Fréttablaðið - 28.11.2014, Side 24
28. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 24
Ég fór í síðdegiskaffi til
frænku minnar um dag-
inn. Hún er af gamla skól-
anum og heimilið hennar
ber vott um ráðvendni og
nægjusemi.
Dánarfregnir og jarðar-
farir glumdu úr útvarpinu
sem var hátt stillt. Það var
heitt í íbúðinni og heitt
kaffið kældi ekki beint.
Á veggnum á móti mér
hékk eftirprentun af frægri mynd.
Hún sýndi eldri mann með trausta
andlitsdrætti, munnurinn ein-
beittur og augun blá eins og him-
inninn og hafið. Hann var í sjó-
galla með sjóhatt á höfði.
Þetta var hetja hafsins, hinn
íslenski sjómaður. Úrræðagóður á
ögurstund, sterkur og fagur.
Faðir okkar allra.
Hann, ásamt íslenska bónd-
anum, hefur séð þjóðinni fyrir lífs-
björginni um aldir.
Íslendingum er það nauðsyn eins
og öðrum þjóðum að eiga sínar
alþýðuhetjur. Hjá okkur voru það
náttúrulega fornhetjurnar og svo
nær í tíma sjómennirnir, far sælir
bændur og verkalýðshetjur sem
börðust fyrir rétti láglaunafólks.
En nú er öldin önnur.
Við höfum ekki tíma fyrir svona
gamaldags hetjur, enda ná bændur
og sjómenn engan veginn að halda
í við þær kröfur sem við setjum
sem búsetuskilyrði í þessu landi.
Verkalýðshetjan er löngu útdautt
fyrirbæri.
Nýjar hetjur
Við getum þó glaðst yfir því að í
stað gömlu lummulegu alþýðu-
hetjanna eru komnar nýjar hetjur
fram á sjónarsviðið.
Ein þeirra er ung og smart og
á peninga, mikla peninga.
Þeir vinna oft í banka-
geiranum við að passa og
ávaxta sparnað fólksins!
Svo eru það slóttugir
athafnamenn sem með
athöfnum sínum skilja
eftir sig sviðna jörð í
gjaldþrotum og afskriftum
sem þýðir að þeir láta þjóð-
ina borga skuldir sínar.
Þar sem við Íslend ingar
erum gráðugir, nýjungagjarnir
og slakir í prinsippum er upplagt
að líta svo á að bankastrákar og
athafna glæpamenn geti leitt þjóð-
ina til meiri vegsemda.
Við snobbum fyrir svikulu
viðskiptamódeli jöfranna
Orðið „útrás“ er kallmerki þjóðar-
innar. Öll erum við að ráðast út.
Við leggjum undir okkur önnur
lönd, við kaupum allt og erum frek
og hávaðasöm rétt eins og víking-
arnir, forfeður okkar.
Hinar nýju frelsishetjur, hið
nýja afl ráðskast með stjórn-
málamennina og jafnvel hið háa
Alþingi.
Hornsteininn, klettinn, sem
þjóðin á að geta treyst.
Við stöndum opinmynnt í undir-
okaðri forheimskun og dáumst að
peningamönnunum.
Dagblöð og slúðurblöð keppast
við að birta lífsreynsluviðtöl sem
reynast heldur bragðlítil enda við-
mælendurnir vart búnir að slíta
barnsskónum.
Þeir eru svo ótrúverðugir að fólk
finnur til ógleði yfir öllu saman.
Það versta við nýríkidæmi
Íslendinga er að okkur skortir alla
hefð fyrir ríkidæmi.
Við högum okkur þess vegna
eins og ofdekraðir krakkar með
fulla vasa af sælgæti. Félags-
hyggja og náungakærleikur eru
tabú. Allir berjast um á hæl og
hnakka við að komast að kjötkötl-
unum og skiptir þá engu hverjir
troðast undir í þeim hildarleik.
Að sama skapi slitnar tenging
milljarðamæringanna við fólkið
sem byggir landið. Pen ingum
fylgir vald eins og allir vita og
þess vegna ráða nýju frelsis-
hetjurnar gífurlega miklu um það
hvernig hinn hefðbundni Íslend-
ingur lifir. Stærstur hluti hinnar
svokölluðu millistéttar er að
hverfa eða samsama sig lágstétt-
inni. Eftir stendur yfirstétt sem
hefur allt; peninga og völd.
Lágstéttin er valdalaus og
algjörlega ofurseld valdhroka
hinna.
Mér varð litið á dagblað sem lá
á eldhúsborðinu hjá frænku minni.
Við mér blasti glottandi banka-
strákur um þrítugt á forsíðunni.
