurnar á mér. Þetta var spurn-
ing um að gera eina tilraun áður en
ég yrði of gamall og sjá hvort ég
gæti enn þá eldað á svona à la carte-
veitingahúsi. Það er alveg rosalega
skemmtilegt. Ég yngist upp um
mörg ár við þetta,“ segir Jóhann.
Hann rekur staðinn ásamt eigin-
konu sinni, Ragnheiði Helenu Eð-
varsdóttur. Þau tóku staðinn í and-
litslyftingu en í húsinu var áður
veitingastaðurinn Madonna.
„Við tókum staðinn í gegn með
berum höndum með aðstoð föður
hennar. Þetta var ekki gert af mikl-
um efnum en við erum mjög stolt af
útkomunni.“ - lkg
Kennir gráa fi ðringnum um opnunina
Jóhann Helgi Jóhannsson opnar sinn fyrsta veitinga stað en hann útskrifaðist sem kokkur fyrir 25 árum.
STOLTUR AF ÚTKOMUNNI Jóhann
tók staðinn í gegn með konu sinni og
tengdaföður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Máni Orrason er sautján ára
íslenskur tónlistarmaður búsettur
á Spáni. Hann gaf nýlega út smá-
skífuna „Fed All My Days“ sem
verður á plötunni hans „Repeating
Patterns“ sem kemur út næsta vor.
Lagið var tekið upp að hluta til
hér heima í Stúdíói Sýrlandi og
að hluta til á Spáni. Máni flutti
tveggja ára gamall til Spánar
fyrst, en níu ára kom hann aftur
heim.
„Ég bjó þá á sveitabæ nálægt Vík
í Mýrdal og þó ég hafi aðeins búið
þar í fjögur ár þá hafði þessi tími
mikil áhrif á mig tónlistarlega
séð. Ég var líka mikið í hestum á
þessum tíma og mikið úti í nátt-
úrunni svo það gaf mér innblástur
líka,“ segir hann. Fjölskylda Mána
er mikið í tónlist og hann segist
hafa verið kominn með hljóðfæri í
hendurnar aðeins eins árs gamall.
Í dag er Máni á lokaári í
menntaskóla ásamt því að vinna
á fullu í tónlistinni. „Ég er að fara
að taka upp myndband við smá-
skífulagið og spila meira, meðal
annars á tónleikum á Íslandi í des-
ember. Markmiðið er auðvitað að
standa sig á öllum sviðum og þetta
er að ganga vel upp svona,“ segir
hann. - asi
Semur íslenska tónlist á Spáni
Máni Orrason gefur út sína fyrstu plötu næsta vor, Repeating Patterns.
NÓG AÐ GERA Ásamt því að vera á
fullu í tónlist, er Máni að ljúka námi í
menntaskóla. MYND/PEPA VALERO
Íslenska barnafatamerkið Ígló&Indí
hefur vakið mikla athygli undanfar-
ið hjá erlendum tískubloggurum.
Guðrún Tinna Ólafsdóttir fram-
kvæmdastjóri segir að fyrir um
ári hafi þær hjá fyrirtækinu tekið
ákvörðun um að leggja aukna
áherslu á markaðssetningu á merk-
inu í gegnum samfélagsmiðla, þar
sem sú markaðssetning sé gríð-
arlega öflug, þá sérstaklega úti í
heimi.
„Samfélagsmiðlar eru gríðarlega
sterkir erlendis, hjá verslunum og
viðskiptavinum, sérstaklega eins
og Pinterest, Instagram og Twitt-
er og svo auðvitað bloggararnir.
Það skiptir okkur gríðarlega miklu
máli að vinna vel með þeim,“ segir
Tinna, en þær hafa verið í samstarfi
við marga af stærstu bloggurum í
heiminum í dag. „Þetta eru allt
bloggarar sem leggja mikla vinnu í
síðurnar sínar, en þær eru flestar
búsettar í Svíþjóð og Frakklandi,“
segir hún.
Fyrirtækið er mjög virkt á
Instagram og segir hún að kassa-
merkingin #igloindi hafi stóraukist,
aðallega frá erlendum aðilum, bæði
viðskiptavinum og verslunum úti
sem selja fötin frá Ígló&Indí.
„Það er svo gaman að sjá bloggar-
ana og verslanirnar merkja mynd-
irnar með okkar merki. Bæði eru
þau að setja inn myndir frá okkar
eigin markaðsefni og en líka mynd-
ir sem þær taka sjálfar af börnum í
Ígló&Indí-fötum. Þannig vekja þær
athygli á okkur og á móti þá birtum
við umfjöllunina á síðunni okkar og
bendum á hvar sé hægt að nálgast
fötin í þeirri borg.“
Hún segir að á síðustu árum hafi
netverslun með barnaföt aukist upp
í 30 til 40 prósent erlendis almennt
og þetta sé stór þáttur í því. „Við
erum að sjá mikið verslað frá Sví-
þjóð, Noregi og Frakklandi, en síðan
er Ástralía að koma sterk inn. Það
er að stórum hluta samfélagsmiðl-
um að þakka samhliða sterku vöru-
merki.“
Fyrirtækið hefur alltaf lagt gríð-
arlega mikið uppúr öllum myndum
sem eru í markaðsefninu þeirra.
„Hugmyndafræðin okkar er að fötin
séu þægileg fyrir börnin, en á sama
tíma töff. Það viljum við að sjáist í
gegnum myndirnar og að börnunum
líði vel,“ segir Tinna.
adda@frettabladid.is
Vinsælar hjá tísku-
bloggurum erlendis
Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Ígló&Indý, segir mikla möguleika á
samfélagsmiðlum fyrir fyrirtæki og sá markaður fari sífellt stækkandi.
MARKAÐSSETNING Í GEGNUM SAMFÉLAGSMIÐLA Guðrún Tinna Ólafsdóttir
segir samfélagsmiðlana hafa leikið stórt hlutverk í markaðssetningu Ígló&Indý
síðasta árið.
Ég var líka mikið í
hestum á þessum tíma
og mikið úti í náttúrunni.
Það er svo
gaman að sjá
bloggarana og
verslanirnar merkja
myndirnar
með okkar merki.
Guðrún Tinna Ólafsdóttir.
Ég tek kaffi latté fram yfir alla aðra
drykki og mun sötra einn á Austur-
velli klukkan fimm í dag.
Guðríður Haraldsdóttir, blaðamaður
MÁNUDAGSDRYKKURINN