Fréttablaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 42
KYNNING − AUGLÝSINGHúðvörur FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 20144
STREITA STRESSAR
HÚÐINA
Streita hefur neikvæð áhrif
á húðina. Ástæðan er streitu-
hormónið kortisól sem leysist úr
læðingi þegar stressið verður of
mikið.
Hormónið getur haft ýmis áhrif
á húðina. Til dæmis þornar hún
upp og tapar ljóma. Þá hækkar
kortisól blóðsykurinn sem leiðir
til ferlis sem skemmir kollagen
og elastín sem halda húðinni
sléttri og fínni. Þetta getur leitt til
skemmda í húðinni auk þess sem
stöðugar streitugrettur mynda
línur í enni.
Roði í húð er eitt af einkennum
streitu. Hann verður vegna aukins
blóðflæðis sem þenur út háræðar
í andlitinu.
Streita eykur bólgur sem leiða til
bólumyndunar.
Streita leiðir af sér svefnlausar
nætur sem aftur geta leitt til
bauga og þrútinna augna.
ÓVINIR HÚÐARINNAR
Verstu óvinir húðarinnar eru
reykingar, sólböð og lélegt
mataræði. Þetta þrennt eykur
öldrun húðarinnar. Þá er vitað að
stress getur fjölgað hrukkum. Þeir
sem eru stressaðir eru líka í meiri
hættu að fá exem og útbrot.
Góður svefn er þar fyrir utan
lykillinn að fallegri húð.
Strax eftir tvítugt minnkar
kollagen í líkamanum og húðin
byrjar að eldast. Mikilvægt er að
huga vel að húðinni frá unga
aldri, sérstaklega verja hana gegn
útfjólubláum geislum sólarinnar.
Ef maður vill ekki verða hrukk-
óttur er ekki ráðlegt að vera
mikið í sól. Notið sólvarnarkrem
til varnar hrukkum og ekki síður
húðkrabbameini.
Matvörur skipta máli fyrir
húðina. Andoxunarefni í fennel,
negul, pipar og kanil eru góð fyrir
húðina. Sömuleiðis ýmis ber, eins
og bláber, krækiber, jarðarber og
fleiri tegundir. Grænt te er einnig
gott fyrir húðina og getur hægt á
öldrun hennar. Fiskiolía, omega-3,
er húðinni nauðsynleg, sér-
staklega á það við þá sem þjást
af húðvandamálum, exemi og
húðþurrki. Fólki með þurra húð
er ráðlagt að forðast sápu og ekki
fara í of heita sturtu. Berið gott
rakakrem á þurra húð.
HEIMAGERÐUR MASKI
Lárpera eða avókadó er nokkurs konar náttúrulegt rakakrem. Það er ríkt
af hollri fitu og E- og C-vítamínum og er gott fyrir líkamann hvort sem er að
innan eða utan, það borðað eða borið á húðina. Avókadó hefur verið notað í
gegnum árin sem náttúruleg húðmeð-
ferð, sérstaklega fyrir þá sem eru
með þurra húð.
Auðvelt er að búa til avókadó-
maska heima hjá sér. Þá er einu
avókadó stappað saman við örlitla
mjólk og haframjöl. Þegar allt er orðið
vel blandað saman er maskinn borinn á
hreint andlitið og hann látinn vera á í tíu
mínútur. Hreinsið svo vel af með nægu vatni.
Neutral þvottaduft er orðið enn umhverfisvænna en áður. Við erum
búin að þjappa því saman svo að nú þarftu minna magn fyrir sömu
virkni. Áherslur okkar eru á umhverfið og þig og því leitumst við
stöðugt við að búa til betri vöru sem þú getur notað áhyggjulaus.
• minni skammtur í hvern þvott
• minni orkunotkun við framleiðslu
• minni umhverfismengun
• nýr og léttari pakki
GOTT FYRIR UMHVERFIÐ OG ÞIG