Fréttablaðið - 20.12.2014, Síða 70
FÓLK|HELGIN
Daníel Auðunsson, einn meðlima hljómsveitar-innar, segir að flutt verði hátíðleg jólalög í bland við frumsamda eigin tónlist á tónleik-
unum. Fljótlega á næsta ári kemur út ný plata með
Árstíðum sem nefnst Hvel og er stefnt á útgáfutón-
leika af því tilefni. Árstíðir hafa vakið mikla athygli
fyrir vandaðan tónlistarflutning og raddaðan söng.
„Við erum oft spurðir hvernig tónlist við flytjum,“
segir Daníel. „Það er kannski ekki auðvelt að skil-
greina hana. Það sem við höfum komist næst því
er kannski „Chamber Pop“ eða popp með klassísku
ívafi,“ segir hann. Árstíðir vöktu mikla athygli í fyrra
þegar strákarnir fluttu lagið Heyr himna smiður á
lestarstöð í Þýskalandi. Upptakan hefur fengið næst-
um fjórar milljónir áhorfenda á YouTube.
SELDIST UPP
Daníel og félagar hafa verið með Þorláksmessu-
tónleika frá árinu 2008. „Hljómsveitin var stofnuð á
því ári. Við vorum metnaðarfullir og vildum kynna
tónlistina sem við flytjum. Þá var ákveðið að halda
tónleika í Fríkirkjunni 30. desember. Okkur leist vel á
kirkjuna sem tónleikasal. Árið eftir ákváðum við að
halda tónleikana frekar á Þorláksmessu og þar sem
mikill fjöldi mætti til að hlýða á okkur hafa þeir verið
árlega. Áheyrendahópurinn er alltaf að stækka og í
fyrra var uppselt. Þess vegna ákváðum við að hafa
aukatónleika kl. 16 en með því gefum við fólki færi
á að fara í skötuveislu eftir tónleikana. Vala Yates
söngkona verður með okkur að þessu sinni ásamt
þremur aukastrengjaleikurum og við munum kapp-
kosta að ná fram hátíðleika,“ segir Daníel.
ÞÝSK HEIMILDARMYND
Þýskir kvikmyndagerðarmenn gerðu heimildar-
mynd um Árstíðir sem sýnd var á RÚV og vakti
mikla athygli. Daníel segir að það hafi komið sér á
óvart hversu mikil viðbrögð hann fékk eftir sýningu
myndarinnar. „Við fengum gríðarlega mikil viðbrögð
við myndinni hér heima sem sýnir hversu mikið
áhorf er á RÚV,“ segir hann. Þegar Árstíðir voru
stofnaðar árið 2008 voru meðlimir þrír en fljótlega
fjölgaði þeim í sex. Nú hafa tveir þeirra snúið sér að
öðrum verkefnum og eftir eru fjórir, það eru Daníel,
Ragnar Ólafsson, Karl James Pestka og Gunnar Már
Jakobsson.
ÍSLENDINGAR FÁ GÆÐASTIMPIL
„Það getur verið erfitt að vera á sífelldum ferðalög-
um. Maður gefur og gefur og vonar að einn daginn
fái maður eitthvað til baka. Við lifum að mestu á
ástinni á tónlist því þetta gefur ekki mikið í vasann,“
segir Daníel. „Við höfum ekki mikið spilað hér á
landi undanfarið en farið víða í Evrópu og Rúss-
landi og erum bókaðir fram í september á næsta ári.
Við erum með rússneskan umboðsmann sem býr í
Moskvu og hefur unnið mjög gott starf með okkur.
Á næsta ári er meðal annars fyrirhuguð sex vikna
tónleikaferð til Bandaríkjanna um sumarið og síðan
til Japans í september. Okkur gefst tækifæri til að
spila á fjölmennari tónleikum ytra en hér heima,“
segir Daníel og bætir við að það sé gott að vera frá
Íslandi á ferðum erlendis. „Það er svo mikil gróska í
íslenskri tónlist og útlendingar líta á það sem ákveð-
inn gæðastimpil ef hljómsveit kemur frá Íslandi.
