Fréttablaðið - 06.11.2014, Síða 6

Fréttablaðið - 06.11.2014, Síða 6
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvað ætla eigendur Bruggsmiðjunnar Kalda að opna? 2. Hvar verður fyrsta rafbílaleigan á landinu? 3. Hvað heitir bók Bjarna Bjarnasonar sem gefa á út í Englandi? SVÖR: 1. Bjórspa. 2. Í Hafnarfi rði. 3. Hálfsnert stúlka. HEILBRIGÐISMÁL Könnun sem gerð var í Breiðholti sýndi að árið 2012 mældust 26 prósent stúlkna með kvíða. Kvíðinn mældist einnig mikill hjá piltum, en með mark- vissu inngripi var hægt að draga úr kvíðanum. Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks- ins, greindi frá þessu á Alþingi í gær þegar hann mælti fyrir til- lögu um aðgerðaráætlun um geð- heilbrigðisþjónustu fyrir börn. Tillagan felur í sér að geðheil- brigðisþjónusta og aðgengi að sálfræðimeðferð fyrir börn, ung- linga og fjölskyldur þeirra verði bætt. Meðal annars með auknu aðgengi að hugrænni meðferð og námskeiðum í foreldrafærni á borð við PMT og SOS. Karl telur að þessi áætlun sé mjög raunhæf. „Vegna þess að þetta hefur verið prófað áður í Breiðholtinu,“ segir Karl og þar hafi tekist að draga úr kvíða og þunglyndi á meðal barna. „Að gera svona á landsvísu, að leggja svona próf fyrir og bjóða þjón- ustu sem er ekki fyrir hendi núna nema í mjög takmörkuðum mæli myndi gjörbreyta stöðunni hjá þúsundum barna,“ segir Karl. Hvorki heilbrigðisráðherra né velferðarráðherra tóku þátt í umræðunni þegar Karl flutti til- lögu sína á Alþingi í gær. En Karl segist hafa rætt málin við Eygló og fengið jákvæð viðbrögð. Frá árinu 2013 hefur Barna- verndarstofa staðið að þjálfun PMT-meðferðaraðila um land allt. Þeir meðferðaraðilar sjá svo um handleiðslu og stuðning fyrir fagfólk sem vinnur með börn- um og fjölskyldum þeirra víða um land. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er framhald á því verkefni í uppnámi vegna þessa að fjárveitingar skortir. Aðspurð- ur viðurkennir Karl að það séu ekki til fjárveitingar til að ýta þessari aðgerðaráætlun úr vör. „En tilgangur tillögunnar er sá að það verði sett á laggirnar nefnd sem skili tillögum á næsta ári og síðan verður í framhald- inu að finna framlög til að fylgja þessu máli eftir,“ segir Karl. Sú vinna muni skila sér margfalt til framtíðar. jonhakon@frettabladid.is Getur breytt stöðu þúsunda barna Ekki eru til peningar til að fjármagna aðgengi barna og fjölskyldna þeirra að hugrænni meðferð og foreldrafærninámskeiðum. Að mati þingmanns myndi slík aðstoð breyta stöðu þúsunda barna. Það verði að finna fjármagn til þess. BUGL Karl Garð- arsson telur mikil- vægt að aðgengi að sálfræðimeð- ferð fyrir börn, unglinga og fjöl- skyldur þeirra verði bætt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVEITARSTJÓRNIR Kjartan Magnús- son borgarfulltrúi fékk ekki að nota glærur á fundi borgarstjórnar í fyrradag. Til umræðu voru bætt göngutengsl barna og ungmenna yfir Hringbraut. Sóley Tómasdóttir, forseti borgar stjórnar, sagði að gögn sem sýna ætti á glærum þyrftu að ber- ast forsætisnefnd fyrir fund og þótti ekki við hæfi að gera hlé til að framkvæma „skyndihugdettu“. Kjartan lýsti yfir vonbrigðum sínum með forsetann. - fbj Deilur í borgarstjórn: Fékk ekki að nota glærur LÖGREGLUMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært fjörutíu einstaklinga vegna vændismála. Þeir eru ýmist ákærðir fyrir að greiða fyrir vændi, að heita greiðslu fyrir vændi eða til- raunir til þess. Með því hafi þeir brotið gegn fyrstu málsgrein 206. greinar almennra hegningarlaga þar sem kveðið er á um að brot af þessu tagi varði sektum eða fangelsi allt að einu ári. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins munu öll brotin hafa verið framin í Reykjavík sumarið 2013. Mennirnir munu allir hafa verið í samskiptum við sömu kon- una sem er lettnesk. Hún er farin af landi brott. Lögreglustjórinn á Suð- urnesjum hafði brotin til rannsókn- ar og beitti meðal annars símhler- unum. Rannsókninni lauk í júlí og voru þá 64 mál send ríkissaksókn- ara. Ákærurnar verða þingfestar í Héraðsdómi Reykjavíkur föstudag- inn 14. nóvember næstkomandi. Almennum hegningarlögum var breytt árið 2009 og kaup á vændi gerð refsiverð. - jhh Lögreglan á Suðurnesjum beitti símhlerunum við rannsókn á vændismáli: 40 ákærðir fyrir vændiskaup VÆNDISKAUPANDI Þetta er í þriðja sinn sem ákært er í vændiskaupamálum af þessu tagi. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins enda málin jafnan með sektargreiðslum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HEILBRIGÐISMÁL Fólksfækkun og auknar kröfur um menntun hafa leitt til þess að Heilbrigðisstofn- un Norðurlands á erfitt með að manna stöður sjúkraflutninga- manna á Raufarhöfn, Kópaskeri og Þórshöfn. Í fundagerð byggðaráðs Norð- urþings segir enn fremur að verið sé að hugsa um að hafa mannaða sjúkrabíla einungis á Þórshöfn og Húsavík. Á Raufarhöfn og Kópaskeri yrði komið upp svokölluðu vett- vangsliðakerfi. Á hverjum stað fengju sex til átta vettvangsliðar grunnþjálfun til að veita fyrstu hjálp meðan beðið er eftir lækni og sjúkraflutningsmönnum. Rætt hafi verið um að það verði sömu menn og eru í slökkviliði Norður- þings. Eftir breytingarnar yrði til betri neyðarþjónusta og öflugra slökkvilið. - gar Fólksfækkun og auknar kröfur um menntun skapa vanda í sjúkraflutningum: Missa sjúkrabíl frá Raufarhöfn RAUFARHÖFN Mannaðir sjúkrabílar heyra brátt sögunni til á Raufarhöfn og Kópaskeri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR En tilgangur tillögunnar er sá að það verði sett á laggirnar nefnd sem skili til- lögum á næsta ári og síðan verður í fram- haldinu að finna framlög til að fylgja þessu máli eftir. Karl Garðarsson alþingismaður Bæði SOS– Hjálp fyrir foreldra og PMT eru námskeið í foreldrafærniþjálfun, en einnig ætluð fagaðilum sem starfa með börnum. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur séð um rekstur SOS-námskeiðanna á Íslandi allt frá árinu 2000 og á höfundarrétt á því. Á námskeiðinu kenna sálfræðingar þrjár grundvallarreglur sem hafa ber í huga í uppeldi barna og að forðast ferns konar mistök. PMT stendur fyrir Parent Management Training, en aðferðin er upprunnin í Oregon í Bandaríkjunum. Aðferðin var upprunalega kennd á vegum fræðsluyfirvalda í Hafnarfirði en haustið 2013 varð hún hluti af úrræðum Barnaverndarstofu. Foreldrafærninámskeiðin SOS og PMT VEISTU SVARIÐ? Göngugreining Pantaðu tíma í síma 5173900 Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900 Vandamál sem göngugreining Flexor getur hjálpað til við að leysa eru til dæmis: • þreytuverkir og pirringur í fótum • verkir í hnjám • sársauki eða eymsli í hælum (hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.) • beinhimnubólga • óþægindi eða verkir í baki og/eða mjöðmum • verkir í tábergi og/eða iljum • hásinavandamál • óþægindi í ökklum • þreytu- og álagsverkir hjá börnum og unglingum MB SL 55AMG Carlson til sölu • Innfluttur af Ræsi í okt. 2003 • Einn eigandi • Breyttur af Carlson • 580 HP • 880 Torque N/M • Ekinn 36.000 • CD • Loftkæling • Lyklalalaust aðgengi • GSM sími tengdur audio kerfi “Hand free” • Ný dekk • 20” Carlson felgur • Regn skynjari • Xenon ljós • Niðurfellanlegt þak • Hiti og kæling í sætum • Þessi bíll er með öllum mögulegum auka- hlutum þó ekki Navi Einstakt eintak af SL bíl Verð 9.990.000 Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.