Fréttablaðið - 20.12.2014, Side 70

Fréttablaðið - 20.12.2014, Side 70
FÓLK|HELGIN Daníel Auðunsson, einn meðlima hljómsveitar-innar, segir að flutt verði hátíðleg jólalög í bland við frumsamda eigin tónlist á tónleik- unum. Fljótlega á næsta ári kemur út ný plata með Árstíðum sem nefnst Hvel og er stefnt á útgáfutón- leika af því tilefni. Árstíðir hafa vakið mikla athygli fyrir vandaðan tónlistarflutning og raddaðan söng. „Við erum oft spurðir hvernig tónlist við flytjum,“ segir Daníel. „Það er kannski ekki auðvelt að skil- greina hana. Það sem við höfum komist næst því er kannski „Chamber Pop“ eða popp með klassísku ívafi,“ segir hann. Árstíðir vöktu mikla athygli í fyrra þegar strákarnir fluttu lagið Heyr himna smiður á lestarstöð í Þýskalandi. Upptakan hefur fengið næst- um fjórar milljónir áhorfenda á YouTube. SELDIST UPP Daníel og félagar hafa verið með Þorláksmessu- tónleika frá árinu 2008. „Hljómsveitin var stofnuð á því ári. Við vorum metnaðarfullir og vildum kynna tónlistina sem við flytjum. Þá var ákveðið að halda tónleika í Fríkirkjunni 30. desember. Okkur leist vel á kirkjuna sem tónleikasal. Árið eftir ákváðum við að halda tónleikana frekar á Þorláksmessu og þar sem mikill fjöldi mætti til að hlýða á okkur hafa þeir verið árlega. Áheyrendahópurinn er alltaf að stækka og í fyrra var uppselt. Þess vegna ákváðum við að hafa aukatónleika kl. 16 en með því gefum við fólki færi á að fara í skötuveislu eftir tónleikana. Vala Yates söngkona verður með okkur að þessu sinni ásamt þremur aukastrengjaleikurum og við munum kapp- kosta að ná fram hátíðleika,“ segir Daníel. ÞÝSK HEIMILDARMYND Þýskir kvikmyndagerðarmenn gerðu heimildar- mynd um Árstíðir sem sýnd var á RÚV og vakti mikla athygli. Daníel segir að það hafi komið sér á óvart hversu mikil viðbrögð hann fékk eftir sýningu myndarinnar. „Við fengum gríðarlega mikil viðbrögð við myndinni hér heima sem sýnir hversu mikið áhorf er á RÚV,“ segir hann. Þegar Árstíðir voru stofnaðar árið 2008 voru meðlimir þrír en fljótlega fjölgaði þeim í sex. Nú hafa tveir þeirra snúið sér að öðrum verkefnum og eftir eru fjórir, það eru Daníel, Ragnar Ólafsson, Karl James Pestka og Gunnar Már Jakobsson. ÍSLENDINGAR FÁ GÆÐASTIMPIL „Það getur verið erfitt að vera á sífelldum ferðalög- um. Maður gefur og gefur og vonar að einn daginn fái maður eitthvað til baka. Við lifum að mestu á ástinni á tónlist því þetta gefur ekki mikið í vasann,“ segir Daníel. „Við höfum ekki mikið spilað hér á landi undanfarið en farið víða í Evrópu og Rúss- landi og erum bókaðir fram í september á næsta ári. Við erum með rússneskan umboðsmann sem býr í Moskvu og hefur unnið mjög gott starf með okkur. Á næsta ári er meðal annars fyrirhuguð sex vikna tónleikaferð til Bandaríkjanna um sumarið og síðan til Japans í september. Okkur gefst tækifæri til að spila á fjölmennari tónleikum ytra en hér heima,“ segir Daníel og bætir við að það sé gott að vera frá Íslandi á ferðum erlendis. „Það er svo mikil gróska í íslenskri tónlist og útlendingar líta á það sem ákveð- inn gæðastimpil ef hljómsveit kemur frá Íslandi. Þess vegna fáum við oft gesti sem hafa aldrei heyrt tónlistina okkar.