Fréttablaðið - 28.11.2014, Side 40
10 • LÍFIÐ 28. NÓVEMBER 2014
S
vokölluð lífsstílsblogg
hafa tröllriðið net heimum
undanfarin ár og virð-
ist ekkert lát vera á vin-
sældum þeirra. Flest eiga
þau það sameiginlegt að gefa les-
endum góð og hvetjandi ráð um
tísku, förðun, heilsu og mataræði.
Þórunn Ívarsdóttir heldur úti einu
langlífasta og vinsælasta lífsstíls-
blogginu um þessar mundir. Bloggi
sem eitt sinn var bara hugar fóstur
en er í dag orðin aðalatvinna
hennar.
Persónulegur stílisti Chicago
Þórunn er fædd og uppalin í Kópa-
voginum en fluttist síðar bú ferlum
í Garðabæinn þar sem hún út-
skrifaðist af textíl- og fatahönn-
unarbraut í Fjölbrautaskólanum
þar í bæ. „Ég hef alltaf verið í ein-
hverju hönnunartengdu frá að ég
man eftir mér og eftir námið í Fjöl-
brautaskóla Garðabæjar ákvað
ég að fara í frekara nám erlendis
í fatahönnun,“ segir Þórunn. Leið
okkar konu lá svo til hinnar sól-
ríku Kaliforníu, nánar tiltekið Los
Angeles, en þar útskrifaðist hún
sem fatahönnuður úr Fashion Insti-
tute of Design and Merchandis-
ing sumarið 2012. Meðfram nám-
inu stofnuðu Þórunn og Anna Vala,
frænka hennar, lífsstílsblogg sem
blogg Þórunnar byggir á í dag.
„Ég stofnaði bloggið ásamt
frænku minni sem var sömu leiðis í
námi við skólann úti. Það var upp-
haflega tól til þess að segja fólk-
inu heima frá því sem við vorum
að gera. Á þeim tíma var ég í
skemmtilegum „internship“ hjá
fyrirtæki sem hannar skartgripa-
línur fyrir Kim Kardashian og Ni-
cole Ritchie. Íslenskum stelpum
fannst gaman að fylgjast með
og sagði ég oft frá vinnuvikunni
minni og verkefnum. Fljótlega fór
ég að fá fyrirspurnir um hitt og
þetta. Það var þá sem að ég áttaði
mig á því að þetta væri vettvangur
fyrir mig til að deila hinum ýmsu
ráðum og sniðugum hugmyndum.“
Anna Vala flutti heim til Ís-
lands snemma árs 2012 en þá voru
þær frænkur nýbúnar að setja síð-
una á laggirnar og ákvað Þórunn
að halda áfram að blogga. „Ég var
að bíða eftir atvinnuleyfi í Banda-
ríkjunum og var nýútskrifuð. Á
þessum tíma var ég komin með
þó nokkur atvinnutilboð og þar á
meðal var staða aðstoðarhönnuðar
hjá Forever 21. Þar sem ég var frá
Íslandi voru ýmis atriði tengd at-
vinnuleyfinu sem flæktu ráðning-
ar mínar þar þannig að ég hætti
við að taka því starfi en tók starfi
hjá Nasty Gal sem er stærsti „on-
line retailer“ í heimi,“ segir Þór-
unn. Á meðan á dvöl hennar stóð í
Bandaríkjunum var hún á sífelldu
flakki enda margt og mikið sem
þarf að upplifa og sjá á sem styst-
um tíma. Hún kom meðal ann-
Á þeim tíma var
ég í skemmtilegum
„internship“ hjá
fyrirtæki sem hannar
skartgripalínur fyrir
Kim Kardashian.
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
Umsjónarkona Lífsins
ÉG TRÚI ÞVÍ INNST INNI
AÐ ÉG SÉ GÓÐ FYRIRMYND
ÞÓRUNN ÍVARSDÓTTIR er einn vinsælasti lífsstílsbloggari landsins. Hún fékk þá flugu í höfuðið þegar hún var í fatahönn-
unar námi í Los Angeles að byrja að blogga um líf sitt þar. Bloggið fór á flug og er nú orðið hennar aðalatvinna og stærsta
áhugamál. Þórunn lifði spennandi lífi í Bandaríkjunum en að lokum var það ástin sem dró hana aftur heim til Íslands.
Þórunn Ívarsdóttir er
einn vinsælasti lífs stíls-
bloggari landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk.
opið til 22 alla daga.