Fréttablaðið - 06.11.2014, Page 4
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
STJÓRNSÝSLA Stjórnendur Íbúða-
lánasjóðs hafna því alfarið að laga-
heimild skorti fyrir stofnun og
rekstri leigufélagsins Kletts, eins
og Benedikt Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Búseta á Norður-
landi, hélt fram í Fréttablaðinu í
gær.
Stjórnendur Íbúðalánasjóðs
segja að með lagabreytingu árið
2012 hafi Íbúðalánasjóði verið
heimilað að eiga leigufélag um
fullnustueignir sjóðsins. Skortur
á reglugerð frá ráðuneyti breyti
engu um gildi þeirra laga. „Klett-
ur er sjálfstætt félag sem hefur
sitt starfsfólk, sína stjórn og aðra
starfsstöð en Íbúðalánasjóður.
Stjórn Kletts er skipuð af stjórn-
völdum og hvorki starfsmenn
né forstjóri Íbúðalánasjóðs hafa
aðkomu að rekstri leigufélagsins.
Þar er því fullur stjórnunarlegur
aðskilnaður. Klettur hefur auk
þess engan aðgang að upplýsing-
um hjá Íbúðalánasjóði. Allt tal um
annað er fráleitt,“ segja stjórnend-
ur Íbúðalánasjóðs í tilkynningu.
Þá segir að stjórnendur Íbúða-
lánasjóðs telji kærumál til ESA
vegna leigufélagsins Kletts vera
tilhæfulaust.
„Félagsmönnum Búseta Norð-
urlands er hins vegar í sjálfsvald
sett ef þeir telja tíma og fjármun-
um félagsins vel varið í málarekst-
ur fyrir eftirlitsdómstóli EFTA.
Íbúðalánasjóður tjáir sig ekki
um málarekstur af því tagi, enda
mundu slíkar kærur beinast að
ríkisvaldinu, ef til þeirra kæmi.“
- jhh
Stjórnendur Íbúðalánasjóðs segjast hafa fulla lagaheimild fyrir stofnun og rekstri leigufélagsins Kletts:
Hafna ásökunum framkvæmdastjórans
AKUREYRI Búseti á Norðurlandi gerir
athugasemdir við rekstur Kletts.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
DÓMSMÁL Sigurður Ingi Þórðar-
son, betur þekktur sem Siggi
hakkari, var í gær í Hæstarétti
úrskurðaður í
gæsluvarðhald
til 28. nóvember.
Ríkissaksókn-
ari hefur, sam-
kvæmt greinar-
gerð lögreglu,
ellefu kynferð-
isbrotamál til
meðferðar þar
sem Sigurður
hefur stöðu sakbornings.
Samkvæmt mati geðlæknis er
Sigurður haldinn persónuleika-
röskun, siðblindur en sakhæfur.
Hann eigi erfitt með að hemja
sjálfan sig og iðrist ekki gerða
sinna. - nej
Grunur um 11 kynferðisbrot:
Sakhæfur þrátt
fyrir siðblindu
SIGURÐUR INGI
ÞÓRÐARSON
SPÁNN Teresa Romero, spænska
hjúkrunarkonan sem þekkt er
fyrir að vera fyrsta manneskjan
utan Vestur-Afríku sem smitast af
ebólu, fékk að fara heim af spítala
í gær.
Lý s t i h ú n
raunum sínum
á dramatískan
máta á blaða-
mannafundi sem
haldinn var í til-
efni af heimför
hennar.
Romero sagði
einangrunina
hafa verið erfiða. Hún sagði jafn-
framt að henni hefði ekki þótt
sjúkdómurinn skipta hinn vest-
ræna heim máli fyrr en smit kom
upp þar.
Romero sagðist sjálf myndu gefa
blóð sitt „þar til það yrði uppurið“
ef það hjálpaði sjúklingi sem væri
ebólusmitaður. - nej
Myndi gefa allt blóð sitt:
Spænska konan
komin heim
TERESA ROMERO
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
1.112 fyrirtæki urðu gjald-þrota árið 2012
en þeim fækkaði um 30% frá árinu
á undan þegar þau voru 1.579.
Flest gjaldþrot voru í byggingastarf-
semi og mannvirkjagerð.
Vinnuvernd ehf.
Brautarholt 28
105 Reykjavík
s: 5780800
www.vinnuvernd.is
vinnuvernd@vinnuvernd.is
VINNUVERNDehf
HEILBRIGÐISMÁL Forsvarsmenn
45 sjúklinga- og aðstandenda-
samtaka afhentu í gær Einari
K. Guðfinnssyni, forseta Alþing-
is, áskorun til stjórnvalda um að
ráða nú þegar bót á því alvarlega
ástandi sem ríkir á Landspítal-
anum.
Skora þau á stjórnvöld að end-
urskoða fyrirhugaðan niðurskurð
í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórn-
arinnar. Telja félögin að niður-
skurðurinn muni valda ómæld-
um kostnaði fyrir spítalann og
alla sem njóta þjónustu hans og
þess öryggis sem því fylgir að
hafa aðgang að sérhæfðri heil-
brigðisþjónustu.