Hann hafði eignast nokkra millj-
arða. Hann eignaðist þá á nokkr-
um dögum af því að hann var svo
duglegur í vinnunni sinni.
Frænka mín hefur þrælað alla
sína daga og hefur nú aðeins elli-
lífeyrinn sinn sem skammtar
naumt.
Enginn talar um að hún hafi
verið dugleg!
Alþýðuhetjan
Ég var átta ára þegar ég
heyrði Helenu Eyjólfs
fyrst syngja í útvarpinu.
Ég stóð upp við útvarp-
ið og grét af hrifningu.
Ég man líka eftir frétta-
tímum í sveitinni á sumr-
in þegar ég var barn. Þá
varð að ríkja þögn. Á
kvöldin var þar sérstak-
lega hlustað á sögu legan
fróðleik. Þannig ólst ég
upp við virðingu fyrir
útvarpinu og fann mikilvægi þess.
Ríkisútvarpið skiptir mig enn þá
miklu máli.
Á síðasta vori ákvað ég að
hætta í föstu starfi. Ákvörðunin
var afgerandi en ég hugsaði lítið
út í hvað þetta skref hefði í för
með sér. Breytingin hefur komið
skemmtilega á óvart. Ég get verið
meira ein með sjálfri mér en áður
og get valið hvað ég geri og geri
ekki. Þvílíkt frelsi; ég get sinnt
sjálfboðastarfi, skrifað, haldið
fyrirlestra, hlustað á erindi, sótt
menningarviðburði, gengið og
synt en staldra núna við það sem
hefur gefið mér sérstaklega mikla
ánægju síðustu mánuði.
Útvarp allra landsmanna
Með morgunkaffinu renni ég yfir
dagskrá RÚV, Rás 1 og punkta hjá
mér á hvað ég vil hlusta þann dag-
inn. Ég vil hlusta á viðræðuþætti
um líf fólks vegna þeirra marg-
víslegu sjónarmiða sem fram
koma. Þátturinn hennar Sigur-
laugar Jónasdóttur, „Segðu mér“,
er dæmi um slíkan þátt. Ýmsir
aðrir viðræðuþættir um málefni
líðandi stundar geta aukið skiln-
ing og jafnvel umburðarlyndi.
Bókmenntaþættirnir hennar Jór-
unnar Sigurðardóttur eru óborg-
anlegir svo ég tali ekki
um þættina Samfélagið
og Víðsjá þar sem umfjöll-
unarefnin virðast óþrjót-
andi. Ekki kemur til greina að
missa af sögulegum fróðleik Ill-
uga Jökulssonar þar sem hann
geysist víða. Inn á milli er hvað
eftir annað boðið upp á bráð-
merkilegt efni eins og gagn rýnin
umfjöllun Hjalta Hugasonar um
trú, menningu og samfélag bar
merki um fyrir stuttu. Þvílík dag-
skrá, þvílíkt val. Ég hef áhuga á
þjóðlegum fróðleik og val mitt
á útvarpsefni litast af því. Þess
vegna hlustaði ég oft á „Sagna-
slóð“, en hvað varð um þáttinn?
Á hátíðarstundum er talað um
að Ríkisútvarpið sé útvarp allra
landsmanna. Þannig á það líka að
vera. Samtímis er stór hluti þjóðar-
innar að hlusta á út varpið; bænd-
ur um land allt, sjómenn á hafi
úti, fólk í borg, bæjum og þorpum,
ungir sem aldnir. Í gegnum þennan
sterka miðil getur fólk fengið til-
finningu fyrir því að það sé hluti
af heild. Það er ekki lítill ávinn-
ingur. Þess vegna er einnig nauð-
synlegt að muna eftir fólkinu um
allt land við dagskrárgerðina. Á
því hefur verið nokkur meinbugur
eftir að svæðisstöðvarnar nánast
hurfu. Það er ljóst í mínum huga
að Ríkis útvarpið hefur gríðar lega
miklu hlutverki að gegna og það
hlutverk þarf að vernda.
Útvarpið okkar
RÚV
Kristín
Aðalsteinsdóttir
fv. prófessor
➜ Í gegnum þennan
sterka miðil getur
fólk fengið tilfi nningu
fyrir því að það sé
hluti af heild. Það er
ekki lítill ávinningur.
SAMFÉLAG
Jökull Jörgensen
tónlistarmaður
➜ Þetta var hetja hafsins,
hinn íslenski sjómaður.
Úrræðagóður á ögurstund,
sterkur og fagur.
Faðir okkar allra.
Hann, ásamt íslenska bónd-
anum, hefur séð þjóðinni
fyrir lífsbjörginni um aldir.
OPIÐ
ALLA
LAUGARDAGA
10 - 15
STÆRÐ 24/30