Fréttablaðið - 09.12.2015, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 09.12.2015, Blaðsíða 10
Konur og margþætt mismunun 12.00 Setning fundar Sóley Tómasdóttir, formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar 12.05 Fita er femínískt málefni Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur og formaður samtaka um líkamsvirðingu 12.25 Lífið sem kom á óvart Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir formaður félags eldri borgara í Reykjavík 12.45 Kúgun hversdagsins Embla Guðrúnar Ágústsdóttir talskona Tabú 13.05 Að vera flóttakona í Reykjavík Andrea Gutiérrez 13.25 Umræður og fyrirspurnir Öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Boðið verður upp á súpu og brauð. Fundarstjóri er Magnús Már Guðmundsson. Opinn fundur mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar 10. desember kl. 12.00 – 13.30 í Iðnó á alþjóðlegum degi mannréttinda. Sádi-ArAbíA Fulltrúar helstu hópa sýrlenskra stjórnarandstæðinga og uppreisnarmanna sitja nú á fundum í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu. Þar ætla þeir að gera tilraun til þess að ná samstöðu um helstu markmið sín, sem hægt væri að leggja áherslu á í friðarviðræðum við Bashar al Assad Sýrlandsforseta. Fyrri tilraunir hafa allar farið út um þúfur og miklar vonir því kannski vart bundnar við þessi fundahöld. Undanfarnar vikur hefur hins vegar komist nokkur hreyfing á alþjóðlegar viðræður um hugsan- lega lausn á átökunum í Sýrlandi. Laugardaginn 14. nóvember síðastliðinn, daginn eftir eftir voða- verkin í París sem kostuðu 130 manns lífið, komu utanríkisráðherr- ar og aðrir fulltrúar frá Sameinuðu þjóðunum, Evrópusambandinu, Arababandalaginu, Bandaríkjunum, Rússlandi, Sádi-Arabíu, Tyrklandi, Íran og tólf öðrum löndum saman í Genf til að ræða möguleikann á friðarsamkomulagi. Afraksturinn var furðu nákvæm áætlun um að kosningar yrðu haldnar í Sýrlandi innan 18 mánaða, samið yrði um vopnahlé og stjórnar- skrárbreytingar yrðu gerðar. Sýrlenskir uppreisnarmenn tóku dræmt í þessar hugmyndir, sögðu þær fjarri öllum raunveruleika og gátu alls ekki séð hvernig hægt ætti að vera að koma þeim í framkvæmd. Sérstaklega settu þeir fyrir sig að Assad forseti fengi tækifæri til að taka þátt í kosningum, og stjórna landinu þangað til þær yrðu haldn- ar. „Assad og stjórn hans hafa eyði- lagt meira en 75 prósent af landinu, drepið hundruð þúsunda og hrakið milljónir manna á flótta – og þeir vilja samt að við höldum kosning- ar?“ hafði arabíska fréttastöðin Al Jazeera eftir Haitham al-Maleh frá Sýrlenska þjóðarbandalaginu, sem er bandalag sýrlenskra stjórnarand- stæðinga, einkum þeirra sem búa í útlegð. Þetta bandalag, sem hefur notið stuðnings Vesturlanda, hefur samt ákveðið að senda fulltrúa sína til Ríad. Þangað eru líka komnir full- trúar bandalags stjórnarandstæð- inga sem enn búa í Sýrlandi og hafa verið látnir að mestu í friði af stjórn Assads. Athygli vekur að Kúrdum í norðurhluta Sýrlands hefur heldur ekki verið boðið til viðræðnanna, þótt hersveitir Kúrda hafi náð betri árangri en aðrir í baráttunni gegn Íslamska ríkinu svonefnda. Borgarastyrjöldin í Sýrlandi hefur nú staðið yfir í bráðum fimm ár og kostað meira en 250 þúsund manns lífið. gudsteinn@frettabladid.is Stjórnarand stæðingar reyna að ná samstöðu Sýrlenskir stjórnarandstæðingar og uppreisnarmenn reyna að ná samstöðu fyrir hugsanlegar friðarviðræður við Assad forseta. Fyrri tilraunir hafa farið út um þúfur og því kæmi árangur á óvart. Kúrdum er ekki boðið að vera með. Íbúar í stórskemmdu húsi í Aleppo þar sem loftárásir stjórnahersins hafa verið nánast daglegur viðburður árum saman. Nordicphotos/AFp Assad og stjórn hans hafa eyðilagt meira en 75 prósent af landinu, drepið hundruð þúsunda og hrakið milljónir manna á flótta – og þeir vilja samt að við höldum kosningar? Haitham al-Maleh sýrlenskur stjórnarandstæðingur 9 . d e S e m b e r 2 0 1 5 m i Ð V i K U d A G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A Ð i Ð 0 8 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 9 B -3 9 A 4 1 7 9 B -3 8 6 8 1 7 9 B -3 7 2 C 1 7 9 B -3 5 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 8 _ 1 2 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.