Fréttablaðið - 28.11.2014, Qupperneq 8
28. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
1
4
42
70
Grillflötur 790x470 mm
4 brennarar
Grillflötur 44 cm í þvermál
1 brennari
CHAR-BROIL GASGRILL CHAR-BROIL BISTRO 240
100% JAFN HITIBETRI STJÓRN
Á HITA
0:00
STYTTRI
ELDUNARTÍMI
Í ALLRI
VEÐRÁTTU
MINNI
GASNOTKUN
ENGAR
ELDTUNGUR
SAFARÍKARI
MATUR
Verð áður 49.900 kr. Verð áður 159.900 kr.
Ósamsett 34.930 kr. Ósamsett 111.930 kr.
Grillflötur 670x470 mm
3 brennarar
CHAR-BROIL GASGRILL
Grillflötur 470x470 mm
2 brennarar
Verð áður 79.900 kr. Verð áður 129.900 kr.
CHAR-BROIL GASGRILL
Ósamsett 55.930 kr. Ósamsett 90.930 kr.
Grillað
allt árið!
Verðlaunagrillin frá Char-Broil eru nú á sérstökum aðventuafslætti. 20% afsláttur af
samsettum grillum sem eru send heim* og 30% afsláttur af ósamsettum grillum. Grillin
frá Char-Broil eru með TRU-Infrared tækni sem gerir þér kleift að grilla í hvaða veðráttu
sem er, líka á veturna.
Þú færð gæðagasgrill frá Char-Broil í Rekstrarlandi og í völdum afgreiðslustöðum Olís um allt land.
FÆST Í ÚTIBÚUM REKSTRARLANDS OG OLÍS: Ólafsvík, Njarðvík, Akureyri, Reyðarfirði, Selfossi, Stykkishólmi, Siglufirði.
*Heimkeyrsla innan höfuðborgarsvæðisins á virkum dögum milli kl. 9–18.
Boðið er upp á léttgreiðslur í allt að 6 mánuði.
20%
AFSLÁTTUR
AF SAMSETTUM
GRILLUM
30%
AFSLÁTTUR
AF ÓSAMSETTUM
GRILLUM
STJÓRNSÝSLA Embætti sérstaks
saksóknara hefur varið rúmlega
640 milljónum króna í greiðslur
til verktaka frá árinu 2009. Þetta
kemur fram í svari dómsmálaráð-
herra við fyrirspurn Össurar Skarp-
héðinssonar, þingmanns Samfylk-
ingarinnar, um verktakakostnað
embættisins.
Í svarinu kemur fram að árið
2009 námu verktaka greiðsl-
urnar 40,4 milljónum króna, 162,1
milljónum árið 2010, 140,6 milljón-
um árið 2011, 165,9 milljónum árið
2012, 108,5 milljónum árið 2013 en
23,2 milljónum fyrstu níu mánuði
þessa árs.
Á meðal þeirra sem hlotið hafa
greiðslur frá embættinu er Jón H. B.
Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu. Hann hefur á
þessu tímabili fengið greiðslur sem
nema rúmum 18 milljónum króna. Á
sama tíma var Jón í fullu starfi hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Í samtali við Viðskiptablaðið segir
Jón að ekkert hafi verið óeðlilegt
við störf hans fyrir Embætti sér-
staks saksóknara. Hann hafi sinnt
störfum sínum ýmist hjá embætt-
inu, heima hjá sér eða hjá lögreglu-
stjóranum á höfuðborgarsvæðinu.
Þá hafi hann sinnt þessum störfum
utan vinnutíma hjá lögreglunni, á
kvöldin og um helgar. Þetta hafi
komið niður á vinnu hans hjá lög-
reglunni en þá hafi vinnutími hans
þar lengst á móti.
Sigurður Tómas Magnússon, laga-
prófessor við Háskólann í Reykja-
vík, fékk af einstaklingum hæstu
verktakagreiðslurnar eða 51,4 millj-
ónir króna fyrir lögfræðiráðgjöf.
Sigurður var einnig í fullu starfi
samhliða vinnu sinni fyrir Sérstak-
an saksóknara.
Í samtali við Fréttablaðið segir
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, að hann telji að þessar
greiðslur hefðu verið hærri hefðu
þessir menn, ásamt fleirum, verið
á launaskrá.
