Fréttablaðið - 09.12.2015, Side 30

Fréttablaðið - 09.12.2015, Side 30
Fólk| jól Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Ég er alltaf að reyna að finna eitthvað sniðugt, ódýrt, einfalt en skemmtilegt til að gefa fólki í jólagjöf. Eitt árið ákvað ég að gera múslí. Ég skoð- aði alls konar uppskriftir og þróaði síðan mína eigin útgáfu sem reyndar breytist í hvert sinn sem ég geri hana,“ segir Díana Rós en uppskriftin sem hún gefur nú er alveg ný. „Þetta er svona lúxusútgáfa af múslí, alveg ekta til að fá sér milli jóla og nýárs.“ Hún mælir með að borða múslíið með mjólk þó hún viti til þess að sumir borði það beint upp úr krukkunni eins og snakk. „Það eru nokkrar sem eru búnar að biðja sérstaklega um að fá múslí í ár. Ég veit að þær hamstra það og gefa engum með sér,“ segir hún glettin. Díana hefur ávallt haft mikinn matreiðsluáhuga. „Hann vaknaði þegar ég var lítil stelpa að elda með pabba. Hann leyfði mér að vera með í öllu en matreiðslan er hans helsta ástríða. Hann býr í Svíþjóð og þegar ég kom til hans á sumrin vorum við annaðhvort í eldhúsinu eða á mörkuðum að ná okkur í hráefni,“ segir Díana sem opnaði matarbloggið sitt la- cocinasite.wordpress.com í októ- ber. „Ég var oft að setja myndir á Face book og fólk var sífellt að biðja mig um uppskriftir og ýta á mig að búa til blogg. Ég lét því loks undan og finnst þetta bara gaman.“ Díana segist vera talsvert jóla- barn og vera afar flink að vera ekki stressuð fyrir jólin. „Enda er ég yfirleitt búin að flestu í nóv- ember,“ segir hún glaðlega.  n solveig@365.is lúxusmúslí Fyrir útvalda ástvini girnileg jólagjöF Díana Rós A. Rivera býr til múslí fyrir jólin og gefur þeim sem hún elskar. Hún fór af stað með matarblogg sitt, La cocina, í októ- ber eftir mikla hvatningu frá vinum og ættingjum. vinsæl gjöF Strax í október voru nokkrar vinkonur og frænkur búnar að panta jólamúslíið hennar Díönu í jólagjöf. MynD/Anton Brink la CoCina Díana rós heldur úti matar- bloggsíðunni lacocinasite.wordpress. com þar sem finna má ýmsar girnilegar uppskriftir. Hátíðarmúslí 8 dl haframjöl 1 dl sólblómafræ 1 dl graskersfræ 1 dl saxaðar möndlur 1 dl saxaðar valhnetur 1 dl salthnetur Blandið öllu saman í stórri skál og snúið ykkur svo að hunangslegin­ um. Í hann fer: 1½ dl kókosolía 1½ dl hunang 2 msk. hlynsíróp 2 msk. hnetusmjör 1 msk. kakó 1 tsk. kanill ½ tsk. salt Setjið allt í pott og blandið saman við vægan hita. Takið pottinn af hellunni áður en suðan kemur upp og hellið leginum yfir þurrefnin í skálinni. Blandið mjög vel saman með sleif. Setjið bökunarpappír á tvær ofn­ plötur, skiptið múslíinu á plöturn­ ar og dreifið vel úr. Ristið í ofni við 160°C á blæstri í 10 mínútur. Takið plöturnar út, hrærið aðeins í múslí­ inu og ristið í 10 mín. í viðbót. Látið múslíið kólna góða stund, það er mjúkt þegar það kemur úr ofninum og verður stökkt þegar það kólnar. Þegar múslíið er orðið kalt fer út í: 2 dl trönuber 1 dl rúsínur 1 dl saxað 70% súkkulaði 1 dl ristaðar kókosflögur Hægt er að gera múslíið sætara með því að bæta við skeið af hlyn­ sírópi í löginn eða velja súkkulaði með minna kakómagni. Það er líka hægt velja sér hnetur og fræ eftir smekk og alltaf gaman að breyta til, sleppa einu og bæta öðru við. 40.000 fréttaþyrstir notendur Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu blaðið hvar sem er og hvenær sem er. Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna og snjallsímann með Fréttablaðsappinu. Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum: Save the Children á Íslandi 0 8 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 9 B -1 C 0 4 1 7 9 B -1 A C 8 1 7 9 B -1 9 8 C 1 7 9 B -1 8 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.