Fréttablaðið - 09.12.2015, Side 2

Fréttablaðið - 09.12.2015, Side 2
223 milljarða króna mun Glitnir greiða ríkinu samhliða upp- gjöri ferðaþjónusta Samtökin 825 Þorparinn vilja gera Stokkseyri að „rómantískasta bæ á Íslandi“ og þar með auka aðdráttarafl bæjarins fyrir ferðafólk. 825 Þorparinn eru samtök atvinnurekenda á Stokkseyri og áhugamanna um aukna ferðaþjón- ustu og öflugra atvinnulíf í bænum. „Ein hugmyndin lýtur að því að skapa rómantíska dulúð í tengslum við að dempa lýsingu í bænum og láta lágstemmdari lýsingu gefa húsum og híbýlum enn meiri sjarma,“ segir í bréfi 825 Þorparinn til bæjarstjórnar Árborgar. Því fylgja undirskriftir yfir 130 manna sem taka undir þá hugmynd samtak- anna að slökkt verði á götulýsingu á Stokkseyri milli klukkan 23 og 03. „Að stytta tíma sem götulýsing logar í tilraunaskyni er liður í þeirri viðleitni að skapa róman- tíska stemmingu sem marka myndi skemmtilega sérstöðu til að kynna og mun svo sannarlega vinda upp á sig,“ segja bréfritarar sem kveða þessa takmörkun á lýsingu bjóða upp á fjölmarga möguleika í ferða- þjónustu og að jólaskreytingar Stokkseyringa myndu þess utan njóta sína betur. „Rómantík og kertaljós í frið- sælum bæ við sjóinn yrði nokkuð skemmtilegt frétta- og kynningar- efni,“ spáir 825 Þorparinn. „Norður- ljósaferðir njóta sívaxandi vinsælda og er ekki ólíklegt að ferðamenn myndu sækja Stokkseyri enn frekar heim ef ljósmengun væri stillt í hóf en í dag þá er sirka einn ljósastaur á hverja tvo íbúa. Til viðbótar gæti skapast grundvöllur fyrir stjörnu- áhugamenn sem hér gætu fundið sinn samastað.“ Þá benda samtökin á að Stokks- eyri hafi nú þegar margvíslega sér- stöðu, bæði jarðfræðilega og sögu- lega. „Í bænum er einn vinsælasti veitingastaður landsins auk þess sem bærinn er þekktur fyrir fjölda listamanna sem hér búa og hafa mjög jákvætt og gott aðdráttarafl.“ Bæjarráð Árborgar tók vel í ósk samtakanna og fól framkvæmda- stjóra framkvæmda- og veitusviðs að leita leiða til að útfæra stýringar á götulýsingunni á Stokkseyri. gar@frettabladid.is Gera Stokkseyri að rómantískasta bænum Samtök atvinnurekenda og áhugafólks vilja efla aðdráttarafl Stokkseyrar með því að slökkva á götulýsingu í þorpinu eftir klukkan ellefu á kvöldin. Yfir 130 manns skrifuðu undir bréf samtakanna sem fékk jákvæð viðbrögð í bæjarráði. Samtökin 825 Þorparinn vinna „markvisst að því að gera Stokkseyri að rómantísk- asta bæ á Íslandi“. Fréttablaðið/Heiða Er ekki ólíklegt að ferðamenn myndu sækja Stokkseyri enn frekar heim ef ljósmengun væri stillt í hóf en í dag þá er sirka einn ljósastaur á hverja tvo íbúa. 825 Þorparinn í bréfi til bæjarstjórnar Árborgar. Breytileg átt, víða 3-10 metrar á sekúndu í dag. Úrkomulítið víðast hvar, en norðlæg átt og snjókoma eða él norðan til á Vestfjörðum og á annesjum norðanlands seinnipartinn og í kvöld. Frost 0 til 8 stig, kaldast inn til landsins. sjá síðu 28 Veður Bækur og kjöt fyrirferðarmikil i búðarhillum SKREYTUM HÚS 45% AFSLÁTTUR SÁ ALLRA VINSÆLASTI TIL JÓLA Soffía Dögg hjá Skreytum hús valdi litinn Fæst einungis í Slippfélaginu Borgartúni 22 Rvk. Dugguvogi 4 Rvk. Gleráreyrum 2 Ak. Dalshrauni 11 Hfj. S ími : 5 8 8 800 0 s l i pp f e l ag id . i s FRÍAR LITAPRUFUR Það er engin tilviljun að Skreytum hús liturinn okkar er einn sá allra vinsælasti. viðskipti Héraðsdómur Reykjavíkur hefur samþykkt nauðasamningsfrum- varp Glitnis. Steinunn Guðbjartsdótt- ir, formaður slitastjórnar Glitnis, segir að næst verði nauðasamningsfrum- varpið tekið fyrir í Bandaríkjunum þann 15. desember því slitameðferðin sé viðurkennd þar í landi. Í kjölfarið þurfi endanlegt samþykki Seðlabanka Íslands á undanþágu frá lögum um gjaldeyrishöft. Eftir það  verði hægt að greiða kröfuhöfum út í samræmi við nauðasamninginn. Gangi allt að óskum gæti það orðið fyrir áramót. Stefnt er að því að greiða um 520 milljarða króna greiðslu til kröfuhafa. Þeir sem eiga kröfur upp að 3,5 millj- ónum króna fá þær greiddar að fullu. Reiknað er með að ríflega 30 prósent fáist upp í kröfur umfram þá upphæð. Samhliða uppgjörinu mun Glitnir greiða ríkinu jafnvirði 223 milljarða króna. Þar munar mest um 95 pró- senta eignarhlut slitabúsins í Glitni. Nauðasamningur Kaupþings var tekinn fyrir í Héraðsdómi Reykja- víkur í gær en nauðasamningur gamla Landsbankans verður tekinn fyrir 15. desember. – ih Greitt út fyrir áramót Páll eiríksson og Steinunn Guðbjarts- dóttir kynntu nauðasamning Glitnis. Fréttablaðið/anton Bækur til að létta sér lundina Í dag eru fimmtán dagar til jóla og jólaörtröðin að hefjast. Árviss viðburður er jólabókaflóðið en fjölmargir Íslend- ingar munu vafalaust gera sér náðugt aðfangadagskvöld með brakandi ferska bók úr pakka. Fréttablaðið/Pjetur olíuborpallur. Fréttablaðið/Marc MorriSon viðskipti Hrávöruverð á olíu lækk- aði í gær og er komið undir 40 doll- ara, rúmlega fimm þúsund íslenskar krónur, á tunnuna í fyrsta sinn í næstum sjö ár. Í gær nam Brent crude-verðið 39,91 dollara á tunnu, rúmlega 5.000 íslenskum krónum, og Western Texas Intermediate- verðið nam 36,68 dollurum á tunn- una, 4.700 íslenskum krónum. Ef olíuverð fellur meira verður það orðið jafn lágt og við aldamót. – sg Olíuverð ekki lægra í sjö ár 9 . d e s e m B e r 2 0 1 5 m i ð v i k u d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 0 8 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 9 B -0 3 5 4 1 7 9 B -0 2 1 8 1 7 9 B -0 0 D C 1 7 9 A -F F A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.