Fréttablaðið - 09.12.2015, Page 30
Fólk| jól
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur
og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Ég er alltaf að reyna að finna eitthvað sniðugt, ódýrt, einfalt en skemmtilegt til
að gefa fólki í jólagjöf. Eitt árið
ákvað ég að gera múslí. Ég skoð-
aði alls konar uppskriftir og
þróaði síðan mína eigin útgáfu
sem reyndar breytist í hvert sinn
sem ég geri hana,“ segir Díana
Rós en uppskriftin sem hún gefur
nú er alveg ný. „Þetta er svona
lúxusútgáfa af múslí, alveg ekta
til að fá sér milli jóla og nýárs.“
Hún mælir með að borða múslíið
með mjólk þó hún viti til þess
að sumir borði það beint upp úr
krukkunni eins og snakk.
„Það eru nokkrar sem eru
búnar að biðja sérstaklega um
að fá múslí í ár. Ég veit að þær
hamstra það og gefa engum með
sér,“ segir hún glettin.
Díana hefur ávallt haft mikinn
matreiðsluáhuga. „Hann vaknaði
þegar ég var lítil stelpa að elda
með pabba. Hann leyfði mér að
vera með í öllu en matreiðslan er
hans helsta ástríða. Hann býr í
Svíþjóð og þegar ég kom til hans
á sumrin vorum við annaðhvort
í eldhúsinu eða á mörkuðum að
ná okkur í hráefni,“ segir Díana
sem opnaði matarbloggið sitt la-
cocinasite.wordpress.com í októ-
ber. „Ég var oft að setja myndir
á Face book og fólk var sífellt að
biðja mig um uppskriftir og ýta
á mig að búa til blogg. Ég lét því
loks undan og finnst þetta bara
gaman.“
Díana segist vera talsvert jóla-
barn og vera afar flink að vera
ekki stressuð fyrir jólin. „Enda er
ég yfirleitt búin að flestu í nóv-
ember,“ segir hún glaðlega.
n solveig@365.is
lúxusmúslí Fyrir
útvalda ástvini
girnileg jólagjöF Díana Rós A. Rivera býr til múslí fyrir jólin og gefur
þeim sem hún elskar. Hún fór af stað með matarblogg sitt, La cocina, í októ-
ber eftir mikla hvatningu frá vinum og ættingjum.
vinsæl gjöF Strax í október voru nokkrar vinkonur og frænkur búnar að panta jólamúslíið hennar Díönu í jólagjöf. MynD/Anton Brink
la CoCina Díana rós heldur úti matar-
bloggsíðunni lacocinasite.wordpress.
com þar sem finna má ýmsar girnilegar
uppskriftir.
Hátíðarmúslí
8 dl haframjöl
1 dl sólblómafræ
1 dl graskersfræ
1 dl saxaðar möndlur
1 dl saxaðar valhnetur
1 dl salthnetur
Blandið öllu saman í stórri skál og
snúið ykkur svo að hunangslegin
um. Í hann fer:
1½ dl kókosolía
1½ dl hunang
2 msk. hlynsíróp
2 msk. hnetusmjör
1 msk. kakó
1 tsk. kanill
½ tsk. salt
Setjið allt í pott og blandið saman
við vægan hita. Takið pottinn af
hellunni áður en suðan kemur upp
og hellið leginum yfir þurrefnin í
skálinni. Blandið mjög vel saman
með sleif.
Setjið bökunarpappír á tvær ofn
plötur, skiptið múslíinu á plöturn
ar og dreifið vel úr. Ristið í ofni við
160°C á blæstri í 10 mínútur. Takið
plöturnar út, hrærið aðeins í múslí
inu og ristið í 10 mín. í viðbót. Látið
múslíið kólna góða stund, það er
mjúkt þegar það kemur úr ofninum
og verður stökkt þegar það kólnar.
Þegar múslíið
er orðið kalt fer út í:
2 dl trönuber
1 dl rúsínur
1 dl saxað 70% súkkulaði
1 dl ristaðar kókosflögur
Hægt er að gera múslíið sætara
með því að bæta við skeið af hlyn
sírópi í löginn eða velja súkkulaði
með minna kakómagni.
Það er líka hægt velja sér hnetur
og fræ eftir smekk og alltaf gaman
að breyta til, sleppa einu og bæta
öðru við.
40.000
fréttaþyrstir
notendur
Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu
blaðið hvar sem er og hvenær sem er.
Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna
og snjallsímann með Fréttablaðsappinu.
Nálgastu appið á visir.is/fbl
eða beint í gegnum:
Save the Children á Íslandi
0
8
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
9
B
-1
C
0
4
1
7
9
B
-1
A
C
8
1
7
9
B
-1
9
8
C
1
7
9
B
-1
8
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
8
_
1
2
_
2
0
1
5
C
M
Y
K