Fréttablaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 94
KYNNING − AUGLÝSINGLeiga og eignaumsjón LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 20144
HÚSALEIGUBÆTUR GETA MEST ORÐIÐ 50.000 KRÓNUR
Grunnfjárhæð húsaleigubóta á hverja íbúð er 17.500 krónur. Viðbætur vegna barna eru 14.000 krónur
vegna fyrsta barns, 8.500 vegna annars barns og 5.500 vegna þriðja barns. Börnin þurfa að hafa lög-
heimili í hinu leigða húsnæði. Að auki koma 15% þess hluta leigufjárhæðar sem liggur á bilinu 20.000–
50.000 kr. Húsaleigubætur geta mest orðið 50.000 kr. á mánuði, þó aldrei hærri en 50% af leigufjárhæð.
Tekjur skerða húsaleigubætur í hverjum mánuði um 0,67 prósent af árstekjum umfram 2.550.000
krónur. Með tekjum er átt við samanlagðar heildartekjur allra þeirra sem lögheimili eða aðsetur eiga
í viðkomandi leiguhúsnæði og eru þá tekjur barna umsækjanda 20 ára og eldri meðtaldar, nema
viðkomandi stundi skólanám í sex mánuði eða lengur á árinu. Undanþegnar eru almannatrygginga-
bætur frá Tryggingastofnun ríkisins, húsaleigubætur fyrra árs og þær tekjugreiðslur sem eru undan-
þegnar skatti. Þá teljast elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr séreignarlífeyrissjóðum, á grundvelli laga um
skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, ekki til tekna.
Eignir skerða húsaleigubætur séu þær samanlagðar, að frádregnum skuldum, hærri en 6.651.000 kr.
Heimild: velferdarraduneyti.is
GÁMAR SEM
LEIGUHÚSNÆÐI
Takmarkað framboð á leigu-
húsnæði víða um heim hefur
kallað á ýmsar nýjar og frumlegar
lausnir. Undanfarin ár hefur það
færst í vöxt víða um heim að
breyta hefðbundnum gámum í
íbúðarhúsnæði sem bæði er nýtt
undir lítil einbýli eða minni og
stór fjölbýli.
Slík gámahús hafa verið nýtt
undir leiguíbúðir víða um heim,
til dæmis í Mið-Evrópu, Bandaríkj-
unum og í Asíu þar sem pláss fyrir
nýbyggingar ætlaðar leiguíbúð-
um er sérstaklega af skornum
skammti. Flestar þessarar íbúða
eru byggðar með einstaklinga í
huga, til dæmis nemendur, eða
barnlaus pör. Þó hafa líka verið
byggð stærri hús þar sem jafnvel
2-3 gámar mynda grunn og við-
byggingum er bætt við þá.
Helstu kostir gámahúsa eru að
þau eru miklu ódýrari og einfald-
ari í uppsetningu en hefðbundið
húsnæði auk þess sem rekstrar-
kostnaður er margfalt lægri.
Íslendingar hafa ekki kynnst
gámahúsnæði í þessar mynd
nema þá helst úti á landi við
ýmsar stórar byggingafram-
kvæmdir. Þar hafa starfsmenn
stundum búið tímabundið í þeim
eða öðrum smáhýsum auk þess
sem gámar hafa verið nýttir undir
ýmsa sameiginlega aðstöðu þar.
Vafalaust þykir mörgum þetta
fráhrindandi hugmynd en ekki
þarf annað en að skoða nútíma
gámahúsnæði á netinu til að sjá
að þar eru á ferð falleg hús sem
henta ólíkum þjóðfélagshópum.
MIKILVÆGT AÐ VANDA
VALIÐ
Vandasamt getur verið að
velja samviskusama og skilvísa
leigjendur. Því er nauðsynlegt að
leigusali kanni sem best bak-
grunn þeirra sem sækja um að
leigja húsnæði og þarf þá jafnvel
að spyrja krefjandi spurninga.
Sem dæmi um spurningar sem
leigusali gæti spurt til að fá heild-
stæða sýn á leigjandann eru:
● Hver er ástæðan fyrir því að þú
vilt leigja?
● Hver er vinnuveitandi þinn?
● Hverjar eru tekjur þínar?
● Getur þú útvegað meðmæli
frá fyrri leigusala og einnig nú-
verandi vinnuveitanda?
● Ertu á vanskilaskrá og hefur þú
hreint sakavottorð?
● Hversu margir munu búa í
íbúðinni?
● Ertu með gæludýr?
● Verður í lagi að ég heimsæki
þig í íbúðinni með stuttum fyrir-
vara?
● Reykir þú?
Öll þjónusta
við fasteignina
á einni hendi
F A S T E I G N A U M S J Ó N | R Æ S T I N G | Þ R I F Í M A T V Æ L A I Ð N A Ð I | S É R V E R K E F N I | V E I T I N G A R | I S S . I S
Upplýsingar hjá ISS Ísland: 5800 600 eða sala@iss.
Fasteignaumsjón ISS
er hagkvæmur kostur