Fréttablaðið - 20.12.2014, Side 100

Fréttablaðið - 20.12.2014, Side 100
20. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN AÐVENTAN | 72 súkkulaðibollar sem hann kveðst hafa leyft krökkunum að hjálpa til með. „Þetta er skemmtileg leið til að bera fram eftirrétt í og lyftir honum á hærra plan. Ég mæli líka með súkkulaði-pannacotta,“ segir hann. „Það er alveg fagurt hversu einfalt það er.“ Súkkulaði-pannacotta með hind- berja-coulis og ferskum berjum Fyrir sex til átta Fyrir pannacotta 200 g súkkulaði 5 dl rjómi 3 dl nýmjólk 1 vanillustöng 150 g sykur 5 matarlímsblöð Fyrir 350 ml af coulis 250 g frosin hindber 175 g sykur 200 ml vatn 1. Bræðið súkkulaðið í potti. 2. Hellið rjóma, mjólk og sykri saman við og blandið vel. 3. Skerið vanillustöngina niður eftir miðjunni og skafið fræin út með hníf. Setjið út í súkkulaðimjólkina ásamt sjálfri vanillustönginni og hitið að suðu. 4. Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn og látið liggja þar þangað til suðan er komin upp í súkkulaðimjólkinni. 5. Færið þá pottinn af hitanum og látið kólna í nokkrar mínútur. 6. Takið gelatínblöðin upp úr vatninu og kreistið vatnið úr þeim áður en þeim er svo blandað saman við súkkulaðimjólkina. 7. Hellið súkkulaðimjólkinni í heppileg form. Hindberja-coulis 1. Setjið ber, sykur og vatn saman í pott og hleypið rétt upp suðunni. 2. Lækkið hitann og látið krauma létt þar til sósan hefur soðið niður um þriðjung. 3. Hellið sósunni í gegnum sigti og kælið. Súkkulaðibollar með ís og heimalagaðri jarðarberjasósu Fyrir fjóra til sex nautnaseggi 200 g gott súkkulaði Vanilluís 4-6 blöðrur 250 g jarðarber 75 g sykur 1/4 bolli vatn 1. Bræðið súkkulaðið við lágan hita. 2. Blásið upp blöðrurnar í þá stærð sem þið kjósið. 3. Dýfið blöðrunum í súkkulaðið til hálfs og tyllið þeim síðan á bök- unarplötu þannig að myndist flatur botn. Látið þær storkna og dýfið aftur í súkkulaðið til að gera bollann sterkari. Geymið í ísskáp í tvær til þrjár klukkustundir. 4. Hlutið jarðarberin í fjórðunga, setjið í pott ásamt vatni og sykri, hleypið upp suðunni og látið malla þangað til vatnið er soðið alveg niður. Leyfið sósunni að kólna eða berið hana fram volga. 5. Sprengið blöðrurnar og losið þær frá súkkulaðinu. 6. Setjið skálarnar á disk, nóg af ís í þær og svo eins mikið af jarðarberja- sósu og hugurinn girnist! Ragnar Freyr Ingvars-son, læknir og matarg-úruú, kveðst íhaldssam-asti maður allra tíma á aðfangadagskvöld. „Þá er bara graflax og ristað brauð í forrétt, svínaham- borgarhryggur í aðalrétt og perur Helenu fögru í eftirrétt. Allt eins og amma og afi höfðu það,“ segir hann. „Á jóladag reyni ég hins vegar að bretta upp ermar og hafa eitthvað nýstárlegra.“ Ragn- ar Freyr býr í Lundi í Svíþjóð og þangað fær hann foreldra sína og bróður til sín yfir jólin. Ragnar Freyr er nýbúinn að gefa út bókina Veislan endalausa og tekur því vel að deila tveimur uppskriftum að eftirréttum úr henni. Að sjálfsögðu hefur hann prófað þá. „Ég át allt sem er í bókinni og þessa tvo rétti hef ég gert nokkrum sinnum, þeir eru pottþéttir,“ lofar hann. Hlær dátt þegar hann er spurður hvern- ig hann líti út. „Ég er fimm kíló- um of þungur. Maður sem borðar jafn mikið og ég getur ekki slopp- ið refsilaust en ég reyni að lyfta lóðum og spila skvass til að vega upp á móti átinu.“ Í annarri uppskriftinni eru Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Fegurð einfaldleikans í eft irréttum Eitt af því sem huga þarf að í tíma er eftirrétturinn á aðfangadagskvöld. Sumir halda í hefðir, einn þeirra er Ragnar Freyr Ingvarsson, einnig þekktur sem læknirinn í eldhúsinu. Hann lumar líka á hugmyndum fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt. Ég er aldrei með það sama í jólamat- inn – við hjónin erum bæði nokkuð tilraunaglöð og algerir gourmet- nautnaseggir! Það eru samt nokkr- ir fastir punktar í tilverunni á jól- unum. Til dæmis eitt sem alltaf er í boði með eftirréttinum, bæði á aðfangadagskvöld og jóladag. Það er karamella sem ég geri og hún er svo góð að ég þarf að passa að hún klárist ekki fyrir matinn! Við höfum í gegnum tíðina haft karamelluna með heimalöguðum ís, ris à l´amande, súkkulaðiköku og fleiru. Karamella 2 1/2 dl rjómi 1 1/2 msk. sykur 3 msk. síróp Smjörklípa Vanilludropar Rjómi, sykur og síróp er soðið í hálftíma. Bæta svo smjörklípunni og vanillunni við. Karamella ómissandi Hver sem jóladesertinn verður hjá Þórunni Lárusdóttur leikkonu verður karamella í boði. LEIKKONAN Þórunn er enn að velta fyrir sér eftirréttinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Ég hef farið til tengdó á aðfanga- dagskvöld seinni árin. Hún ber allt- af fram mjög góðan heimagerðan ís en ég er að gæla við að gera ris à l´amande fyrir þessi jól,“ segir Þor- björn Sigurðsson verkfræðingur og gítar- og hljómborðsleikari með Mugison, Pétri Ben, Ensími og fjöl- mörgum fleirum. Hann kveðst eiga eftir að taka slaginn við tengda- mömmu. „Tengdó kemur til okkar núna og er búin að bjóðast til að koma með ís.“ Svo það er óvíst hvernig slagurinn endar? „Já, eða að þær mæðgurnar viti að það verði slagur. Ég á eftir að taka þá umræðu. En ég hef gert ris à l´amande áður svo ég treysti mér í það. Fann bara uppskrift á netinu og útkoman varð verulega djúsí. Kannski höfum við bara bæði ris à l´amande og ís, er ekki bæði betra?“ Tekur slaginn við tengdamömmu Þorbjörn Sigurðsson, verkfræðingur og tónlistarmaður, er vanur að fá gómsætan ís hjá tengdó á aðfangadagskvöld. Nú býður hann henni heim. TÓNLISTARMAÐURINN „Kannski höfum við bara bæði ris à l’amande og ís,” segir Þorbjörn. KOKKURINN Í ELDHÚSINU Á aðfanga- dag víkur Ragnar Freyr ekki frá því hefð- bundna en á jóladag brettir hann upp ermar. MYNDIR/ÚR BÓKINNI VEISLAN ENDALAUSA SÚKKULAÐI-PANNACOTTA Einfalt að gera, að sögn kokksins í eldhúsinu. BOLLAR GERÐIR MEÐ BLÖÐRUM Nauðsynlegt er að dýfa blöðrunum tvívegis í súkkulaðið og láta það storkna á milli. ÍSINN Ragnar Freyr segir líka mega bera fram frómas eða ris à l´amande í bollunum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.