Fréttablaðið - 31.12.2014, Blaðsíða 54
31. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 46
Áramótaheitin 2015
Á miðnætti gengur nýtt ár í garð og fj ölmargir strengja áramótaheit í tilefni þess. Fréttablaðið tók nokkra einstaklinga tali
og grennslaðist fyrir um áramótaheit þeirra. Þar kennir ýmissa grasa en viðmælendur strengdu þess meðal annars heit að
láta drauma sína rætast, gefa út plötu, láta gott af sér leiða og forðast sykurpúkann.
Oft reynist erfiðara að standa við
áramótaheitin en að setja sér þau.
María Lovísa
Árnadóttir markþjálfi
setti saman góðar ráð-
leggingar um hvernig
best er að setja sér
markmið og standa við
þau.
Hún segir mikilvægt
að setja sér raunhæf,
framkvæmanleg mark-
mið og brjóta þau
niður í skref. „Óraun-
hæf eða yfirgnæfandi
háleit markmið geta
virkað spennandi í
fyrstu en gera manni
síðan erfitt fyrir og valda því jafnvel
að fólk byrjar aldrei.“
Einnig segir hún ekki síður skipta
máli að átta sig á því af hverju
ákveðið markmið er sett. „Mikilvægt
er að vita hvað við viljum en mikil-
vægara er þó að svara
því hvernig við ætlum
að gera það og kannski
umfram allt af hverju við
viljum það. Tengdu þig
persónulega við heitin
þín með því að til dæmis
svara: Hvað þýðir það
fyrir mig að vera í formi
og af hverju vil ég það?“
Mikilvægt er að missa
ekki dampinn við mistök
eða hliðarspor.
„Fagnaðu öllum
áföngum og mundu að
eftir því sem tíminn líður
þá verða allar breytingar auðveldari
og verða að lokum að nýjum vana
og þú verður kominn þangað sem þú
ætlaðir þér.“
GÓÐ RÁÐ FRÁ MARKÞJÁLFA
Ný plata er heitið Áramótaheitið er að gefa út nýja plötu á
árinu. Ég er heldur betur byrjaður á því– það eru átta lög komin
og öll óútgefin. EMMSJÉ GAUTI, RAPPARI.
Sanngjarnari við ríkisstjórnina
Ég ætla að vera sanngjarnari við ríkisstjórn Íslands. Svo ætla ég
að senda Fréttablaðinu nýja mynd af mér.
HAUKUR S. MAGNÚSSON, RITSTJÓRI REYKJAVIK GRAPEVINE.
Róum í sömu átt Ég biðst afsökunar á öllum þeim vanda sem
ég hef valdið frá fæðingu minni og hyggst bæta úr því á næsta
ári eða í næsta lífi. Um leið sendi ég öllum landsmönnum hug-
heilar nýárskveðjur. Reynum að róa í sömu áttina.
JÓN ÁRSÆLL ÞÓRÐARSON, DAGSKRÁRGERÐARMAÐUR.
Láta draumana rætast
Halda áfram að láta
draumana rætast, það
er mitt áramótaheit. Hef
unnið ötullega að því og tók
það föstum tökum á afmæl-
isári með því að halda upp
á risastórt afmæli. Alltaf
draumur hjá mér að fara á
Billy Joel-tónleika í Madison
Square Garden í New York.
Tjékk! Tengist mikið ferða-
lögum og gleði.
HELGA BRAGA JÓNSDÓTTIR,
LEIKKONA.
Láta gott af sér leiða Ég ætla að gera næsta ár betra en
árið í ár. Ég ætla að halda áfram að gera góða hluti, Láta gott af
mér leiða og hjálpa þeim sem þurfa hjálp. Svo ætla ég að bæta
mig aðeins í ræktinni og taka meira á því hjá honum Garðari
stjörnutálgara. HERBERT GUÐMUNDSSON TÓNLISTARMAÐUR.
Standa sig í móður-
hlutverkinu
Þar sem ég á nú von á lítilli
prinsessu núna í byrjun
mars þá hugsa ég að ára-
mótaheitið mitt verði að
eyða sem mestum tíma
með fjöldskyldunni og
standa mig vel í móðurhlut-
verkinu. SARA LIND
PÁLSDÓTTIR, EIGANDI JÚNÍK.
Passar sig á sykurpúkanum Mér tókst að taka heilsuna og
kroppinn vel í gegn á liðnu ári svo áramótamarkmiðið er að
massa mig aðeins upp og láta ekki sykurpúkann ná tökum á
mér. Aðal áramótaheitið er hins vegar að fókusera á móður-
hlutverkið og passa vel upp á ungana mína.
ERNA HRÖNN ÓLAFSDÓTTIR, TÓNLISTARKONA.
Vera betri manneskja Áramótaheitið mitt er mjög óljóst en
ég missti það út úr mér við einhvern í fyrradag. Það er bara að
vera betri manneskja og örlátari á tíma minn.
GUÐRÚN EVA MÍNERVUDÓTTIR, RITHÖFUNDUR.
Hitta vinina oftar Ég er með mjög einfalt áramótaheit, ég
ætla að vera duglegri að hitta vini mína og bjóða þeim í heim-
sókn. LÓA HLÍN HJÁLMTÝSDÓTTIR, TÓNLISTAR- OG LISTAKONA.
LÍFIÐ