Fréttablaðið - 28.11.2014, Blaðsíða 68
28. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 44
Systurnar Elísabet Rún og Elín
Edda Þorsteinsdætur gáfu á
dögunum út bókina Plantan á gang-
inum, en hún er samvinnuverkefni
þeirra systra.
„Þetta byrjaði sumarið 2012
en hvorug okkar var komin með
vinnu. Okkur langaði að gera eitt-
hvert skemmtilegt verkefni saman
og enduðum á því að gefa út vef-
myndasögu á Tumblr-vefnum,“
segir Elísabet, en í fyrstu birtu þær
um þrjá ramma úr sögunni á dag.
„Svo sáum við bara að teikning-
arnar okkar myndu koma mun betur
út á prenti, þannig að við ákváðum
að gera bók,“ bætir hún við.
Sagan fjallar um Geirþrúði Flóru,
konu sem býr í miðbæ Reykjavíkur
og hefur helgað líf sitt plöntum og
blómum. „Það má eiginlega segja
að hún sé búin að einangra sig svo-
lítið og kjósi heldur að umgangast
plöntur en fólk,“ segir Elísabet. Dag
einn ákveður Geirþrúður að setja
eina af plöntunum sínum fram á
gang, en við það fer af stað atburða-
rás sem mun vægast sagt hafa áhrif
á líf hennar. „Það er eigin lega ekki
hægt að segja meira, en hún fjallar
um vináttuna og það að vera öðru-
vísi,“ segir Elín. Síður úr bókinni
eru til sýnis í myndasögudeild
Borgar bókasafnsins og stendur sýn-
ingin yfir fram í janúar. - asi
Bjuggu til myndasögu um plöntuna á ganginum
Systurnar Elísabet Rún og Elín Edda Þorsteinsdætur gerðu teiknimyndasögubók sem kom út nýlega. Geirþrúður Flóra kemur við sögu.
SYSTUR
Sýningin
á síðum
bókarinnar á
Borgarbóka-
safninu er
opin fram í
janúar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
★★★★ ★
White God (Fehér Isten)
Leikstjóri: Kornél Mundruczó
AÐALLEIKARAR: Z SÓFIA PSOTTA,
SÁNDOR ZSÓTÉR OG LILI HORVÁTH
Ungverska myndin White God
er framlag Ungverjalands til
Óskars verðlaunanna 2015 og er
það vel skiljanlegt.
White God segir sögu Lili,
ungrar stúlku sem flyst tíma-
bundið til föður síns. Með henni
í för er hundurinn Hagen, hennar
besti vinur. Með komu Hagen inn
á heimilið reynir á samband feðg-
inanna og fljótt fer af stað undar-
leg og ófyrirsjáanleg atburðarrás.
Myndin fjallar á áleitinn hátt
um samband mannsins og besta
vinar hans. Valdatengsl og stig-
veldi, sem ekki eiga bara við í
sambandi hinna ofangreindu
dýrategunda, eru skýrð og sett í
einfaldara form. Afleiðingarnar
eru hrollvekjandi og inn í þær
fléttast samband feðginanna.
Áhugaverð mynd sem skil-
ur talsvert eftir sig. Mörg atriði
í myndinni eru stórbrotin og
áhrifamikil. Sérstaklega atriðin
þar sem hundruð hunda samein-
ast og skapa samtímis fallegt og
ógnvekjandi sjónarspil. Samband
Lili og Hagen er fallegt sem og
þróun sambands feðginanna.
Gyða Lóa Ólafsdóttir
NIÐURSTAÐA: White God er skrítin,
en á góðan hátt. Á köflum hroll-
vekjandi og á sumum stöðum minnir
hún á fuglana hans Hitchcocks.
Áhrifamikil ungversk kvikmynd
WHITE
GOD Saga
af ungri
stúlku og
besta vini
hennar.
➜ Sagan fjallar um Geirþrúði
Flóru, konu sem býr í miðbæ
Reykjavíkur og hefur helgað líf
sitt plöntum og blómum.
Gísli Gunnarsson Bachmann hefur
undanfarin ár ferðast víða, um
Asíu, Norður-Evrópu og Banda-
ríkin. Á ferðum sínum hefur hann
meðal annars lagt stund á jóga,
bardagalistir og taó-heimspeki.
„Upphaflegi draumurinn var að
fara til Taílands að læra bardaga-
listir. Ég vildi ekki fylgja því sem
aðrir voru að segja mér að gera,
ekki það að ég væri „rebel“, þetta
snerist frekar um að hlusta á sjálf-
an mig.“ En úr varð að hann fór til
Taílands og lærði muay thai.
Eftir sex mánaða dvöl í Taí-
landi lá leið Gísla til Indlands
þar sem hann fór í jógakennara-
nám sem hafði mikil áhrif á hann.
„Námið breytti töluvert lífi mínu
og ég kynntist öðrum hugmynd-
um en þekkjast í okkar vestræna
samfélagi, að maður eigi að fylgja
ákveðinni uppskrift og elta þær
hugmyndir sem aðrir eru búnir að
skapa fyrir mann.“
Jógakennaranámið opnaði nýjan
hugarheim. „Jógaheimspekin opn-
aði fyrir mér þann heim að það
gerist ekkert mjög slæmt ef manni
mistekst. Mistökin kenna manni
eitt og annað.“
Eftir dvölina á Indlandi sneri
Gísli aftur heim til Íslands þar sem
hann vann meðal annars fyrir sér
sem jógakennari og safnaði fyrir
næstu ferð.
Þá lá leiðin til Austurríkis þar
sem hann lærði skíða- og snjó-
brettakennarann.
