Fréttablaðið - 06.11.2014, Síða 18
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
Vonir okkar standa til þess að þessi hækk-
un á markaðsverði á áli sé komin til að vera og
það eru aðrar markaðsforsendur eins og lækkun
á álbirgðum í heiminum sem styðja við þetta.
Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls
AFKOMA ÁLFYRIRTÆKJANNA ÁRIN 2012-2013
Fjarðaál
33,30 ➜ 10,69
2012 2013
Norðurál
46,57 ➜ 27,58
2012 2013
Rio Tinto
Alcan
-15,36 ➜ -31,79
2012 2013
Grundartangi
Hafnarfjörður
Reyðarfjörður
Heimild: ársreikningar fyrirtækjanna
milljónir dala
milljónir dalamilljónir dala
Seðlabankinn spáir því að hag-
vöxtur verði 2,9 prósent á árinu,
en ekki 3,4 prósent eins og bank-
inn gerði ráð fyrir í ágúst, og
líkur eru á að verðbólga hjaðni
frekar á næstu mánuðum.
Þetta var á meðal þess sem
kom fram á fundi Seðlabankans
í gær þar sem Már Guðmunds-
son seðlabankastjóri og Þórarinn
G. Pétursson, aðalhagfræðingur
bankans, kynntu efni Peninga-
mála.
Már útskýrði þar einnig
ákvörðun peningastefnunefndar
Seðlabankans í gær um að lækka
vexti bankans um 0,25 prósentu-
stig. Seðlabankastjóri bentu á að
nafnvextir bankans hefðu verið
óbreyttir í tvö ár en að forsend-
ur hefðu skapast til að draga úr
hækkun raunvaxta.
- hg
Stýrivextir lækka um 0,25%:
Bankinn spáir
2,9% hagvexti
SEÐLABANKASTJÓRI Már Guðmunds-
son segir miklar launahækkanir í kom-
andi kjarasamningum geta valdið því að
hækka þurfi vexti á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FYRIRTÆKIÐ Í tilkynningu Fjarskipta segir að góð niðurstaða skýrist helst af mark-
vissum kostnaðaraðgerðum og tekjustýringu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Upplifðu róf allra tækifæra, möguleika og
sjónarhorna. Notfærðu þér einstakan fjölbreytileika
fyrir megin- og viðbótar vöruúrval þitt. Ambiente
er mikilvægasti viðburðurinn á alþjóðlega
neytendavörumarkaðnum og hvetjandi uppspretta
innblásturs fyrir fyrirtækið þitt. Þetta er sýningin
sem endurspeglar heimsmarkaðinn.
Upplýsingar og miðar á forsöluverði:
Sími: +45 39 40 11 22
dimex@dimex.dk
13. – 17. 2. 2015
Samstarfsland
Rekstur Fjarskipta hf. (Voda-
fone) skilaði 476 milljóna króna
hagnaði á þriðja ársfjórðungi
samanborið við 415 milljóna
hagnað á sama tíma 2013.
Samkvæmt uppgjörstilkynn-
ingu fjarskiptafyrirtækisins
hefur afkoma fyrirtækisins
aldrei verið betri á einum fjórð-
ungi. Hagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsliði, EBITDA, nam
1.023 milljónum króna og jókst
um fjögur prósent. EBITDA-
hagnaður Fjarskipta hefur aldrei
áður farið yfir milljarð króna á
einum fjórðungi.
Stefán Sigurðsson, forstjóri
Fjarskipta, segir niðurstöðuna
ánægjulega og að hún skýrist af
markvissum kostnaðaraðgerðum
og tekjustýringu.
„Tekjur voru
stöðugar en á
sama tíma tókst
með markviss-
um aðgerðum
að lækka kostn-
aðarverð sem
bætir framlegð
umtalsvert,“
segir Stefán.
Eiginfjárhlut-
fall fyrirtækisins er nú 53 pró-
sent.
