Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.11.2014, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 06.11.2014, Qupperneq 2
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 ATVINNUMÁL „Þetta er enn einn skellurinn. Við erum alltaf jafn hissa og verðum fyrir jafn mikl- um vonbrigðum. Það er verið að fækka okkar félagsmönnum hjá ríkinu og við söknum þess að það sé ekki horft á heildarmyndina,“ segir Harpa Ólafsdóttir, forstöðu- maður kjarasviðs Eflingar stétt- arfélags, um uppsagnir sautján ræstitækna hjá Stjórnarráðinu. Þeir sem missa vinnuna eru allt konur, þar af eru þrettán yfir fimmtugu. Margar kvennanna hafa langan starfsaldur í Stjórn- arráðinu; meðal annars hafa tvær unnið þar í 20 ár, tvær í 19 ár og ein í 18 ár. Guðmundur H. Kjærnested, framkvæmdastjóri Rekstrar- félags Stjórnarráðsins, segir að unnið hafi verið að því undanfar- ið að gera rekstur félagsins hag- kvæmari. Vegna þess hafi verið ákveðið að breyta fyrirkomulagi ræstinga í fjórum ráðuneytum og bjóða þær út. „Rekstrarfélagið hefur þurft að laga rekstur sinn að veittum fjárheimildum og þessi aðgerð er liður í því,“ segir hann. Með breytingunum muni ræsting- ar verða unnar á dagvinnutíma en hingað til hafi starfsfólk ræstinga fengið greidd laun samkvæmt flatarmælingu og yfirvinnu. Guðmundur segir að búið sé í samstarfi við Ríkiskaup að und- irbúa útboð ræstinganna. Gert sé ráð fyrir að það verði aug- lýst í þessum mánuði og breytt fyrirkomulag innleitt í upphafi næsta árs. Hann segir niðurstöðu útboðsins munu leiða það í ljós hversu mikil hagræðingin verð- ur. Í útboðsskilmálum verði gerð sú krafa að sem flestu núverandi starfsfólki verði gefinn kostur á starfi hjá nýjum rekstraraðila. Á undanförn- um árum hefur mörgum félags- mönnum Efling- ar, sem starfa við ræstingar hjá ríkinu, verið sagt upp störfum. „Við höfum fylgst með þessum einstaklingum sem hafa verið að missa vinnuna, treysta sér ekki til þess að starfa undir ræstingarfyrirtækjunum á almenna markaðnum eða eru í raun bara búnir á líkama og sál og fara þá á örorkubætur,“ segir hún og veltir fyrir sér í hverju sparnaðurinn við það felist fyrir ríkið. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son forsætisráðherra frétti af uppsögnunum í fjölmiðlum. „Við höfum ekkert verið að velta því fyrir okkur að ráða annað fólk í ræstingarnar. Allavega vissi ég ekki til þess og myndi vita af því ef það væri í mínu ráðuneyti,“ sagði hann í Reykjavík síðdegis í gær. Hann sagði það mikilvægt að halda í reynslumikið fólk, sér í lagi þegar skapast hefur traust milli vinnuveitanda og starfs- fólks. viktoria@frettabladid.is Agnes, er að gerjast með ykkur að vera með freyðibað? „Já, landsmenn ættu að komast í alvöru bjórfreyðibað árið 2017.“ Agnes Anna Sigurðardóttir er einn eigenda Kalda sem hyggst opna svokallað bjórspa við brugghús sitt í Eyjafirði. NOREGUR Jólagjöf Óslóar til Reykjavíkur, hið víðfræga Óslóartré, var fellt í Östmarka í gær. Efnt var til hátíðlegrar athafnar af því tilefni þar sem sendiherra Íslands í Noregi, Gunnar Pálsson, tók við trénu. Hann þakkaði Carl I. Hagen, fulltrúa borgarinnar, fyrir tréð en það er um tólf og hálfur metri á hæð. Tuttugu og fimm einstaklingar voru viðstaddir athöfnina, þeir sungu jólalög, drukku kaffi og borðuðu hveitibollur. Ljósin á trénu verða tendruð á Austurvelli 30. nóvember næstkomandi. - nej Jólagjöf Óslóar til Reykjavíkur afhent við hátíðlega athöfn: Felldu Óslóartréð og sungu jólalög SÆLIR Carl I. Hagen, fulltrúi Óslóarborgar, og Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Noregi, söguðu tréð saman í gær áður en það var afhent. MYND/SENDIRÁÐ ÍSLANDS Í OSLÓ Ekki ljóst hvað mun sparast á uppsögnum Framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Stjórnarráðins segir uppsagnir ræstitækna hluta af því að gera reksturinn hagkvæmari. Búið sé að undirbúa útboð á ræstingunum sem verði nú unnar á dagvöktum. Forsætisráðherra segist ekkert hafa vitað. HAGRÆÐING Með uppsögnunum á að hagræða í Rekstrarfélagi Stjórnarráðsins. Ræstingar verða boðnar út. SJÁVARÚTVEGUR Álögð veiðigjöld fiskveiðiárið 2013/2014 skiluðu ríkissjóði 9,2 milljörðum króna. Almenna veiðigjaldið gaf 4,4 millj- arða en það sérstaka 6,1 milljarð. Afslættir samkvæmt bráðabirgða- ákvæði námu