Fréttablaðið - 20.12.2014, Síða 16
20. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 16
Fjölvítamín frá náttúrunnar hendi
Mæðrastyrksnefnd er með tvær
úthlutanir fyrir jólin. Önnur
þeirra fór fram í gær á Korpu-
torgi og er ætluð einstaklingum
en sú seinni fer fram á mánudag
en þá fær fjölskyldufólk úthlutað.
Talsverður erill var á Korpu-
torgi þegar Fréttblaðið mætti á
staðinn rétt eftir hádegi á föstu-
dag. Öryggisverðir taka á móti
fólki við innganginn þar sem það
fær miða og fer síðan í biðröð og
bíður þess að fá úthlutað jólamat.
Um 60-70 sjálfboðaliðar klæddir
í rauða boli eru á staðnum og vinna
hörðum höndum að því að raða í
poka og flokka það sem hver og
einn fær. „Ég held það séu hátt í
800 sem hafa komið í dag,“ segir
Ragnhildur Guðmundsdóttir, for-
maður nefndarinnar, meðan hún
leiðir okkur um húsnæðið.
Staflar af hinum ýmsa hátíðar-
mat blasa við og sjálfboðaliðar eru
á fullu við að tína saman í körf-
ur og poka til þess að tryggja að
allir fái jafnt. Í pokanum eru allar
helstu nauðsynjar til hátíðar halds.
Kjöt, kartöflur, meðlæti, mjólkur-
vörur, ís, sælgæti og gos. Í dag fær
hver einstaklingur þrjá poka fulla
af mat. „Við fáum margt gefins
og það sem við kaupum fáum við
á miklum afslætti,“ segir Ragn-
hildur. „Það eru alveg ótrúlega
margir sem leggja okkur lið,“
segir hún en bæði fyrirtæki og
einstaklingar gefa nefndinni.
Síminn hringir hjá Ragnhildi
og á línunni er einstaklingur sem
kemst ekki í úthlutunina í dag.
„Komdu bara á mánudag, það er
ekkert mál,“ segir Ragnhildur í
símann áður en hún leggur á. „Það
eru ekki allir sem komast á tilsett-
um degi en það fá allir hjálp.“
Hún segir fleiri hafa sótt um
úthlutun í ár en í fyrra og að hóp-
urinn sé líka að breytast. Um 2.000
umsóknir um úthlutanir hafa bor-
ist í ár en að baki hverri umsókn
eru mismargir. „Við höfum tekið
eftir því að í ár er meira um að
fólk í fullri vinnu sé að leita til
okkar. Mikið af ungu láglauna-
fólki sem vinnur fulla vinnu en
nær ekki endum saman. Það hefur
allt hækkað og launin sem þetta
fólk er á eru svo lág að það sjá það
allir að þetta gengur ekki upp,“
segir hún og í sama mund hringir
síminn aftur. Á línunni er félags-
ráðgjafi frá borginni sem biður um
hjálp fyrir fjölskyldu sem hefur
ekki efni á mat. „Segðu þeim bara
að koma á mánudag, við aðstoðum
þau,“ segir hún.
Það geta verið þung spor að
þurfa að leita sér aðstoðar fyrir
jólin og Ragnhildur segir það
reynast mörgum erfitt. Henni
finnst þó eins og skömmin yfir því
að þurfa þiggja aðstoð sé að verða
minni en áður. „Ástandið er bara
þannig að fólk getur ekkert annað
gert,“ segir hún og heldur áfram
að leiða okkur um húsnæðið.
Í hillum er að finna ýmsa smá-
vöru, meðal annars lítil leikföng
og annað smálegt sem fólk getur
fengið til þess að gefa í gjafir. Þar
að auki er hægt að fá hinar ýmsu
snyrtivörur, meðal annars krem,
hárbursta, sjampó og ilmvötn svo
eitthvað sé nefnt. Hver og einn fær
að velja sér 3-4 smávörur. Í fjöl-
skylduúthlutuninni sem fram fer á
mánudag geta foreldrar svo fengið
leikföng fyrir börn sín sem fyrir-
tæki og einstaklingar hafa fært
nefndinni.
Það eru enn rúmir tveir tímar
eftir af úthlutuninni þegar við
erum að fara og enn er stöðugur
straumur af fólki. Við útidyra-
hurðina stendur par með poka og
bíður eftir að vera sótt. Þau segja
það bjarga jólunum hjá þeim að
fá úthlutað. Hún er öryrki sem
vinnur í hlutastarfi og þetta er í
þriðja sinn sem hún kemur og fær
aðstoð fyrir jólin. Hann hefur
verið án atvinnu í nokkur ár en er
að búa sig undir að komast aftur á
vinnumarkaðinn. Þau segja bæði
að það hafi verið erfitt að koma
í fyrsta sinn til þess að þiggja
aðstoð en það þýði lítið að hugsa
um það ætli þau sér að halda jól.
„Ég hugsa þetta þannig að þegar
mér fer að ganga betur þá mun ég
gefa til baka og hjálpa þeim sem
þurfa á því að halda,“ segir hann
og í því kemur vinur þeirra á bíl
að sækja þau. Inni halda sjálfboða-
liðar áfram að raða í poka og passa
að enginn fari svangur inn í jólin.
Næsta úthlutun nefndarinn-
ar fer fram á mánudag og enn er
hægt að sækja um aðstoð.
Fleira launafólk sækir sér aðstoð
Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar í 86. sinn. Um 2.000 umsóknir vegna úthlutunar hafa borist í ár en að baki hverri umsókn eru mismargir.
Formaður nefndarinnar segir fleira fólk í fullri vinnu leita sér aðstoðar þar sem það nái ekki endum saman vegna lágra launa.
FORMAÐURINN Ragnhildur segir hópinn sem sækir aðstoðina vera að breytast.
MATARPOKINN Hér má sjá innihald matarpokanna sem úthlutað var fyrir einstak-
linga. Auk þess sem er á myndinni fær fólk ís og brauð.
LEIKFÖNG Í fjölskylduúthlutuninni geta foreldrar fengið jólagjafir fyrir börnin sín. MIKILL FJÖLDI Sjálfboðaliðar sjá um að raða í pokana og aðstoða fólkið sem mætir í úthlutunina.
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is