Fréttablaðið - 20.12.2014, Page 96

Fréttablaðið - 20.12.2014, Page 96
20. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 68 Lágum við útvarpið og biðum eftir jólakveðjunni frá pabba Rósa Haraldsdóttir sjúkraliði átti heima í því sögufræga húsi Fjalakettinum við Aðalstræti fyrstu árin sín. Rétt áður en klukkur Dómkirkjunnar hringdu inn helg jól skottaðist hún jafnan til ömmu sinnar og afa, Rósu og Helga Hjörvar, í Suðurgötu 6. Heimilið var allt snurf-usað og fínt hjá ömmu Rósu í Suðurgötunni og alveg sérstak-lega á hátíðum, enda hafði hún stúlku til að hjálpa sér. Sú bjó í húsinu, líka um jólin. Við vorum alltaf hjá ömmu og afa á aðfangadagskvöld þegar ég var lítil. Þar var stórt lifandi jólatré í stofunni og við gengum syngjandi kringum það.“ Þannig byrjar Rósa Hara ldsdótt ir að rifja upp bernsku- jól í Reykjavík á fimmta áratug síðustu aldar. Sjálf átti hún heima í Aðal- stræti 8, tignarlegu húsi með stórum svöl- um. Það gekk undir nafninu Fjalakötturinn enda var leikhús í hluta þess um tíma og þar var fyrsta bíó á Íslandi. En hvort tveggja fyrir daga Rósu. Foreldrar Rósu voru Solveig Hjörvar hús- freyja og Haraldur Samúelsson loftskeyta- maður á togurum og hún var í miðið af þremur systkinum sem á legg komust. Höldum áfram með jólaminn- ingarnar. Hvað var á borðum hjá ömmu Rósu og afa Helga á aðfanga- dagskvöld? „Veistu, ég man ekkert hvað við borðuðum. Ég var aldrei neitt matargat. En ég reikna með að það hafi verið lambalæri og senni- lega ís á eftir. Man bara eftir jóla- skemmtuninni í stofunni. Þegar við höfðum öll gengið kringum jólatréð lékum við krakkarnir okkur með það sem við fengum eða lásum í nýju bókunum. Við fengum alltaf bækur, systkinin. Ein jólin fékk ég Önnu í Grænuhlíð.“ Eru þér aðrar jólagjafir minnis- stæðar frá þessum árum? „Ég hef lík- lega verið fimm ára þegar ég fékk silfurarmband með litlum fílum í halarófu. Hvort það var um sömu jól eða jólin áður sem ég fékk fjög- urra manna dúkkukaffistell frá ömmu minni, það man ég ekki. En ég hélt mikið upp á það og passaði það eins og sjáöldur augna minna. Þegar ég var komin fram yfir fermingu hafði mamma lánað frænk- um mínum stellið og þær brutu tvo bolla. Þá mölvaði ég það sem eftir var, setti allt í skó- kassa og gróf hann. Það var bara jarðarför. Á þeim tíma var ég flutt austur í sveit, að Brautarholti á Skeiðum.“ Fékkst þú fína kjóla fyrir jólin þegar þú varst barn? „Já. Mamma saumaði rosalega fína jólakjóla á okkur systurnar. Meðal annars siffonkjóla, rauðbleika með hvítum doppum. Svo fór pabbi oft í siglingar og keypti margt handa okkur úti í Bretlandi og Þýskalandi, bæði föt og annað.“ Var hann alltaf heima á jól unum? Úr myndaalbúminu Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is JÓLABARN „Mamma bjó til kúlu til að hengja á tréð. Það er lítil ljósapera, hún hefur lakkað hana með naglalakki og sett á hana glimmer,“ segir Rósa sem lumar líka á skrauti frá æsku foreldra sinna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TEBOÐ Svalirnar á Fjalakettinum voru upplagðar sem leikpláss. HJÁ LJÓSMYNDARANUM „Mamma saumaði rosalega fína jólakjóla.“ Í ÚTIVIST Á góðviðrisdegi í rimla- rúminu úti á svölum. „Nei, nei. Pabbi var oft á sjó um jólin og sendi okkur þá alltaf kveðju í útvarpinu. Við lágum við tækin og biðum eftir kveðjunni frá honum. Svo var víst nokkuð algengt að skipunum væri komið út fyrir ytri hafnargarðinn fyrir klukkan fimm á aðfangadag því þá mátti senda þau af stað í túr annan hvorn jóladaginn en það var bann- að ef skipin voru við bryggju. Þetta hefur mér verið sagt en ég man það ekki sjálf. Pabbi var bara í fjarskiptunum en ekki í erfiðisvinnunni um borð. En það var svo sem álag líka, sér- staklega í stríðinu. Þá máttu loft- skeytamennirnir aldrei sofa djúpum svefni, því þeir urðu að hlusta eftir öllum hljóðum og voru með talstöð- ina í sínum pínulitlu klefum.“ Skreyttuð þið eitthvað heima hjá ykkur fyrir jólin? „Já, og ég á enn sýnishorn af því sem við skreytt- um með. Mamma bjó til kúlu til að hengja á tréð. Það er lítil ljósa- pera, hún hefur lakkað hana með naglalakki og sett á hana glimm- er. Sú kúla er líklega búin til 1942 eða 43. Ég skreyti alltaf með henni. Líka með kúlu sem pabbi minn fékk þegar hann var tveggja ára og hann var fæddur 1910. Svo á ég skraut sem mamma átti þegar hún var barn.“ Fórstu á jólaball? „Hvort ég gerði. Afi, Helgi Hjörvar, vann hjá útvarp- inu og fór alltaf með okkur krakk- ana á jólaball þangað síðdegis á jóla- dag. Það var mikil skemmtun. Útvarpið var á efri hæð í Land- símahúsinu við Austurvöll (Nasa). Þar var lyfta milli hæða sem sér- stakur lyftuvörður stjórnaði. Svo voru leðursæti í lyftunni. Á jólaballinu var barnakór sem söng, það var gengið í kring- um jólatré, lesin saga og það kom jólasveinn. Þetta var sent út um allt land þannig að börn á lands- byggðinni gátu fylgst með, þar sem útvarpið náðist. Áður en við héldum heim fengum við öll epli og þau epli ilmuðu eins og jólaeplin gerðu á þeim tíma þann- ig að lyktin barst um allt hús. Ég hef ekki fundið eplalykt í mörg ár.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.