Fréttablaðið - 20.12.2014, Page 42

Fréttablaðið - 20.12.2014, Page 42
20. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTASKÝRING | 42 1 2 3 4MENNTAMÁL FANGA Sérgreiningar og engin þjónusta Hún segir vandann vinda upp á sig í skólakerfinu og gagnrýnir skort á þjónustu til þeirra drengja sem hafa fengið greiningar en lítið sé brugð- ist við. „Margir flosna upp úr skóla 12-14 ára gamlir, eru þá jafnvel komnir í einhverja neyslu. Ég hef fengið for- eldra drengs sem var í námi hér til mín. Þau sýndu mér möppu sem var full af alls kyns greiningum á barninu. En ekki á neinum tíma- punkti hafði hann fengið neina sér- þjónustu, þrátt fyrir allar grein- ingarnar. Ég held að hver kennari sé ofhlaðinn, með svo mörg börn í bekk og oft erfiða bekki þar sem eru margir sem þurfa á séraðstoð að halda. Þessar sérgreiningar skila sér ekki í þjónustu. Margir hér hafa upplifað skólann sem neikvæðan þátt í sínu lífi. Skólagangan hefur einkennst af höfnun. Hér finna þeir fyrir umhyggju og hlýju, fá hvatn- ingu frá kennurunum. Við höfum verið heppin með kennara frá Fjöl- brautaskólanum. Þeim er hjálpað að finna eitthvað sem þeir ráða við til að yfirstíga þennan þröskuld að byrja í skóla.“ Friðhelgur staður Fangarnir bera mikla virðingu fyrir skólastarfinu og gæta þess að frið- ur sé um það. „Það eru undan tekn- ingar tilvik að það gerist eitthvað slæmt í skólanum hér. Það er eins og þeir beri virðingu fyrir honum. Þetta er friðhelgur staður. Þetta skiptir þá gríðarlega miklu máli og auðvitað er varla hægt að lýsa því hvað þetta skiptir miklu máli í betr- unar- og endurhæfingarstarfi. Við leggjum mesta áherslu á skólann, bæði hér og á Sogni.“ Hún segir þá fanga sem ákveða að læra hafa fyrir því. „Það er ekkert gefins í þessu samfélagi. Við erum upptekin af því að allir hlutir eigi að koma upp í hendurnar á okkur, margir vistmanna hugsa þann- ig líka hér. En það er ekki þann- ig með námsmenn á Litla-Hrauni. Það er einstaklingurinn sem ræður því hvað hann gerir hér. Hvað hann ætlar að gera við tímann. Ætlar hann að láta hann líða og koma aftur inn, takast ekki á við líðandi stund? Þeir sem virkilega leggja á sig í námi og eru í því af heilum hug, það sýnir sig að þeir eru að eygja aðra möguleika.“ Mikið eftirlit Mikið eftirlit er með föngum í námi. Öll tölvunotkun og samskipti eru skimuð. Enginn vist maður kemst upp með að vera í námi án þess að leggja sitt af mörkum. Margrét segir enda mikið í húfi. „Það er rangt að menn hafi skráð sig í skóla bara til þess að fá meiri útivist eða fá greitt. Ég fæ í hverri einustu viku yfirlit frá kennurum um ástundun, þá fæ ég afrit af öllum tölvupóstum, tölvunotkun og verkefnum sem er skilað. Menn fá svo bara greitt í takt við mæt- ingu og ástundun. Það verður að vera mikið eftirlit, þetta skiptir svo miklu máli að það má ekkert út af bregða.“ Hún segir marga taka stórt stökk í þroska í námi. „Þetta eykur sjálfstraust þeirra og þroska. Þú getur kannski fengið fanga inn sem er þrítugur í árum talið en að tala við viðkomandi er eins og að tala við fjórtán, fimmtán ára gamlan ungling. Þetta breytist oft mikið í námi. Á meðan fangar stundar nám þá breytast viðhorf gagnvart fjölskyldu, samfélagi og gagnvart sjálfum þeim. Ég finn að marg- ir eiga þá líka auðveldara með að horfast í augu við það sem þeir hafa gert og taka ábyrgð á því.