Fréttablaðið - 20.12.2014, Síða 10
20. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
UMHVERFISMÁL „Við bændur þurf-
um að sjálfsögðu að taka þessi mál
alvarlega og þetta er sannar lega
ekki léttvægt mál,“ segir Sindri
Sigurgeirsson, for maður Bænda-
samtaka Íslands, um umfang
framræsts lands á Íslandi og
möguleika til að endurheimta hluta
þess.
Sindri segir að bændur séu og
hafi verið reiðubúnir til að skoða
endurheimt lands, og málið hafi
verið á dagskrá um skeið.
„Það er vaxandi umræða um
umhverfismál innan okkar sam-
taka og þau eru í deiglunni hjá
okkur þessa dagana eins og víða er
í heiminum. Þetta er sífellt meira
inni í myndinni þegar bændur eru
að taka ákvarðanir í sínum búskap
til skamms og langs tíma,“ segir
Sindri.
Eins og Fréttablaðið hefur
fjallað um hefur um helmingur
votlendis verið ræstur fram hér á
landi, eða um 4.000 ferkílómetrar
lands. Fjórðungur þess landsvæð-
is er talinn lítt eða ekki nýttur og
gefi færi á að hefja endurheimt án
þess að það gangi á nytjar bænda
eða annarra.
Spurður um hvort samtökin
hafi tekið það sérstaklega fyrir
hvernig endurheimt lands í eigu
bænda væri best háttað, og hvort
greiðslur ættu að koma fyrir frá
hinu opinbera, segir Sindri að það
hafi ekki verið rætt sérstaklega
hvernig staðið yrði að endurheimt
lands. „Hins vegar eru klárlega
færi á því víðfeðma landi sem ekki
er nýtt,“ segir Sindri.
Í leiðara nýjasta Bændablaðsins
gerir Sindri landgræðslu og endur-
heimt votlendis að umtalsefni. Þar
minnir hann á að flokka þarf land
með tilliti til nýtingar með sam-
stilltu átaki bænda, stjórnvalda og
sérfræðinga. Hann segir þetta eitt
af stærri verkefnum næstu ára.
Hvað varðar landgræðslu
almennt séð segir Sindri það oft
gleymast að einn af virkustu land-
bótahópum hérlendis er bændur.
Ekki síst komi það fram í verk-
efninu Bændur græða landið sem
Landgræðslan hefur rekið frá
árinu 1990 með góðum árangri.
Um 600 bændur hafa þar komið
að málum. Í skrifum sínum telur
hann nóg komið af lífseigum full-
yrðingum um að sauðfjárbeit sé
helsti sökudólgur landeyðingar á
Íslandi.
svavar@frettabladid.is
Rannsaka þarf hvaða
land má endurheimta
Formaður Bændasamtaka Íslands telur endurheimt votlendis eitt af stærri við-
fangsefnum bænda og stjórnvalda á næstu árum. Hann telur fullyrðingar um að
sauðfjárbeit sé helsti sökudólgur landeyðingar ósanngjarnar og ekki eiga við í dag.
FRAMRÆSLA Rannsaka þarf hvar er hægt að bera niður áður en hafist er handa við endurheimt votlendis. MYND/JÓNGUÐMUNDSSON
Þar þarf að koma til samstillt átak margra aðila,
bænda, stjórnvalda og sérfræðinga á þessu sviði. Flokka þarf
framræst land með tilliti til núverandi nýtingar og vega svo
saman áhrif óbreyttrar stöðu annars vegar og hins vegar
endurheimt votlendis, sem ætti þá að skila minni losun
gróðurhúsalofttegunda og hugsanlega frekari ávinningi, svo
sem bættum vatnsbúskap. Taka verður tillit til áhrifa aukinnar
skógræktar, sem felur í sér verulega kolefnisbindingu, og
annarra mögulegra aðgerða sem geta haft áhrif. Þetta verður
eitt af stærri viðfangsefnum næstu ára.
Án tillits til hvað hverjum er um að kenna þá er það staðreynd að
beitarálag hefur minnkað stórlega á síðustu áratugum. Ástæða þess er
bæði nærri helmings fækkun sauðfjár og sú staðreynd að langt fram eftir
20. öldinni var sauðfé beitt úti á vetrum meðan auða jörð var að fá. Slíkt
er nú aflagt og rannsóknir hafa sýnt að landið er á heildina litið í framför,
það grær hraðar en það eyðist.
Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ.
Þarf samstillt átak allra hlutaðeigandi
NEYTENDUR Gies-kubbakerti hafa
verið innkölluð vegna slysahættu.
Neytendastofa segir að þrjár til-
kynningar hafi borist um að kertin
brenni óeðlilega hratt niður og geti
því valdið hættu. Brunahætta er
sérstaklega mikil ef um er að ræða
kerti í skreytingu. Vitað er um
eitt tilvik þar sem einstaklingur
brenndi sig.