Nú er hann nýkominn frá Kína
þar sem hann lærði taó-heimspeki,
bardagalistir og kínverskt punkta-
kerfisnudd. Hinn 7. desember næst-
komandi flytur Gísli fyrirlesturinn
Hófsemi og aukin lífsgleði. Í fyrir-
Mistökin geta kennt
manni eitt og annað
Gísli Gunnarsson Bachmann heldur fyrirlestur í Háskólabíói um hófsemi og
aukin lífsgæði. Hann hefur lagt stund á jóga, bardagalistir og taó-heimspeki.
EINBEITTUR Gísli hefur meðal annars lagt stund á shaolin kung fu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nemendur á lokaári vöruhönn-
unardeildar Listaháskóla Íslands
opna sýninguna Wood You í kjall-
ara skólans í Þverholti.
Verkefnið var unnið í samstarfi
við Skógræktarfélag Reykjavíkur
í Heiðmörk en þema verkefnisins
var íslenskur viður. Einn nemend-
anna, Gael Corto Arcadio Jabali,
segir sína upplifun af verkefninu
hafa umfram allt verið félagslega.
„Ég er alinn upp í Frakklandi þar
sem er ekki bara litið á skóginn
sem hluta af náttúrunni heldur sem
hluta af iðnaðinum líka og einnig
leikur hann svo stórt hlutverk í
menningunni,“ segir Corto, en
segir jafnframt að hans upplifun
endurspegli ekki upplifun hópsins.
„Mér fannst mikilvægt að reyna
að búa til eitthvað sem tengir fólk
við skóginn og við íslenska menn-
ingu. Það var virkilega áhugavert
að fá að kynnast skóginum hér
svona náið og vinna svona nálægt
hráefninu. Skógrækt Reykja-
víkur á hrós skilið fyrir þá vinnu
sem þeir eru að vinna og hversu
vel þeir tóku á móti okkur. Þetta
er hráefni sem við Íslending-
ar megum klárlega nota meira í
iðnað hér heima og hefur mikla
möguleika á því að stækka,“ segir
hann. Sýningin verður opnuð í dag
klukkan 14 og verður opin fram
eftir degi og yfir helgina.
„Hluti af sýningunni er opnun
heimasíðunnar okkar, www.
wood-you.com, en þar er hægt að
skoða öll verkefnin okkar ásamt
myndböndum,“ segir Corto.
- asi
Miklir möguleikar
í íslenska skóginum
Nemendur á lokaári vöruhönnunar LHÍ unnu verk-
efni í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur.
HLUTI AF VERKEFNUM Verkefni nemendanna eru jafn ólík og þau eru mörg.
AÐSEND MYND
lestrinum útskýrir hann þá hug-
myndafræði sem hann hefur viðað
að sér á ferðalögum sínum.
„Ég ætla meðal annars að tala
um frelsið sem fylgir því að taka
niður grímuna sem við göngum
með dags daglega,“ segir Gísli og
bætir við: „Gríman sem maður
setur upp er oft vörnin okkar, en
hún verður oftast nær að tilbúnum
karakter sem með tímanum verður
erfiðara og erfiðara að stíga út úr.“
Gísli stefnir á að halda áfram að
læra og ferðast. „Ég er að fara til
Austurríkis aftur að kenna eftir jól.
Ég kynntist frábærum strákum í
Kína og við ætlum að hittast í Indó-
nesíu næsta sumar, æfa saman og
læra hver af öðrum.“
Fyrirlesturinn verður fluttur í
Háskólabíói 7. desember klukkan
fjögur og fer miðasala fram á midi.
is. gydaloa@frettabladid.is
Rapparinn og verðandi Íslands-
vinurinn Killer Mike var gráti
næst í byrjun tónleika sinna
og El-P í St. Louis á þriðju-
daginn eftir að tilkynnt var að
lögreglumaðurinn Darren Wil-
son yrði ekki ákærður fyrir að
hafa skotið hinn 18 ára Michael
Brown til bana. Sá var óvopn-
aður og ríkir nú mikil reiði þar
vestra vegna framferðis lög-
regluyfirvalda.
„Í kvöld var eins og sparkað
væri í magann á mér þegar ég
heyrði úrskurð dómarans,“ sagði
Mike, sem myndar tví eykið Run
the Jewels ásamt rapparanum
og taktsmiðnum El-P. „Þið
spörkuðuð í mig í dag af því að ég
á syni sem eru 20 ára og 12 ára,
og ég hræðist svo innilega fyrir
þeirra hönd.“
Mike, sem mun troða upp með
El-P á All Tomorrow’s Parties í
Keflavík í júlí, hefur á seinustu
árum látið mikið til sín heyra
út af rasisma innan bandarísku
lögreglunnar. „Þetta snýst um
fátækt, þetta snýst um græðgi
og þetta snýst um stríðsvél. Þetta
snýst um stríðsvél sem notar
ykkur. Ef ég dey á morgun eða
hinn, þá vil ég aðeins að þið vitið
að þetta snýst um okkur gegn
helvítis vélinni!“ - þij
Gagnrýndi yfi rvöld
Rapparinn Killer Mike hellti úr skálum reiði sinnar á þriðjudag.
KILLER MIKE Rapparinn hefur látið
mikið í sér heyra vegna framferðis
lögreglu. NORDICPHOTOS/GETTY
Ég vildi ekki fylgja
því sem aðrir voru að
segja mér að gera, ekki
það að ég væri „rebel“,
þetta snerist frekar um
að hlusta á sjálfan mig.