“ Gefandi starf Starfið segir hún bæði gefandi og erfitt. Þegar hún var á vígvelli stjórnmálanna hlakkaði hún ekki mikið til að fara í vinnuna. Nú hlakkar hún til að morgni hvers dags. „Þetta er ótrúlega gefandi starf. Það tekur heilmikinn toll af manni líka, en það eru ákveðin for- réttindi að vakna á hverjum morgni og hlakka til að fara í vinnuna. Ég þekki vel annan vinnustað þar sem ég var hætt að hlakka til,“ segir hún og brosir. „Það er mikil breyt- ing fyrir mig. Nú, sjö árum eftir að ég kom hingað, þá finnst mér starf- ið enn þá jafn gefandi. Jafnvel enn meira, maður öðlast alltaf meiri skilning og þroska. Ég hef þroskast mikið á Litla-Hrauni,“ segir Mar- grét og skellir upp úr. Allir hafa hæfileika Margrét eygir alltaf eitthvað gott í hverjum þeim sem kemur til afplánunar. „Þetta eru mann- eskjur. Ég er bara sannfærð um það að langstærstur hluti þeirra sem koma hingað inn á eitthvað gott í sér. Það er okkar að vinna úr því, draga það fram og að það verði ríkjandi og ráðandi í þeirra fari. Það hafa allir hæfileika, það er líka okkar að finna þá og rækta. En ég lít ekki á það sem mitt hlutverk endilega að það sé allt rétt upp í hendurnar á þeim. Þeir þurfa að hafa fyrir hlutunum og læra að á hverjum einasta degi þá þurfum við að hafa fyrir ein- hverju og takast á við eitthvað.“ 3 ár Lagt er til í hvítbók um umbætur í menntun að nám til stúdentsprófs miðist við þriggja ára námstíma og að starfs- nám verði stytt. Styttra starfsnám mun gagnast föngum vel því þeir geta þá unnið að tækifærum sínum á meðan þeir afplána. 21% íslenskra nemenda nær ekki lágmarksvið- miðum í lestri. Árangur íslenskra nemenda í les- skilningi hefur versnað síðastliðinn áratug og mælist nú undir meðaltali OECD-ríkja. 44% nemenda tekst að ljúka námi úr fram- haldsskóla á tilsettum tíma. Stefnt er að því að ná þessu hlutfalli í 60%. Stór hópur fanga nær ekki að komast í framhaldsskóla og flosnar upp úr námi í grunnskóla. 30% Á Íslandi er hlutfall fullorðinna án fram- haldsskólaprófs hið fimmta hæsta meðal OECD-ríkja, eða um 30%. Bent hefur verið á að þetta háa hlutfall fólks án framhaldsskólamenntunar geti haft alvarlegar efnahagslegar og félagslegar afleiðingar. 27% nemenda innritast á almennar brautir í íslenska framhaldsskóla. Um 60% nemenda innritast beint á stúdents- námsbrautir en einungis 14% á starfsnámsbrautir. Innan Evrópusam- bandsins innritast um 50% nemenda á starfsnámsbrautir. ÓLÆSI, BROTTFALL ÚR FRAMHALDSSKÓLA OG STARFSNÁM Gerðu sjónvarpið snjallara Xtreamer Wonder Verð: 24.990 kr. Snjallpera Lumen Smart LED Verð: 7.990 kr. Far- og spjaldtölva Dell Inspiron 7347 Verð:179.990 kr. Hörðustu pakkarnir fást hjá Advania Guðrúnartúni 10, Reykjavík Mánudaga til föstudaga frá 8 til 17 Tryggvabraut 10, Akureyri Mánudaga til föstudaga frá 8 til 17 advania.is/jol Kíktu til okkar í kaffi – við tökum vel á móti þér í verslunum okkar Leðurbakpoki Solo Executive Verð: 24.990 kr. Heyrnartól - þrír litir Jabra Revo Stereo Verð: 29.990 kr. Fartölva Dell Inspiron 3531 Verð: 54.990 kr. Hátalari Marshall Stanmore Verð: 89.990 kr. Heyrnartól Urbanears Pla an - margir litir Verð: 10.490 kr. VANTAR VERKEFNI Fangar smíða húsgögn og fleira til þess að skapa sér atvinnu. Margrét stendur hér við jóla skraut sem fangar smíðuðu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.