Fréttablaðið - 06.11.2014, Page 32
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 32TÍMAMÓT
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
JÓNATANS SVEINSSONAR
hæstaréttarlögmanns,
Álfkonuhvarfi 59, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sóltúns
fyrir frábæra umönnun.
Nanna Jónasdóttir
Hróbjartur Jónatansson Valgerður Jóhannesdóttir
Sveinn Jónatansson Brynja Ólafsdóttir
Jónas Jónatansson Anna Margrét Tómasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín og móðir,
KRISTÍN S. R. GUÐMUNDSDÓTTIR
þjónustustjóri
í viðskiptasöludeild Icelandair,
lést sunnudaginn 2. nóvember á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju
fimmtudaginn 13. nóvember kl. 13.00.
Jón Ögmundsson
Guðmundur Þór Kristjánsson
Kristján Örn Kristjánsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KÁRI ELÍASSON
rakarameistari, Mávahlíð 22,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 31. október
sl. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju
föstudaginn 7. nóvember kl. 15. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð
Sóltúns.
Elías Kárason
Ásgerður Káradóttir Hannes Jón Helgason
Katrín og Kári Jón
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, sonur og afi,
HALLDÓR GESTSSON
þúsundþjalasmiður,
Akureyri,
lést laugardaginn 25. október.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 7. nóvember kl. 13.30.
Hildur Halldórsdóttir Jón Ísleifsson
Þórður Halldórsson Halldóra Kristín Hauksdóttir
Hlynur Halldórsson Fanney Lind Pétursdóttir
Guðrún Jónsdóttir
afaungarnir.
Ástkær eignmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, bróðir okkar og afi,
ÞÓRARINN RAGNAR ÁSGEIRSSON
andaðist á heimili sínu 3. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 14. nóvember kl. 13.00.
Hildur S. Friðriksdóttir
Ásta Þórarinsdóttir Sigurður G. Geirsson
Kristinn Eiríkur Þórarinsson
Ásta Hallý Nordgulen
Erla M. Ásgeirsdóttir
Lúðvík Jóhann Ásgeirsson
og barnabörn.
MERKISATBURÐIR
1231 Keisari Japans, Tsuchimikado, deyr.
1796 Dómkirkja Reykjavíkur vígð. Hún var átta ár í byggingu.
1860 Abraham Lincoln er kjörinn forseti Bandaríkjanna.
1897 Leikritið Pétur Pan frumsýnt í Empire-leikhúsinu í New
York.
1921 Minningarhátíð í Landakotskirkju vegna þess að átta aldir
eru liðnar frá andláti Jóns Ögmundssonar, fyrsta Hólabiskups.
1988 Conchita Wurst, sigurvegari í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva árið 2014, fæðist í Austurríki.
2013 Skipið Fernanda dregið að höfn í Grundarfirði viku eftir að
kviknar í því suður af Vestmannaeyjum.
Unnið er að því að koma á fót sjálfs-
eignarstofnun um minjar í Múlakoti
í Fljótshlíð og verður á laugardaginn
haldin málstofa þar um varðveislu og
endurreisn staðarins. Pétur Ármanns-
son, arkitekt og sviðsstjóri hjá Minja-
stofnun Íslands, er einn þeirra sem
fjalla um Múlakot á málstofunni.
Hann segir núverandi eigendur Múla-
kots, Sigríði Hjartar og Stefán Guð-
bergsson, reiðubúin að gefa minjastað-
inn gegn því að sjálfseignarstofnun
taki við honum, endurbyggi hann og
varðveiti til framtíðar.
„Mannvirkin að Múlakoti voru frið-
lýst fyrr á þessu ári. Þarna er íbúðar-
hús frá 1898 sem var stækkað í áföng-
um og er í raun eitt elsta sveitahótel
landsins. Þetta var frægur áningar-
staður í sveitinni, bæði þegar farið
var í Þórsmörk og austur fyrir fjall,“
segir Pétur.
Hann getur þess að Múlakot hafi,
auk tengingar við ferðaþjónustu,
sérstaka tengingu við íslenska lista-
sögu. „Listamaðurinn Ólafur Túbals
bjó lengi í Múlakoti og þarna dvöldu
margir listmálarar og máluðu mál-
verk þaðan sem eru þjóðkunn og í eigu
Listasafns Íslands.“
Í Múlakoti er einn elsti og merki-
legasti einkagarður landsins sem
Guðbjörg Þorleifsdóttir lagði grunn-
inn að, að því er Pétur greinir frá.
„Þarna koma þess vegna saman lista-
saga, garðyrkjusaga og saga og þróun
ferðaþjónustu.“
Pétur tekur það fram að gamla
húsið sé mjög vel varðveitt. „Það er
eiginlega engu búið að breyta en það
er úr sér gengið og brýn þörf er á að
bjarga því. Það eru í raun síðustu for-
vöð.“
Fyrr á þessu ári var veittur styrkur
til viðgerða og eru þær hafnar á elsta
hluta hússins. „Þetta er hins vegar
mikið verkefni og það þarf að safna
peningum og mynda hreyfingu um
verkefnið.“
Ráðgert er að á staðnum verði sýn-
ing um sögu bæjarins, íslenska mál-
aralist sem honum tengist, upphaf
hótelrekstrar í sveit á Íslandi og sögu
lystigarðs Guðbjargar Þorleifsdóttur.
Málstofan í Múlakoti hefst klukkan
14 á laugardaginn. ibs@frettabladid.is
Ræða varðveislu og
endurbyggingu Múlakots
Koma á á fót sjálfseignarstofnun um minjar í Múlakoti í Fljótshlíð sem friðlýstar voru
fyrr á árinu. Þar koma saman listasaga, garðyrkjusaga og saga ferðaþjónustu.
MÚLAKOT Í FLJÓTSHLÍÐ Eigendur staðarins eru reiðubúnir að afhenda hann sjálfseignarstofnun gegn því að hún endurbyggi hann og varð-
veiti til framtíðar. MYND/MINJASTOFNUN ÍSLANDS
FJALLAR UM MÚLAKOT Pétur Ármannsson,
arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands, er
einn þeirra sem fjalla um Múlakot á málstofunni.
Veitingastaðurinn Naustið var stofnaður á þessum degi fyrir 60
árum en hann er þekktastur fyrir að hafa verið fyrsti staðurinn
til að bjóða upp á þann þorrablótsmatseðil sem þekktur er í dag.
Þorrablótsmatseðillinn var fyrst auglýstur árið 1956 en þá
bauð Naustið upp á hefðbundinn íslenskan mat fornan; súran,
reyktan og/eða saltaðan.
Þorrablótin koma fyrst fram í heimildum frá miðöldum en
þau lögðust af eftir kristnitöku á Íslandi. Á nítjándu öld vekja ís-
lenskir stúdentar í Kaupmannahöfn siðinn að nýju en hann nær
ekki almennri útbreiðslu hér á landi fyrr en Naustið hóf að bjóða
upp á þorramat. Síðan þá hefur verið vinsælt að halda þorrablót
á þorranum og í núorðið telja margir það ómissandi.
ÞETTA GERÐIST: 6 NÓVEMBER 1954
Upphafi ð að þorrablótsmatseðlinum