Ragnheiður Haraldsdóttir,
forstjóri Krabbameinsfélags-
ins, segist finna fyrir vaxandi
áhyggjum vegna ástandsins hjá
krabbameinssjúklingum. „Því
miður ekki að ástæðulausu,“
segir hún og á þá við ástand
Landspítalans sjálfs. „Svo bæt-
ist við verkfallið sem felur í sér
að verið er að fresta aðgerðum
og meðferðum. Menn vita ekk-
ert hvað býr í framtíðinni hvað
þetta varðar. Heilbrigðisstarfs-
fólk talar almennt ekki mikið um
hættur í heilbrigðis þjónustunni
en við heyrum að það er farið að
tala öðruvísi núna. Okkur finnst
mörgum að við náum ekki eyrum
stjórnvalda og þrátt fyrir mikla
umræðu undanfarið er eins og
menn séu ekki að bregðast við.
Eins og þeir trúi þessu ekki
alveg.“
Guðmundur Bjarnason, for-
maður stjórnar Hjartaheilla,
tekur í sama streng. „Við telj-
um afar mikilvægt að stjórnvöld
fáist til þess að hlusta á óskir
okkar og þær áhyggjur sem við
höfum af ástandi á Landspítal-
anum.“
Hann segir áhyggjurnar einn-
ig snúa að því að ungt fólk vilji
ekki koma til starfa á spítalan-
um vegna þess að hann sé ekki
samkeppnishæfur þegar litið sé
til spítala í nágrannalöndunum.
Guðmundur segir að ályktun-
in hafi fyrst og fremst snúið að
innviðum og ástandi spítalans
án þess að félögin vilji blanda
sér í kjaradeilur. Hann segir þó
ástandið vegna verkfalls lækna
hafa mikil áhrif á skjólstæðinga
Hjartaheilla.
„Við finnum alltaf fyrir
hræðslu þeirra sem eru á biðlist-
um eftir aðgerðum. Það er mjög
góð og skjót þjónusta í neyðartil-
fellum þar sem þarf að bregðast
strax við. Það eru biðlistarnir
sem við höfum áhyggjur af og við
þessar aðstæður geta þeir ekkert
annað en lengst. Fólk er að verða
fyrir áföllum, t.d. ótímabærum
dauðsföllum, fólk á besta aldri
er að falla frá vegna þess að það
fær ekki strax þá þjónustu sem er
lífsnauðsynleg. Það er því miður
að gerast.“ viktoria@frettabladid.is
Hafa miklar áhyggjur
af stöðu Landspítalans
Forseti Alþingis tók við áskorun til stjórnvalda um að hætta við fyrirhugaðan niðurskurð í fjárlagafrumvarpi.
Áhyggjur sjúklinga eru sagðar aukast og formaður Hjartaheilla segir fólk deyja meðan biðlistarnir lengist.
AFHENTU
ÁSKORUN For-
svarsmenn ýmissa
samtaka afhentu
forseta Aþingis,
áskorun til stjórn-
valda, í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
RAGNHEIÐUR
HARALDSDÓTTIR
GUÐMUNDUR
BJARNASON
Verkfallsaðgerðir lækna í
Læknafélagi Íslands hafa nú
staðið í rúma viku. Enn virðist
langt í land með að komist verði
að niðurstöðu sem bæði læknar
og ríki geta unað. Fundur með
almennum læknum verður í dag
klukkan 9 og er næsti fundur við
skurðlækna áætlaður á miðviku-
dag í næstu viku. Í gær lögðu
læknar á skurðlækningasviði og
geðsviði Landspítalans niður
störf og verða í verkfalli þar til
klukkan 16 í dag. Bráðaþjónustu
er sinnt en annarri þjónustu ekki.
Göngudeildir skurðlækninga
og augnlækninga verða einnig
lokaðar í dag.
Viðræður þokast
ekkert
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
KRÖPP LÆGÐ stýrir veðrinu hjá okkur í dag og næstu daga. Það verður yfirleitt bæði
vinda- og úrkomusamt á landinu. Á morgun kólnar heldur með norðanátt og snjókomu
norðanlands en um leið léttir heldur til sunnan til.
4°
5
m/s
5°
8
m/s
7°
4
m/s
9°
6
m/s
15-20 m/s
vestan til
um tíma
en heldur
hægari
vindur
annars.
Víða 5-10
m/s en
10-15
m/s V- og
N-til.
Gildistími korta er um hádegi
14°
28°
3°
11°
18°
5°
5°
11°
11°
25°
12°
16°
21°
21°
15°
11°
9°
9°
7°
3
m/s
8°
12
m/s
5°
11
m/s
5°
14
m/s
4°
3
m/s
5°
4
m/s
2°
3
m/s
4°
2°
-1°
-4°
6°
3°
4°
-1°
3°
-3°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN