Fréttablaðið - 06.11.2014, Qupperneq 20
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is
MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
FRÁ DEGI
TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
Fulltrúi útgerðarinnar var kjörinn
Alþingi hefur kosið þingmenn til
starfa í samráðsnefnd um veiðigjöld.
Einn þingmaður kemur úr hverjum
þingflokkanna sex, sem eiga sæti á
Alþingi. Trúlegast er að skiptar skoð-
anir verði meðal sumra þeirra þing-
manna sem voru kjörnir í nefndina.
Meðal nefndarmanna er Lilja Rafney
Magnúsdóttur, Vinstri grænum, sem
hefur bjargfasta trú á að útgerðin
borgi ekki nóg og svo á sæti í nefnd-
inni þingmaðurinn, sem lýsti því
yfir í ræðustól Alþingis, að hann
sæti á þingi sem fulltrúi út-
gerðarinnar, það er Páll Jóhann
Pálsson, þingmaður Framsókn-
arflokksins í Suðurkjördæmi
og Grindvíkingur. Trúlegast er
hann annarrar skoðunar
en Lilja Rafney.
Bjarni seinn til svara
Athygli vakti þegar Oddný G. Harðar-
dóttir sagði á Alþingi að hún hefði 18.
september spurt Bjarna Benediktsson
um þann virðisaukaskatt sem ein-
staklingar greiða. Hún sagði 47 daga
og þar af 33 virka frá fyrirspurninni og
minnti á að ráðherra hefur fimmtán
virka daga til að skila inn skriflegu
svari. „Þarna er um að ræða upp-
lýsingar sem fleiri en ég eru að bíða
eftir og skiptir miklu máli
vegna afgreiðslu á stóru
stefnumáli ríkisstjórnar-
innar,“ sagði Oddný.
Einar K. Guðfinnsson,
forseti þingsins, sagði
þetta bagalegt, en benti á
að nú væru fyrirspurnir fleiri
en áður og því gætu
svör dregist.
Þingkona Framsóknar vildi meira
Elsa Lára Arnardóttir, þingkona
Framsóknarflokksins á Akranesi,
segist aldrei hafa farið í felur með
að hún vildi meiri skuldaleiðrétt-
ingar en nú verða gerðar. „ … en ég
er samt ánægð með að um sé að
ræða almenna aðgerð sem mun ná
til um 70 þúsund heimila. Framsókn
hefur barist fyrir þessum málum
og það má alveg koma fram að
ef Framsóknarflokkurinn væri
ekki í ríkisstjórn, þá hefði ekki
komið til þessarar beinu niður-
færslu. Svo einfalt er það nú,“
skrifar þingkonan Elsa Lára á
Facebook-síðu sína. Ljóst er að
spennan magnast, það styttist
í opinberun leiðréttingar
ríkisstjórnarinnar.
sme@frettabladid.is
L
ögreglustjórinn í Reykjavík mætti fyrir þingnefnd til að
svara til um njósnir og gagnasafn lögreglunnar um lýð-
frjálsa samborgara sína. Eins og kunnugt er safnaði lög-
reglan býsnum af upplýsingum um almenning og færði
í skýrslur. Áherslan virðist hafa verið lögð á að færa til
bókar stjórnmálaskoðanir þeirra sem lögreglunni þótti ástæða til
að afla upplýsinga um. Starf lögreglunnar var nokkuð umfangs-
mikið. Flugumenn lögreglunnar fóru víða við upplýsingaöflun
sína.
Hvað um aðrar njósnir? „Eftir því sem ég best veit þá er þetta
einstakt dæmi. Ég veit ekki til
þess að það séu til fleiri svona
skýrslur. Ég hef a.m.k. ekki séð
fleiri svona skýrslur,“ sagði
Sigríður Björk Guðjónsdóttir við
þingnefndina í gær. Lögreglu-
stjórinn gætir þess að fullyrða
ekkert um önnur tilfelli. Segi hún
satt má ráða að hún hafi kosið að
spyrja einskis, vita ekkert um önnur njósnamál lögreglunnar, séu
þau til staðar, og kýs að hafa allan fyrirvara á svari sínu. Hún veit
ekki, hefur ekki séð önnur mál. Hún hikar í svarinu.
Á sama tíma segir lögreglustjórinn lögregluna safna upp-
lýsingum um þá sem standi fyrir mótmælum á hverjum tíma og
hvernig þau fara fram. En er lögreglan þá með einhverjum hætti
í dag að safna upplýsingum um stjórnmálalegar skoðanir ein-
staklinga í þjóðfélaginu? „Nei, ég get fullyrt að svo er ekki. Við
höldum ekki gagnagrunna um skoðanir fólks, pólitískar skoðanir
eða neitt slíkt,“ sagði Sigríður Björk. Vandséð er hvernig þetta
fer saman, að safna upplýsingum um fólk og segja nánast í sama
svari að ekki séu haldnir gagnagrunnar um skoðanir fólks, meðal
annars pólitískar skoðanir „ … eða neitt slíkt.“ Þetta svar verður
seint kokgleypt.