Ólafur segir fyrirkomulagið hafa
verið með þeim hætti að verktak-
arnir skili til embættisins tíma-
skýrslum. „Þannig að við stað-
reynum þá vinnu sem þeir vinna
fyrir okkur.“ Aðspurður hvernig
menn geti sinnt svona mikilli
vinnu samhliða 100 prósent störf-
um annars staðar fyrir ríkið segist
hann ekki getað svarað fyrir aðra.
Ólafur segir verktakana hafa
fengið aðstöðu hjá embættinu til að
sinna verkefnum sínum og spurð-
ur hvenær þeim hafi verið sinnt,
á kvöldin, um helgar eða á dag-
vinnutíma segir Ólafur: „Þetta er
blanda af öllu saman, bæði á dag-
inn og kvöldin. Þetta verða oft
miklar tarnir og þá er unnið flesta
tíma sólarhringsins.“
Sigurður G.
Guðjónsson
hæstaréttar-
lögmaður velti
því fyrir sér á
Facebook-síðu
sinni hvernig
opinberir starfs-
menn sem fá
launagreiðslur
frá ríkinu geti
verið verktakar hjá annarri
opinberri stofnun. Í samtali við
Fréttablaðið segir hann þessa
framkvæmd vera svokallaða
„gerviverktöku“.
„Miðað við þá reynslu sem ég
hef af meðferð skattamála þá
hefur Ríkisskattstjóri gengið mjög
hart fram í því að ef starfsmenn
hafa aðstöðu hjá vinnuveitanda,
tölvur, aðgang að kaffistofu og
svo framvegis þá hafa þeir verið
taldir starfsmenn. Ég sé engan
mun á Jóni H. B. Snorrasyni, Sig-
urði Tómasi Magnússyni og öðrum
í því samhengi,“ segir Sigurður.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ríkisskattstjóra er hins vegar
ekkert að þessari framkvæmd í
skattalegu tilliti. Þannig séu mörg
fordæmi fyrir því að menn séu í
launuðum störfum og taki að sér
svipuð störf þótt það sé gert í verk-
töku.
Hæstu verktakagreiðslur sem
Embætti sérstaks saksóknara innti
af hendi voru til félagsins Scisco
ehf. sem sér um endurskoðun, eða
alls um 128,8 milljónir króna frá
árinu 2011. Þá fékk Eva Joly, þing-
maður á Evr ópuþing inu, 10,9 millj-
ónir fyrir sérfræðiráðgjöf á árinu
2010.
Tugir milljóna í verktakagreiðslur en í
100% starfi annars staðar á sama tíma
Sérstakur saksóknari greiddi tveimur verktökum tæplega 70 milljónir króna á fimm árum. Mennirnir tveir voru í fullu starfi hjá ríkinu
á sama tíma. Hæstaréttarlögmaður segir þetta gerviverktöku. Embætti ríkisskattstjóra segir ekkert vera athugavert við framkvæmdina.
100 MILLJÓNIR Á ÁRI Embætti sérstaks saksóknara hefur varið rúmlega 640 millj-
ónum í verktakagreiðslur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÓLAFUR ÞÓR
HAUKSSON
● Scisco 128,8 milljónir (fyrir
endurskoðun)
● Lynx Advokatfirma AS 81,3
milljónir (lögfræði og endur-
skoðun)
● Sigurður Tómas Magnússon 51,4
milljónir (lögfræðiráðgjöf)
● Opin kerfi 48,3 milljónir (hug-
búnaðarþjónusta)
● HSNO 40,2 milljónir (endur-
skoðun)
● Krogerus Attorneys 30,3
milljónir (lögfræðiráðgjöf)
● Frank A. Attwood 24,4
milljónir (endurskoðun)
● Jón H. B. Snorrason 18,3
milljónir (lögfræðiráðgjöf)
● Ernst & Young 18,2 milljónir
(endurskoðun)
● VSÓ Ráðgjöf 17,1 milljónir
(verkefnisstjórnun)
● Nortek 16,4 milljónir (öryggis-
kerfi)
● Cofisys– Conseil finance systèmes
13,8 milljónir (sérfræðiaðstoð
og endurskoðun)
● Eva Joly 10,9 milljónir (sér-
fræðiráðgjöf)
Hæstu greiðslurnar
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is