rúmlega 1,4 millj- örðum. Þetta kemur fram í svari sjávar útvegsráðherra við fyrir- spurn Kristjáns L. Möller, þing- manns Samfylkingarinnar, en gjöldin voru einnig greind eftir kjördæmum. Reykjavíkurkjör- dæmi er að baki 2,2 milljörðum; Suðurkjördæmi þremur milljörð- um; Norðausturkjördæmi 2,7 millj- örðum; Norðvesturkjördæmi 1,2 milljörðum og Suðvesturkjördæmi 171 milljón. - shá Afslættir 1,6 milljarðar: Veiðigjöld gáfu 9,2 milljarða SPURNING DAGSINS SVEITARSTJÓRNIR Þótt Kópavogsbær hafi um mán- aðamótin ákveðið að greiða starfsmönnum aðeins laun fram til 10. nóvember vegna verkfalls bæjar- starfsmanna sem þá kann að hefjast eru notendur þjónustu bæjarins rukkaðir um full gjöld út mán- uðinn. „Ástæðan fyrir því að það voru innheimt full þjónustugjöld er sú það liggur ekki fyrir hvernig þjónustan skerðist. En þegar það liggur fyrir verð- ur skoðað hvernig gjöldin verða leiðrétt,“ segir Sig- ríður Björg Tómasdóttir, upplýsingafulltrúi Kópa- vogsbæjar. Um er að ræða gjöld fyrir leikskóla, dægradvöl á borð við frístundaheimili í skólum og fyrir ýmsa þjónustu við eldri borgara og fatlaða. Viðræðum samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og samninganefndar Starfsmanna- félags Kópavogs var slitið eftir árangurslausar við- ræður í gær. Það stefnir því að verkfall starfsmanna hefjist á mánudagsmorgun. Sigríður segir ástæðu viðræðu slitanna vera ófrá- víkjanlega kröfu starfsmannafélagsins um að sér- ákvæði um háskólamenntaða félagsmenn verði áfram hluti af kjarasamningi. Ákvæðið, sem feli í sér ójafnræði gagnvart stétt- arfélögum, varði tæplega tuttugu af um átta hund- ruð félagsmönnum starfsmannafélagsins. - gar Samningaviðræðum slitið í Kópavogi og verkfall starfsmanna yfirvofandi: Halda launum en rukka gjöldin BÆJARSTJÓRI KÓPAVOGS Ármann Kr. Ólafsson og aðrir stjórnendur Kópavogsbæjar standa frammi fyrir verkfalli 800 bæjarstarfsmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SKIPULAGSMÁL „Krefjumst við þess að ákvörðun þessi verði felld úr gildi,“ segir í bréfi eigenda Austur- brúnar 14 sem kært hafa ákvörðun borgarráðs um byggingu sambýlis fyrir fjölfatlaða við Austurbrún 6. Fjölmargir nágrannar hins fyrir- hugaða sambýlis mótmæltu bygg- ingunni á meðan málið var til skoðunar hjá skipulagsyfirvöldum borgarinnar. Í kærunni er vísað til athugasemda sem áður hafa fram komið. Þær snerust meðal annars um að breytingin væri ólögmæt, verið væri að raska grónu hverfi og að verðmæti eigna núverandi íbúa myndi minnka. Í umsögn borgarinnar til úrskurð- arnefndar umhverfis- og auðlinda- mála er rökum kærendanna öllum hafnað. Húseigendur í þéttbýli geti alltaf átt von á að breytingar verði sem skerði þeirra hagsmuni að ein- hverju leyti. Nýta eigi lóð sem sé vannýtt. „Með þessum fyrirætlun- um er verið að höfða til almennra hagsmuna en ekki sérhagsmuna,“ segir í umsögninni frá borginni. - gar Nágrannar sambýlis fjölfatlaðra kæra borgarráð til úrskurðarnefndar: Borgin segir almannahag ráða för AUSTURBRÚN 6 Byggja á sambýli sem verður heimili fyrir sex fjölfatlaða ein- staklinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI JAFNRÉTTI Á vettvangi norræns samstarfs hefur verið lögð áhersla á aukna þátttöku og ábyrgð karla og drengja í barátt- unni fyrir auknu jafnrétti. Norræna ráðherranefndin um jafnréttismál hefur því ákveð- ið að skipaður verði starfshópur sem skili nefndinni tillögum um norrænar aðgerðir um hvernig auka megi þátttöku karla og drengja í starfi að auknu kynja- jafnrétti, að því er segir á vef vel- ferðarráðuneytisins. - ibs Jafnrétti á Norðurlöndum: Kallað eftir þátttöku karla ORKUMÁL Beiðni Biokraft ehf. um að fá að setja upp 62 metra háa vindmyllu á Stað í landi Grinda- víkur hefur verið hafnað. Fulltrúar skipulags- og umhverfisnefndar Grinda- víkur skoðuðu sams konar vindmyllur í Þykkvabæ og segja þær ekki falla vel að nátt- úrunni í nágrenni bæjar- ins. „Sem stendur er mikil vinnsla á vistvænni orku í sveitarfélaginu í gegnum jarðvarma og ekki fyrir- séð orkuþörf sem kalli eftir uppsetningu vindmylla við strandlengju sveitarfélags- ins.“ - gar Ekki byr í seglin hjá Biokraft: Fá ekki myllu við Grindavík Kringlan 588 2300 af öllum vörum Miðnætursprengja HARPA ÓLAFSDÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.