„Á ársfjórðungnum var jafn-
framt lögð lokahönd á nýja stefnu
fyrir félagið auk þess sem áfram
var unnið að styrkingu innviða og
öryggismála. Allt framangreint
eru mikilvæg verkefni sem
styrkja félagið til framtíðar.“
- hg
Besta ársfjórðungsniðurstaða félagsins frá upphafi:
Hagnaður Vodafone
eykst um 15 prósent
STEFÁN
SIGURÐSSON
IÐNAÐUR Íslensku álverin högn-
uðust um samtals 6,48 milljón-
ir Bandaríkjadala, jafnvirði 798
milljóna króna, á síðasta ári. Sam-
anlagður hagnaður fyrirtækjanna
dróst þá saman um 90 prósent frá
árinu 2012 þegar afkoman var
jákvæð um 64,5 milljónir dala.
Hagnaður Alcoa Fjarðaáls í
fyrra nam 10,7 milljónum dala,
samkvæmt ársreikningi sem fyrir-
tækið skilaði til ársreikningaskrár
ríkisskattstjóra í síðustu viku.
Rekstur álversins, sem er í eigu
bandaríska álrisans Alcoa, skil-
aði hins vegar 33,3 milljóna dala
hagnaði árið 2012. Sölutekjur fyr-
irtækisins minnkuðu um 8,6 millj-
ónir dala árið 2013 miðað við árið
á undan. Rekstrarkostnaður jókst
að auki um rúmar þrjár milljónir
dala.
Magnús Þór Ásmundsson, for-
stjóri Alcoa Fjarðaáls, segir
afkomu fyrirtækisins háða mark-
aðsverði á áli og bendir á þá stað-
reynd að álverð lækkaði talsvert á
árunum 2012 og 2013.
„Álverð hefur nú hækkað og
það hefur áhrif á tekjur félags-
ins. Vonir okkar standa til þess
að þessi hækkun á markaðsverði
á áli sé komin til að vera og það
eru aðrar markaðsforsendur eins
og lækkun á álbirgðum í heim-
inum sem styðja við þetta,“ segir
Magnús. Hann vill ekki svara því
hvort fyrirtækið geri ráð fyrir að
afkoman batni á þessu ári og segir
fyrirtækið almennt ekki tjá sig um
niðurstöður ársreikninga.
Rekstur Norðuráls á Grundar-
tanga skilaði 27,6 milljóna dala
hagnaði árið 2013, jafnvirði 3,4
milljarða króna, eins og komið
hefur fram í Fréttablaðinu.
Árið 2012 var álverið rekið með
jákvæðri afkomu upp á 46,6 millj-
ónir dala og dróst hagnaðurinn því
saman um 41 prósent milli ára.
Einnig hefur komið fram að
álver Rio Tinto Alcan í Straumsvík
var rekið með 31,8 milljóna dala,
um 3,9 milljarða króna, tapi á síð-
asta ári. Tap félagsins fyrir skatta
nam 41,3 milljónum dala.
Pétur Blöndal, framkvæmda-
stjóri Samtaka álframleiðenda
(Samáls), segir jákvæðar horfur í
áliðnaði en tekur fram að hann geti
ekki spáð um afkomu einstakra
fyrirtækja.
„Það blasir við að afkoman í
heild ræðst af álverði og það sveifl-
ast og ef við lítum til ársins 2012
var meðalálverð hjá LME (London
Metal Exchange) 2.018 dollarar á
tonn og það fór síðan niður í 1.845
dollara árið 2013 og það hefur auð-
vitað áhrif,“ segir Pétur.
„Ef við horfum á meðalverð
þessa árs þá er það 1.847 dollarar.
Það ræðst af því að verðið sveifl-
aðist niður í upphafi ársins en það
Hagnaður álveranna þriggja
dróst saman um 90 prósent
Afkoma Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði var jákvæð um 1,3 milljarða króna á síðasta ári miðað við 4,1 milljarðs
hagnað árið 2012. Samanlagður hagnaður íslensku álveranna þriggja á árinu 2013 nam 798 milljónum króna.
hefur styrkst mjög á seinni hluta
ársins og er núna í 2.050 dollurum.
Maður leyfir sér því að vona að það
sé bjart fram undan í þeim efnum
enda skín það í gegn í fréttum við-
skiptablaða og greiningardeilda
að það er mikil umframeftirspurn
í Evrópu og Bandaríkjunum og það
dregur úr birgðum.“
haraldur@frettabladid.is