“ TIL SVALBARÐA Þegar Daníel er spurður hvort hann fái ekki að sjá og kynnast mörgum löndum á þessum ferðalögum, svarar hann því neitandi. „Stundum sér maður ekk- ert annað en tónlistarhúsið og vegina þangað. Þó kemur fyrir að okkur er boðið í partí eða grillveislu hjá tónleikahaldara. Þannig óvæntar uppákomur eru mjög skemmtilegar. Þá fær maður tækifæri til að kynnast fólki. Á þessu ári höfum við verið mest í Rússlandi, Þýskalandi, Tékklandi og víðar í Mið- Evrópu. Á næsta ári erum við bókaðir eitthvað í hverjum mánuði. Byrjum á Eurosonic í Hollandi í janúar en þar verður sérstök Íslandskynning og nítján hljómsveitir héðan spila þar. Í febrúar förum við síðan í spennandi ferð til Svalbarða og Álands- eyja. Það verður líklega nyrsta ferðin okkar.“ EKKERT STRESS Daníel segir að þrátt fyrir miklar annir í tónleika- haldi sé mjög erfitt að lifa alfarið á því. „Við þurfum að vera í annarri vinnu meðfram en þó þarf maður að hafa mikið frelsi. Þetta er mikið ævintýri sem mun skilja eftir sig góðar minningar. Það hjálpar að við erum ekki fjölskyldumenn því þá væri meiri pressa á okkur að þéna peninga,“ segir hann. Kærasta Daníels, Karin Björg Torbjörnsdóttir, er hálfsænsk og starfar sem óperusöngkona í Þýska- landi og þangað ætlar hann að fara á annan í jólum. „Hún er að vinna öll jólin og fær því ekkert frí,“ segir hann. Þau kynntust fyrir nokkrum árum en þá söng Karin með Svavari Knúti en það gerðu strákarnir í Árstíðum líka. Karin söng á Þorláksmessutónleikum Árstíða í fyrra og en einnig árið 2009. „Við verðum að æfa alla helgina fyrir Þorláksmessutónleikana og svo er þess krafist að við séum búnir að kaupa allar jólagjafir fyrir þann dag.“ Daníel segist vera jólabarn og það hafi aukist eftir því sem hann eldist. „Mér fannst á tímabili jólin snúast of mikið um stress og peninga. Þegar maður nær að yfirstíga það þá er þetta notalegur tími. Ég ætla að eyða aðfangadegi og jóladegi með foreldrum mínum áður en ég legg land undir fót.“ ■ elin@365.is LIFUM Á ÁSTINNI Á TÓNLISTINNI HÁTÍÐ Hljómsveitin Árstíðir verður með tvenna hátíðartónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík á Þorláksmessu. Skemmtileg hefð hefur skapast fyrir þessum tónleik- um og kirkjan jafnan verið þéttsetin. Þarna gefst tækifæri fyrir fólk að kynnast frábærri hljómsveit sem hefur verið að gera garðinn frægan víða í Evrópu. HÁTÍÐ Í BÆ Daníel Auðunsson segir að helgin fari í æfingar fyrir Þorláksmessutónleika Árstíða í Fríkirkjunni. Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS Virkar lausnir frá OptiBac „Bifidobacteria & Fibre“ Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Eitt kort 38 vötn 6.900 kr www.veidikortid.is 00000 JÓLAGJÖF VEIÐIMA NNSINS! Iða skálda í Zimsen Upplestrarkvöld kl. 20 laugardaginn 20. desember Oddný Eir Ævarsdóttir - Ástarmeistarinn Ófeigur Sigurðsson - Öræfi Þórdís Gísladóttir - Velúr Guðmundur Brynjólfsson - Gosbrunnurinn Guðrún Hannesdóttir - Slitur úr orðabók fugla Guðrún Vilmundardóttir les úr Hinn litlausi Tskukuru Tazaki og pílagrímsár hans IÐA bókakaffi Vesturgata 2a 101 Reykjavík. Opið alla daga til 22 Opnunartími um jólin í IÐU, Vesturgötu Þorláksmessa: 8-23 Aðfangadagur: Lokað Jóladagur: Lokað Annar í jólum: Lokað
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.