Því kom lögreglustjórinn ekki betur undirbúinn til fundar við
þingnefndina? Hvers vegna var ekki hægt að svara fyrirvaralaust
hvort til væru aðrar skýrslur um samborgana eða ekki? Lögreglu-
stjórinn er í kjöraðstöðu til að kynna sér málið. Af hverju veit
lögreglustjórinn ekki fyrir víst hvort fóðrið í Stasiskýrslu Geirs
Jóns Þórissonar sé einstakt eða ekki? Er það svar lögreglustjórans
tekið gilt, að hún hafi ekki séð aðrar skýrslur? Nei.
Lét þingnefndin þessi svör duga, hálfkveðnar vísur og loðin
svör? Já, svo virðist vera. Lögreglan hafði fyrir því að færa ýmis-
legt til bókar um framgöngu Birgittu Jónsdóttur, nú alþingis-
manns. Birgitta var á fundinum með lögreglustjóranum:
„Ég verð að segja það fyrir mína parta, eftir að hafa lesið þessa
skýrslu, að ég er mjög óörugg gagnvart ykkur. Mér finnst það
mjög óþægilegt þegar ég les um það hvernig lögreglan túlkar
hvernig starfsmenn þingsins hugsa um ákveðna þingmenn. Mér
finnst þetta mjög alvarlegt mál,“ sagði Birgitta við fulltrúa lög-
reglunnar á nefndarfundinum.
Birgittu finnst þetta alvarlegt mál. Það á við um fleiri og svo
eru greinilega fleiri sjónarmið uppi um það. Geir Jón segir sjálfur
að skýrslan hafi ekki verið ætluð til húslestrar, en samt í áttina að
því, ekki rétt? Innihaldið var allavega eins fundar virði, í must-
erinu að Háaleitisbraut 1 í Reykjavík.
Óljós svör á fundi eftirlitsnefndar Alþingis:
Lögreglustjórinn
er með fyrirvara
Sigurjón Magnús
Egilsson
sme@frettabladid.is
Tillagan um að loka framhaldsskól-
um fyrir bóknámsnemendum yfir 25
ára aldri hefur eðlilega vakið hörð við-
brögð. Þeim er sagt að leita annað. En
skólagjöld eru 225.000 kr. á önn í námi
á háskólabrú í einkaskóla, en 13.000 í
almennum framhaldsskólum. Hvers
vegna þarf að loka ódýrum valkosti og
búa til nýjan dýran? Maður um þrítugt
hafði samband við mig vegna þessa.
Hann er í öldungadeild að ljúka stúdents-
prófi, til að geta fengið inngöngu í Lög-
regluskólann. Hann hefur verið á vinnu-
markaði í láglaunastörfum um árabil. Af
hverju á það að kosta hann 450.000 krón-
ur á ári að ljúka framhaldsskólanámi,
þegar 19 ára einstaklingur fær sama
nám á 26.000 krónur? Af hverju á hann
að borga refsigjald? Er hann lakari borg-
ari? Er reynsla hans af vinnumarkaði til
tjóns fyrir samfélagið?
Hin íslenska leið hefur verið sú að fólk
fari á vinnumarkað, afli sér þar reynslu
og komi svo aftur í skóla og ljúki námi.
Er það verri leið en aðrar? Er vont að
fá fólk með reynslu af vinnumarkaði í
framhaldsskóla? Menntamálaráðherra
segist vilja að framhaldsskólarnir séu
„ungmennaskólar“. En af hverju eiga þá
skólar fyrir fullorðna að vera færri, dýr-
ari og torsóttari?
Hin beina og breiða braut hefur alltaf
verið fær fyrir þá sem vel standa og eru
svo heppnir að verða ekki fyrir áföll-
um. Það þarf að huga að hinum, þeim
sem hafa minna á milli handanna, þeim
sem hafa ekki haft aðstæður til að sinna
námi, þeim sem eignast börn snemma.
Það felst engin nýsköpun í að breyta
framhaldsskólanum í einsleitan ung-
mennaskóla fólks með einsleitan bak-
grunn. Það er þvert á móti afturhvarf
til þess sem tíðkaðist hér á landi fyrir
meira en 100 árum síðan. Jafnaðarmenn
hafa engan áhuga á að endurvekja það
menntakerfi og um það verður engin
sátt.
Framhaldsskóli fyrir alla
➜ Hin íslenska leið hefur verið
sú að fólk fari á vinnumarkað, afl i
sér þar reynslu og komi svo aftur
í skóla og ljúki námi. Er það verri
leið en aðrar? Er vont að fá fólk
með reynslu af vinnumarkaði í
framhaldsskóla?
MENNTUN
Árni Páll
Árnason
formaður Samfylk-
ingarinnar
www.harpa.is/hbr
Nánari upplýsingar í s: 528 5050, á midi.is og harpa.is
Heillandi sýning fyrir alla fjölskylduna
Hnotubrjóturinn
Sýnt í Eldborg
21.–23. nóvember