Hægt er að skila kertunum til
Ölgerðarinnar gegn fullri endur-
greiðslu eða úttekt á nýrri vöru.
- ibs
Brenna óeðlilega hratt:
Hættuleg Gies-
kerti innkölluð
STJÓRNMÁL Mest ánægja er með
störf Bjarna Benedikts sonar,
fjármála- og efnahagsráð-
herra, en þriðji hver kjósandi er
ánægður með störf hans. Þetta
má lesa úr niðurstöðum Þjóðar-
púls Gallup.
Ánægja með störf Bjarna
eykst um tvö prósent en hann og
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra eru einu ráðherr-
arnir sem hækka í áliti milli
þjóðarpúlsa. Síðast var púls þjóð-
arinnar tekinn í apríl.
Næst á eftir Bjarna fylgja
Eygló Harðardóttir, félags- og
húsnæðismálaráðherra, og Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra með fjórðungs
stuðning. Ánægja með Kristján
Þór Júlíusson minnkar mest eða
um ellefu prósent.
Mest óánægja er með störf
Hönnu Birnu Kristjáns dóttur,
fyrrverandi innanríkisráð-
herra, en tveir þriðju þeirra
sem tóku afstöðu voru óánægðir
með hennar störf. Fast á hæla
hennar fylgir Sigurður Ingi
Jóhannsson sem sjávarútvegs-
og landbúnaðar ráðherra en tölu-
verð óánægja er einnig með störf
hans sem umhverfis- og auðlind-
aráðherra.
Minnst óánægja, en hefur þó
aukist um sex prósent, er með
störf Eyglóar Harðardóttur.
Umtalsvert færri eru óánægðir
með störf Gunnars Braga Sveins-
sonar nú en í apríl. Óánægja í
hans garð minnkar um tæplega
tíu prósent. - jóe
Þjóðarpúls Gallup var tekinn í nóvember. Flestir ráðherrar eru óvinsælli nú en í síðasta Þjóðarpúlsi:
Bjarni Benediktsson vinsælastur ráðherra
VINSÆLASTUR Mest ánægja er með
störf Bjarna Benediktssonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Menningarmálasvið Stokkhólmsborgar býður dvöl í gestabústaðnum
Villa Bergshyddan í Stokkhólmi.
Við dvölina gefst tækifæri til að kynnast Stokkhólmi og mynda tengsl með
mögulega samvinnu í huga.
Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga
Norðurlanda getur fengið bústaðinn að láni í eina eða tvær vikur á árinu
2015. Dvalargjald fyrir eina viku eru 1100 sænskar krónur.
Bústaðurinn er 3 herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld.
Opnað verður fyrir umsóknir þann 15. desember 2014 og er umsóknarfrestur
til 15. febrúar 2015.
Umsóknareyðublöð má finna hér: www.stockholm.se/nordisktsamarbete
Í umsókn skal tilgreina tilgang dvalar og óskir um dvalartíma ásamt kynn-
ingu á umsækjanda.
Nánari upplýsingar veitir Auður Halldórsdóttir verkefnastjóri skrifstofu
Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, s. 590-1520, netf. audur.
halldorsdottir@reykjavik.is og Anne-Marie Andersson hjá Stokkhólmsborg
netf. anne-marie.a.andersson@stockholm.se
Villa
Bergshyddan
Tréið hans Nóa
Verð frá 8.500 kr.
Sængurverasett.
Margar tegundir.
Verð 12.900 kr.
Viðarfílar.
Í öllum regnboganslitum.
14 cm. Verð 5.170 kr.
Dádýrahau
skúpur.
Margar teg
undir.
Verð 6.290
kr.
Retro vörur.
Ýmsar tegun
dir.
Verð frá 2.79
0 kr.
Hreindýraskurðbretti.
Þrjár stærðir.
Verð frá 4.490 kr.
Hraunbær 123 | s. 550 9800 | skatar.is
Gæðajólatré - sem endist ár eftir ár!
Þessi jólatré eru í hæsta gæðaflokki auk
þess að vera mjög falleg og líkjast þannig
raunverulegum trjám. Einföld samsetning.
Fæst einnig í Hagkaupi
Smáralind, Skeifunni og Garðabæ.
• Ekkert barr að ryksuga
• Ekki ofnæmisvaldandi
• 12 stærðir (60-500 cm)
• Íslenskar leiðbeiningar
• Eldtraust
• Engin vökvun
• 10 ára ábyrgð
• Stálfótur fylgir
Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 09-18
Laugardagar kl. 11-18
Sunnudagar kl. 12-18
Falleg jólatré