Fréttablaðið - 31.12.2014, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 31.12.2014, Blaðsíða 56
31. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 48 BAKÞANKAR Ragnheiðar Tryggvadóttur TÓNLIST ★★★★ ★ Coolboy Oyama 12 TÓNAR Það var virkilega spennandi á sínum tíma þegar heyrðist af tilvist Oyama, íslenskrar hljómsveitar sem spilaði skóglápstónlist (e. shoegaze). Þær hafa nefnilega ekki verið margar sveitirnar sem hafa fetað þessa vandasömu braut effekta og marglaga hljóðmúraðrar gítarsúpu; allt saman keyrt áfram af þéttri bassalínu og taktföstum trommuleik. Oyama tók slaginn og gaf út frumburð sinn í fyrra, stutt- skífuna I Wanna, en Coolboy, sem kom út á haust- mánuðum 2014, er þeirra fyrsta breiðskífa. Nokkuð var rætt um Oyama á árinu þegar lögin sem líta dagsins ljós á Coolboy voru frumflutt á tónleikum – jafnvel talað um að hljómsveitin hefði breytt algerlega um hljóðheim frá fyrra verki – sem er líklega ofmat, sem betur fer. Réttara væri að segja að Oyama er enn á sömu braut skóglápsins en þéttari … betri. Að sækja sér áhrif til sveita eins og My Bloody Valentine, Ride eða Slowdive er hæg- ara sagt en gert og nauðsynlegt að vanda til verka. Upptökustjóri plötunnar, hinn góðkunni gítarleikari Pétur Ben, vinnur mikið afrek á plötunni og greinilegt að framlag hans hefur skipt miklu máli í að fullkomna hljóðheim plötunnar en hann er, tja … mjög pró. Það verður ein- faldlega að viðurkennast. Þar er ekki síður mikilvægt framlag Júlíu Hermannsdóttur og Úlfs Alexanders Einarssonar, ein- hvers konar Rachel Goswell og Neil Halstead Íslands, sem syngja og radda (með góðri aðstoð effekta) fullkomlega til að búa til sveimkennda þoku sem svífur yfir öllu saman. Bergur Thomas Andersen fær einnig hrós fyrir að gersamlega negla hlutverk bassaleikara skó- glápssveitar. Erfitt er að velja bestu lög plötunnar sem er í heild mjög jöfn. Þó eru „The Cat Has Thirst“, „Siblings“ og „Another Day“ slagarar sem slíkir, þá sérstaklega melódísk gítarsúpa undir lok síðast- nefnda lagsins sem hreinlega öskrar á tónleikaheimsókn, loka augunum og hreyfa sig í slow-motion – í sömu fót- sporunum, eins og árið væri 1992. Björn Teitsson NIÐURSTAÐA: Eina skóglápshljómsveit Íslands stendur undir nafni og hefur greinilega tekið miklum framförum á skömmum tíma. Allt á réttri leið KRINGLUNNI SPARBÍÓ AKUREYRI KEFLAVÍK ÁLFABAKKA EGILSHÖLL HOLLYWOOD REPORTER Jólamyndin 2014 Vinsælasta teiknimynd allra tíma Aftur í bíó um jólin Gleðilegt nýtt bíóár Miðasala á: UNBROKEN KL. 7.15 – 10 THE HOBBIT 3 3D KL. 2 – 4.15 – 5.30 – 9 – 10.10 NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 2 – 4.45 – 6.45 EXODUS KL. 9 MOCKINGJAY– PART 1 KL. 2 – 7 MÖRGÆSIR ÍSL TAL KL. 2 – 4.30 HOBBIT 3 3D 48R KL. 1 – 2.30 – 4.30 – 6 – 8 – 9.30 – 11 HOBBIT 3 LÚXUS 3D 48R KL. 1 – 4.30 – 8 – 11 NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 1 – 3.30 – 5.45 – 8 EXODUS KL. 6 – 9.30 MOCKINGJAY – PART 1 KL. 10.20 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 1 – 3.30 JÓ LAMYND FJÖ LSKYLDUNNAR - EMPIRE SÝNINGARTÍMAR GILDA FRÁ OG MEÐ 1. JANÚAR HOBBIT 3 3D (48R) 2, 4, 5, 7, 8, 10, 11 NIGHT AT THE MUSEUM 2, 5, 8 NIGHTCRAWLER 10:10 BIG HERO 6 2D 1:50 sýnd í 3d 48 rammaS R LOKAÐ 31. DESEMBER - OPIÐ NÝÁRSDAG! - SÝNINGARTÍMAR OG TILBOÐ GILDA FYRIR 1. JANÚAR Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. STÆRSTA OPNUNARHELGI ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI GLEÐILEGT NÝTT ÁR 5% Ég heyrði á tal afgreiðslustúlknanna frammi í búðinni gegnum jólatónlist- ina. Ég var á bak við tjald að máta kjól, taldi mig loksins búna að finna jólakjól- inn. Mér leiðist ekkert að skoða föt í búðum og hafði eytt bróðurparti kvölds- ins í Kringlunni á rápi milli verslana. Stoppaði í millitíðinni til að fá mér hressingu, kaffifrappó með þeyttum rjóma og var einmitt að svolgra í mig síðasta sopann, rjómablandaðan úr botninum, þegar ég heyrði aðra afgreiðslustúlkuna segja við hina að hún hefði ekkert komist í kvöldmat. Klukkan var langt gengin í tíu. ÖNNUR afgreiðslustúlka leitaði lengi á lagernum fyrir mig að umbúðum sem ekki sæist í gegn- um svo sá sem var með mér í búðinni sæi ekki hvað ég var að kaupa. Ég tafði hana með þessu en hún rétti mér pok- ann brosandi og óskaði mér gleðilegra jóla áður en hún sneri sér að næsta. Í annarri verslun gerði stúlkan á kass- anum grín að sjálfri sér þegar hún nefndi allt aðra upphæð við mig en stóð á skjánum, „það er greinilega komið að háttatíma hjá mér“, sagði hún hlæjandi. Strákurinn sem afgreiddi mig í Hagkaupi rétt fyrir lokun baðst afsökunar á stórum geispa sem hann gat ekki með nokkru móti hamið. Spurði mig svo hvort ég væri ekki bara í góðu skapi samt. Á eftir mér var löng röð af fólki sem hann átti eftir að afgreiða en ég dólaði mér heim. Kvöldið hafði verið hið ljúfasta, hjá mér. Í BLÖÐUNUM las ég lýsingar starfs- manns í verslun sem hafði verið sleg- inn utan undir af viðskiptavini. Öðrum hafði verið úthúðað fyrir að spyrja hversu marga poka viðskiptavinurinn ætlaði að nota og fleiri höfðu verið grættir af arg- andi frekjuhundum. Dónaskapur gagn- vart afgreiðslufólki er fastur liður í jólastressinu, svo fastur að búin voru til sérstök barmmerki til að minna fólk á að sýna því kurteisi. ÞAU sem afgreiddu mig dauðlúin undir kvöld í Kringlunni þurftu þó engin barm- merki til að minna sig á að brosa til mín. Ég vona að þau hafi átt notaleg jól. Langlundargeð lúinna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.