Þess vegna fáum við oft gesti sem hafa aldrei heyrt
tónlistina okkar.“
TIL SVALBARÐA
Þegar Daníel er spurður hvort hann fái ekki að sjá
og kynnast mörgum löndum á þessum ferðalögum,
svarar hann því neitandi. „Stundum sér maður ekk-
ert annað en tónlistarhúsið og vegina þangað. Þó
kemur fyrir að okkur er boðið í partí eða grillveislu
hjá tónleikahaldara. Þannig óvæntar uppákomur
eru mjög skemmtilegar. Þá fær maður tækifæri til
að kynnast fólki. Á þessu ári höfum við verið mest
í Rússlandi, Þýskalandi, Tékklandi og víðar í Mið-
Evrópu. Á næsta ári erum við bókaðir eitthvað í
hverjum mánuði. Byrjum á Eurosonic í Hollandi
í janúar en þar verður sérstök Íslandskynning og
nítján hljómsveitir héðan spila þar. Í febrúar förum
við síðan í spennandi ferð til Svalbarða og Álands-
eyja. Það verður líklega nyrsta ferðin okkar.“
EKKERT STRESS
Daníel segir að þrátt fyrir miklar annir í tónleika-
haldi sé mjög erfitt að lifa alfarið á því. „Við þurfum
að vera í annarri vinnu meðfram en þó þarf maður
að hafa mikið frelsi. Þetta er mikið ævintýri sem
mun skilja eftir sig góðar minningar. Það hjálpar
að við erum ekki fjölskyldumenn því þá væri meiri
pressa á okkur að þéna peninga,“ segir hann.
Kærasta Daníels, Karin Björg Torbjörnsdóttir, er
hálfsænsk og starfar sem óperusöngkona í Þýska-
landi og þangað ætlar hann að fara á annan í jólum.
„Hún er að vinna öll jólin og fær því ekkert frí,“ segir
hann. Þau kynntust fyrir nokkrum árum en þá söng
Karin með Svavari Knúti en það gerðu strákarnir í
Árstíðum líka. Karin söng á Þorláksmessutónleikum
Árstíða í fyrra og en einnig árið 2009. „Við verðum
að æfa alla helgina fyrir Þorláksmessutónleikana og
svo er þess krafist að við séum búnir að kaupa allar
jólagjafir fyrir þann dag.“
Daníel segist vera jólabarn og það hafi aukist
eftir því sem hann eldist. „Mér fannst á tímabili jólin
snúast of mikið um stress og peninga. Þegar maður
nær að yfirstíga það þá er þetta notalegur tími. Ég
ætla að eyða aðfangadegi og jóladegi með foreldrum
mínum áður en ég legg land undir fót.“ ■ elin@365.is
LIFUM Á ÁSTINNI
Á TÓNLISTINNI
HÁTÍÐ Hljómsveitin Árstíðir verður með tvenna hátíðartónleika í Fríkirkjunni í
Reykjavík á Þorláksmessu. Skemmtileg hefð hefur skapast fyrir þessum tónleik-
um og kirkjan jafnan verið þéttsetin. Þarna gefst tækifæri fyrir fólk að kynnast
frábærri hljómsveit sem hefur verið að gera garðinn frægan víða í Evrópu.
HÁTÍÐ Í BÆ Daníel Auðunsson segir að helgin fari í æfingar fyrir Þorláksmessutónleika Árstíða í Fríkirkjunni.
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Virkar lausnir frá OptiBac
„Bifidobacteria & Fibre“
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Eitt kort
38 vötn
6.900 kr
www.veidikortid.is
00000
JÓLAGJÖF
VEIÐIMA
NNSINS!
Iða skálda í Zimsen
Upplestrarkvöld kl. 20 laugardaginn 20. desember
Oddný Eir Ævarsdóttir - Ástarmeistarinn
Ófeigur Sigurðsson - Öræfi
Þórdís Gísladóttir - Velúr
Guðmundur Brynjólfsson - Gosbrunnurinn
Guðrún Hannesdóttir - Slitur úr orðabók fugla
Guðrún Vilmundardóttir les úr
Hinn litlausi Tskukuru Tazaki og pílagrímsár hans
IÐA bókakaffi Vesturgata 2a 101 Reykjavík. Opið alla daga til 22
Opnunartími um jólin í IÐU, Vesturgötu
Þorláksmessa: 8-23
Aðfangadagur: Lokað
Jóladagur: Lokað
Annar í jólum: Lokað