Fréttablaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 78
Laust er til umsóknar starf sérfræðings / Reliability Engineer í verkfræðideild Icelandair.
SÉRFRÆÐINGUR / RELIABILITY ENGINEER
STARFSSVIÐ:
Eftirlit og mat á tæknilegu uppgjöri
viðhaldsskoðana flugflota Icelandair
Rýni og mat viðhaldsgagna
Umsjón með útgáfu upplýsinga um áreiðanleika
flugflotans
Samskipti og samvinna með fulltrúum
Samgöngustofu
Samskipti við framleiðendur flugvéla og íhluta
Leggja til og meta árangur breytinga
á viðhaldskerfi
Kostnaðarmat varðandi hugsanlegar breytingar
á viðhaldskerfi
Verkefnastjórnun
Önnur tilfallandi verkefni
HÆFNISKRÖFUR:
Próf í verkfræði eða tæknifræði eða sambærileg
menntun
Góð færni í öflun og greiningu gagna
Góð tölfræðikunnátta
Mjög góð enskukunnátta bæði í rituðu og töluðu
máli er skilyrði
Þekking og reynsla af viðhaldi flugvéla er kostur
Mjög góð tölvukunnátta
Mjög góðir samskiptahæfileikar
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði, sem og
hæfileiki til hópvinnu
Nánari upplýsingar veita:
Unnar M. Sumarliðason I unnar@its.is
Steinunn Una Sigurðardóttir I unasig@icelandair.is
+ Umsóknir óskast fylltar út á www.icelandair.is/umsokn
eigi síðar en 5. janúar 2015. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
7
21
25
1
2
/1
4
Vertu með í frábærum hóp
ILVA e r glæsileg húsgagna- og gjafavöruverslun sem orðin er þekkt meðal landsmanna fyrir gæði,
verðlagningu og þjónustu. Við erum stolt af starfsfólki okkar og v iljum að starfsfólkið sé s tolt a f okkur.
Helgarstarf
Við leitum að þjónustuliprum einstaklingum til afgreiðslu- og þjónustustarfa um helgar. Leggjum
áherslu á snyrtimennsku, reglusemi og metnað f yrir a ð skila árangri í starfi. V innutími l augardaga
10:00-18:00, sunnudaga 12:00-18:00. Upplýsingar veitir Jóna í síma 842-4931
Þjónustufulltrúi - fullt starf
Við leitum að þjónustuliprum einstaklingi til starfa á þjónustuborði. Vinnutími er frá 11:00 - 18:30
alla virka daga og aðra hvora helgi ef þess er óskað. Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund,
skipulagshæfileika og góða alhliða tölvukunnáttu. Þarf að geta unnið undir álagi. Þekking á Navision
er kostur. Starfslýsing: Þjónustustörf, afgreiðsla á kassa, símsvörun, o.fl. Góð laun í boði fyrir réttan
aðila. Upplýsingar veitir Jóna í síma 842-4931
Við bjóðum glæsilegt vinnuumhverfi og góða starfsþjálfun.
Áhugasamir geta sótt um á www.ILVA.is
Fjölskyldu- og félagssvið Reykjanesbæjar óskar eftir að
ráða forstöðumann íbúðakjarna á heimilum fatlaðs fólks
sem nýtur sólarhringsþjónustu.
Ábyrgð:
Forstöðumaður
- ber ábyrgð á að íbúum sé veitt sú þjónusta og stuðningur
sem þeir þarfnast í daglegu lífi.
- stendur vörð um réttindi íbúa ásamt því að að efla
möguleika þeirra til virkrar þátttöku í samfélaginu.
- ber ábyrgð á daglegum rekstri íbúðakjarnans.
- annast starfsmannahald með öllu sem því tilheyrir.
- er í samstarfi við aðra þjónustuaðila eftir því sem við á.
Hæfniskröfur:
- Menntun á sviði þroskaþjálfafræða, sálfræði,
félagsvísinda eða menntasviði.
- Þekking og reynsla í málefnum fatlaðs fólks.
- Reynsla af stjórnun og mannaforráðum.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til 4. janúar.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef Reykjanesbæjar
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Upplýsingar veitir Sigríður Daníelsdóttir í síma 421 6700
eða á netfanginu sigridur.danielsdottir@reykjanesbaer.is
ATVINNA
FORSTÖÐUMAÐUR ÍBÚÐAKJARNA
Þjóðminjasafn Íslands er háskólastofnun og höfuðsafn á sviði menningar-
minja og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu.
Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningarminjum og sögu
íslensku þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar m.a. á grundvelli laga
um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011, safnalaga nr. 141/2011 og laga um
menningarminjar nr. 80/2012.
Þjóðminjasafn Íslands auglýsir lausa til umsóknar
Rannsóknarstöðu í nafni
dr. Kristjáns Eldjárns
Við Þjóðminjasafn Íslands er sérstök rannsóknarstaða tengd nafni
dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands,
sbr. 3. gr. a. laga um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011.
Í reglugerð nr. 896/2006 segir: „Staðan er ætluð fræðimönnum, er
sinna rannsóknum á sviði íslenskrar menningarsögu sem fellur
undir starfssvið Þjóðminjasafns Íslands.“ Rannsóknaverkefnum
sem unnið er að í rannsóknarstöðu Kristjáns Eldjárns er ætlað að
efla rannsóknastarfsemi Þjóðminjasafns Íslands. Við ráðningu í
stöðuna er m.a. tekið mið af rannsóknastefnu Þjóðminjasafnsins
og stöðu þess sem háskólastofnunar. Til greina kemur að tengja
sjálfstæða rannsókn við stór rannsóknaverkefni sem þegar er
unnið eða hefur verið unnið að innan safnsins.
Staðan er auglýst til eins árs. Fræðimaður skal senda inn umsókn,
þar sem verkefnið er vandlega skilgreint og hvernig það verði til
að efla menningarsögulegar rannsóknir. Verkefnið skal skilgreint
sem eins árs verkefni. Umsókn skal fylgja greinargerð um mennt-
un og reynslu af fræðistörfum.
Verkefni, eins og það er afmarkað, lýkur með formlegum
verklokum að ráðningartíma liðnum. Stefnt skal að því að
niðurstöður rannsókna verði birtar á viðurkenndum fræðilegum
vettvangi eftir verklok en auk þess skulu þær kynntar með
fyrirlestri, sýningu eða öðrum hætti innan Þjóðminjasafns Íslands.
Rannsóknarniðurstöður skulu jafnframt varðveittar í Þjóðminja-
safni Íslands.
Fræðimaður sem gegnir rannsóknarstöðu Kristjáns Eldjárns
hefur aðstöðu hjá og starfar innan rannsókna- og varðveislusviðs
Þjóðminjasafnsins. Fræðimaður skal leggja sitt af mörkum til að
efla rannsóknarstarf safnsins og taka þátt í að veita nýjum
straumum inn í fræðilega umræðu.
Í samræmi við ákvæði í reglugerð nr. 896/2006 ákvarðar Þjóð-
minjavörður um launakjör fræðimannsins, innan marka kjara-
samninga og fjárheimilda.
Umsókn með verkefnislýsingu og ferilskrá sendist Þjóðminjasafni
Íslands, Suðurgötu 43, 101 Reykjavík, eða á póstfangið
starfsumsokn@thjodminjasafn.is, í síðasta lagi 29. janúar 2015.
Upplýsingar eru veittar í síma 530 2200, eða í tölvupósti hjá
Önnu Lísu Rúnarsdóttur, settum þjóðminjaverði
(anna.lisa@thjodminjasafn.is).