Fréttablaðið - 31.12.2014, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 31.12.2014, Blaðsíða 29
Sigga var ekkert að hika þegar hún var spurð um árið 2015. „Ég hef velt nýju ári mikið fyrir mér. Margir muna kannski eftir heimsendaspá 21. desember 2012 en þá er talið að dagatali Inka eða Maya hafi lokið. Margar kenningar eru uppi um að á þessum degi fyrir tveimur árum hafi lokið ákveðnum myrkum kafla í sögu jarðarinnar. Frá þeim degi hafi opnast á bjartari tíma með minni spillingu og ljótleika en áður þekktist. Ég vil trúa þessu,“ segir Sigga. „Einnig tel ég mikilvægt að við trúum á það góða, það býr nefnilega inni í okkur. Ef við horfum á allt með neikvæðum augum þokast lítið í betri átt. Ég vil hvetja Íslendinga til að tileinka sér jákvæðara hugarfar á nýju ári. Miðað við að lýð- ræðið hafi fæðst 17. júní 1944 þá erum við að sigla inn í mjög gott ár. Við þurfum þó að hafa fyrir þess- um góðu breytingum vegna þess að ekkert gerist ef við tökum ekki þátt í þeim,“ segir Sigga og bendir á að það sé gott fyrir alla að finna Pollýönnu í sér. „Það leynast góðar fréttir í fjölmiðlum en flestir sjá einungis þessar neikvæðu. Þar sem mikið streymi er af neikvæðum fréttum hvaðanæva úr heiminum er stundum gott að líta í eigin barm og skoða hvað maður hefur það í rauninni gott. Það eru svo margir miklu verr staddir,“ segir Sigga enn fremur. „Það þýðir ekkert að bíða eftir að hamingj- an banki upp á með pitsunni. Við þurfum að finna hana inni í okkur og finna kraftinn í lífinu.“ Hún segist stundum vakna upp að morgni og sjá varla fram úr deginum. „Ég bið þá lífið að leysa þennan dag á góðan hátt og síðan treysti ég að það gerist. Jákvæð hugsun fleytir manni langt,“ segir Sigga og rifjar upp ástandið þegar Geir bað Guð að blessa Ísland. „Ég var stödd á Korputorgi og brast í grát yfir hörmungunum sem ættu eftir að dynja yfir okkur. Enginn matur yrði til í búðum, né lyf fyrir þá veiku. Auðvitað var þetta ömurleg stund en horfum til þess sem vel hefur verið gert síðan,“ segir hún. „Ég er spennt fyrir árinu 2015 og tel að margt muni koma fólki ánægjulega á óvart.“ ■ elin@365.is SPENNT FYRIR 2015 ÁRAMÓT Sigríður Kling er litríkur persónuleiki sem sjaldan liggur á skoðunum sínum. Hún horfir til stjarnanna og segist hafa gott næmi fyrir því sem fram undan er. Sigga er bjartsýn á komandi ár og segir margt spennandi eiga eftir að gerast. HAMINGJA Sigga Kling segir að fólk þurfi að finna hamingjuna og jákvæðnina innra með sér. MYND/VILHELM VERJUM AUGUN Góð vísa er aldrei of oft kveðin. Notum hlífðargleraugu á gamlárs- kvöld og horfum öruggum augum inn í nýja árið. NÁMSKEIÐ V UPPLÝSINGAR O Nýtt námskeið hefst 26. okt 7. janúar DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · Hljóðlát Stórt op > auðvelt að hlaða Sparneytin amerísk tæki. <Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerísk gæðavara Amerísk gæðavara Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.